Fréttir dagsins

20.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn í morgun á heimili sínu í Sandringham í Norfolk. Hann er grunaður um misferli í opinberu starfi.
Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Honum var gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann segir þakklátur því að réttlætið hafi náð fram að ganga í málinu.
Gedirninas Saulys, litháískur maður, hefur verið sakfelldur fyrir að meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samlanda hans á Kiðjabergi í Grímsnesi í apríl 2024. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi í Landsrétti í dag.
Landsréttur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í níu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Hann hlaut ára dóm í héraði, áfrýjaði sjálfur og Landsréttur þyngdi dóminn um eitt ár.
Skipulagsstofnun verður lögð niður og verkefni hennar flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) eftir að Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í dag.
Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík. Lögin gera það að verkum að þeir Grindvíkingar, sem fluttu lögheimili sín í kjölfar rýmingar þann 10. nóvember 2023, geta nú valið hvort þeir kjósi í nýju sveitarfélagi í kosningum í vor eða í Grindavík.
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) segir það þyngra en tárum taki að börn sem eru í viðkvæmri stöðu þurfi að þola ofbeldi, eins og menn sem dvöldu í Bakkakoti á barnsaldri hafa lýst. Hún tekur undir orð Braga Guðbrandssonar, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, að aukið fjármagn myndi hjálpa við að leysa ýmis vandamál, en fleira þurfi til.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins