Popparasögur

Popparasögur

By Vignir Egill VigfússonMusicMusic InterviewsMusic History
Download on the App Store

Popparasögur episodes

  • #41 | Snorri Helgason og að halda alltaf áfram að halda áfram

    Snorri Helgason kom fram á sjónarsviðið með Sprengjuhöllinni fyrir um 20 árum síðan og hljómsveitin bókstaflega keyrði yfir Ísland og íslenskan tónlistarbransa misserin þar á eftir. Síðan hefur hann gefið út sjö sólóplötur sem hafa innihaldið fjölmörg vinsæl lög. 

    Snorri vinnur nú að nýrri plötu og hefur fyrsta tóndæmið af henni fallið vel í kramið enda hefur lagið, sem er ábreiða af gamla Ríó tríó laginu Eina nótt, náð efsta sæti vinsældalista. Upprunalegu útgáfuna söng faðir Snorra, Helgi Pé, á sínum tíma.

    Í viðtalinu talar hann um hvernig það er að vera tónlistarmaður á Íslandi í dag, merkilegan feril Sprengjuhallarinnar og eitt þeirra vinsælasta lag, Verum í sambandi, upphaf sólóferilsins og tímann þegar hann bjó í London, að læra að ná sambandi við áhorfendur, kosti og galla íslenska tónlistarbransans og það að halda alltaf áfram.

    Hann talar um minnisstæða útgáfutónleika sem voru haldnir sama dag og faðir hans féll frá, um nýju plötuna, Fílalag, Borgartún, Aron, Birtu, Einsemd, Eyva, Ingileif, Stínu og Haustið '97.

    Kölski - herrafataverslun - kolski.is | Procedo - Jákvæð áhrif - procedo.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    1 hr 14 min
  • #40 | Daníel Andri Eggertsson og sögurnar af goðsögnum íslenskrar tónlistarsögu

    Daníel Andri Eggertsson, gítarleikari í hljómsveitinni Færibandinu, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu fyrir myndbönd þar sem hann rifjar upp sögur af tónlistarfólki sem setti svip sinn á íslenskt tónlistarlíf um miðja síðustu öld og áratugina þar á eftir.

    Með myndböndunum hefur hann meðal annars kynnt yngri kynslóðina fyrir listafólki á borð við Hallbjörgu Bjarnadóttur, Hauk Morthens, Ingibjörgu Þorbergs, Vilhjálm Vilhjálmsson og Elly Vilhjálms. Það sem byrjaði sem eitt myndband um Hallbjörgu hefur nú þróast í stærra verkefni, en Daníel vinnur nú að hlaðvarpi sem kallast Sagan af þar sem hann kafar dýpra í líf og feril tónlistarfólksins.

    Í viðtalinu ræðir Daníel um upphaf verkefnisins, viðbrögðin við myndböndunum og mikilvægi þess að varðveita sögur og minningar um tónlistarfólk áður en þær glatast, fjallar um tónlistarlíf Akureyrar og hlutverk Sjallans í því og segir frá hugmyndinni á bak við nýja hlaðvarpið.

    Kölski - herrafataverslun - kolski.is | Procedo - Jákvæð áhrif - procedo.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    1 hr 1 min
  • #39 | Einar Örn Jónsson og allt um það að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma

    Einar Örn Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi undanfarna áratugi. Hann gaf ungur út sólóplötu með eigin efni, hann spilaði dinner-tónlist fyrir matargesti á Lækjarbrekku, hann hefur síðustu ár spilað með vinsælasta tónlistarfólki landsins, gefið út efni undir nafninu Löður og stendur fyrir jólatónleikum, Einar um jólin, í desember.

    En þekkastur er hann sennilega fyrir störf sín með hljómsveitinni Í svörtum fötum þar sem hann spilaði á hljómborð og samdi lög og texta auk þess að stýra skipinu, prógramminu og stuðinu. Hljómsveitin var sú allra vinsælasta á landinu allt frá því hún sló í gegn með laginu Nakinn þar til hún fór í alltof langa pásu árið 2011, pásu sem enn lifir.

    Í viðtalinu fer Einar yfir ferilinn með Í svörtum fötum, allt frá fyrstu skrefunum til skelfilegra flugferða, frá Verkefni eitt til þess að vera bestir á balli. Hann segir einnig frá upphafinu á Blönduósi, tónlistinni í MA, kvöldunum á Lækjarbrekku, sólóplötunni sem hann gaf út 19 ára gamall, vinsælasta íslenska jólalaginu sem hann samdi, samstarfinu við stærsta tónlistarfólk landsins og auðvitað Einari um jólin.

    Kölski - herrafataverslun - kolski.is | Procedo - Jákvæð áhrif - procedo.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    1 hr 12 min
  • #38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól

    Fjórði og síðasti hlutinn um hljómsveitina Sniglabandið. Í síðasta hluta fóru þeir Diddi og Skúli yfir merkilega ferð bandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir mútuðu löggunni, voru eltir af mafíunni, lentu í menningarsjokki, voru með fulla ruslapoka af rúblum og lifðu eins og rokkstjörnurnar sem þeir sögðust vera.

    Í þessum hluta segja þeir frá einu vinsælasta íslenska jólalagi allra tíma, Jólahjól, og hvað það gerði fyrir hljómsveitina. Þeir tala um þegar Skúli reyndi að fá leyfi frá Rolling Stones, einstakt samband meðlima, vináttuna, erfiðleikana sem þeir hafa gengið í gegnum saman, lýðræði og það að vera Í góðu skapi.

    Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    40 min
  • #37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum

    Þriðji hlutinn og mögulega einum þeim merkilegasta í sögu hljómsveitarinnar Sniglabandsins. Í fyrstu tveimur hlutunum var farið yfir upphaf sveitarinnar, ótrúlegar uppákomur frá fyrstu árunum, mannabreytingar, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, vinsælustu útvarpsþætti landsins og svo margt fleira.

    Í þessum þriðja hluta er fjallað um merkilega ferð Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir fóru á fimm mótorhjólum og einni rútu í tónleikaferðalag. 

     Þeir segja frá því hvernig þeir gistu í heimahúsum og kynntust fólkinu, fullum ruslapokum af rúblum og vandræðunum við að eyða þeim, mútum til lögreglunnar, mafíunni sem elti þá, menningarsjokkinu og hvernig bréf frá Davíð Oddssyni, þáverandi borgarstjóra, bjargaði Didda frá öskrandi lögreglumanninum sem beindi að honum rifli.

    Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    1 hr 7 min
  • #36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi

    Annar hluti viðtalsins við hljómsveitina Sniglabandið. Í fyrsta hlutanum var farið víða og sagt frá upphafi sveitarinnar, ótrúlegum uppákomum frá fyrstu árunum þar sem kom við sögu dvergur að þvo bíl, hestur í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, Jónas Friðrik, Hells Angels, putti í auga og margt fleira.

    Í þessum öðrum hluta fara þeir Diddi og Skúli yfir það hvernig hljómsveitin fór að þróa þá list að taka við óskalögum fólks í salnum, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, útvarpsþættina sem voru þeir vinsælustu á landinu og karakterana og grínið sem var til þar, lögin sem urðu til í þáttunum, samstarfið við Nylon, tónleika sveitarinnar og tilkomu nýrra meðlima í bandið.

    Þetta er annar hlutinn af fjórum af sögu Sniglabandsins.

    Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    49 min
  • #35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað

    Hljómsveitin Sniglabandið hefur verið ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands síðustu áratugi og er hvergi nærri hætt. Hvort sem fólk tengir hljómsveitina við að vera í góðu skapi, útvarpsþættina þeirra vinsælu, Jólahjól, bifhjólasamtökin Sniglana, ferðalag þeirra til Sovétríkjanna, sunnudagskvöld á Gauki á stöng eða annað þá hafa þeir félagar verið áberandi nær allt frá stofnun árið 1985.

    Í þessum fyrsta hluta fara þeir Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, eða Diddi, og Skúli Gautason yfir sögu sveitarinnar en auk þeirra eru í hljómsveitinni Björgvin Ploder, Einar Rúnarsson, Pálmi Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson.

    Í þessum fyrsta hluta segja þeir frá upphafi Sniglabandsins, sveitaballabransanum, hljómsveitarrútunni sem var gamall matarvagn, hestinum í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, fyrstu böllunum, mannabreytingum, Stebba Hilmars, eftirminnilegum uppákomum þegar gestir nálguðust sviðið í mismunandi tilgangi, dverg að þvo bíl, áherslubreytingum með nýjum mönnum og sérstöðu Sniglabandsins þegar kemur að sambandi við áhorfendur.

    Þetta er fyrsti hluti af fjórum af sögu Sniglabandsins.

    Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    53 min
  • #34 | Friðrik Dór og listin við að rækta garðinn sinn

    Friðrik Dór hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður á Íslandi undanfarin eða allt frá því hann kom fram á sjónarsviðið með lög eins og Hlið við hlið, Leiðarlok og fleiri. Síðan þá hafa topplögin verið fjölmörg og vinsældir hans vaxið þrátt fyrir að hafa þurft að hafa fyrir hlutunum og takast á við áskoranir á leiðinni.

    Nýverið kom hann fram á tvennum tónleikum með SinfoniaNord í Hofi á Akureyri þar sem lögin hans voru spiluð í nýjum útsetningum og verða tónleikarnir endurteknir í Hörpu í lok október.

    Í viðtalinu talar hann um samstarf við menn eins og Erp Eyvindarson, Bubba Morthens og Jón bróður sínum Jónssyni, ævintýrið með IceGuys sem senn tekur enda og lukkuna á bak við það þegar Í síðasta skipti komst ekki í Eurovision.

    Friðrik talar einnig um hvernig tónlistin hefur þróast úr því að vera tímabundið ævintýri í að verða hans ævistarf, velgengnina í upphafi ferilsins, erfiðleikana sem fylgdu í kjölfarið, textagerðina og hvernig hversdagslegar setningar geta orðið að vinsælum lögum.

    Auk þess talar hann um breytingar á íslenskum tónleikamarkaði og hvernig hann sér fyrir sér næsta kafla á tónlistarferlinum.

    Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    58 min
  • #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)

    Þá er komið að seinni hlutanum í spjallinu við Franz Gunnarsson, gítarleikara, tónleikahaldara og margt fleira, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugi, t.d. með hljómsveitum eins og Ensími, Dr. Spock og fleirum.

    Í fyrri hlutanum fór Franz yfir byrjunina með In Memoriam, Quicksand Jesus og Dr. Spock. Í þessum seinni hluta segir Franz frá hljómsveitinni Ensími, hvernig hún byrjaði eftir að hljómsveitin Jet Black Joe hætti á sínum tíma, Kafbátamúsík, vinnunni með Steve Albini, tilraunum þeirra til að slá í gegn erlendis, 30 ára afmælinu og fleiru.

    Hann talar einnig um það að blanda saman þessum tveimur ólíku hljómsveitum, Ensími og Dr. Spock, og því hvernig áfengi hefur haft áhrif á líf hans og tónlistarferil.

    Seinni hluti viðtalsins við Franz Gunnarsson.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    1 hr 4 min
  • #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)

    Franz Gunnarsson hefur komið víða við á sínum tónlistarferli, hvort sem það er sem gítarleikari, höfundur, sólólistamaður eða tónleikahaldari. Hann hefur verið í hljómsveitum eins og In Memoriam og Quicksand Jesus sem voru áberandi á tíunda áratug síðustu aldar en þekktastur er hann sennilega sem meðlimur bæði Ensími og Dr. Spock.

    Í þessum fyrri hluta af tveimur talar Franz um Músíktilraunir, rokksenuna og hvernig hún var þegar hann var að stíga sín fyrstu skref, upphaf Dr. Spock og Ensími, þátttöku í Söngvakeppni Sjónvarpsins og síðast en ekki síst mjög áhugaverðar tilraunir til markaðssetningar sem vöktu athygli almennings, fréttafólks og lögreglunnar.

    Þetta er fyrri hluti af spjallinu við Franz Gunnarsson.

    Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    47 min

About Popparasögur

From the publisher's feed

Hlaðvarp á léttu nótunum þar sem fjallað er um íslenska tónlist og rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.