Fréttir dagsins

21.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Breska ríkisstjórnin íhugar að leggja fram frumvarp sem felur í sér að Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi Bretaprins, verði sviptur erfðarétti sínum að bresku krúnunni þegar yfirstandandi lögreglurannsókn á máli hans er lokið.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi ekki haft vald til að setja einhliða tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra. Trump lagði tollana á með vísun í neyðarlög um efnahagsmál sem voru sett árið 1977 en eins og nafnið gefur til kynna átti aðeins að nota þau í neyðartilvikum.
Tveir starfsmenn einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) greindust með berklasmit við skimun á starfsfólki stöðvarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í.
EFTA-dómstóllinn hefur úrskurðað að lögsaga samningsins um Evrópska efnahagssvæðið nái til landgrunns EES-ríkjanna Noregs og Íslands, en ekki aðeins landsvæðis, landhelgi og efnahagslögsögu, eins og norsk stjórnvöld hafa haldið fram.
Dæmi eru um að börn félagsráðgjafa geti ekki gengið ein heim, verið ein heima og séu með svokallaðar krækjur á sínum síma sem sýni lögreglu að þegar þau hringi þurfi að bregðast strax við. Rúmur helmingur félagsráðgjafa greinir frá því í nýrri könnun að hafa verið beittir ofbeldi í starfi og um þriðjungur að þau óttist um fjölskyldur sínar og sérstaklega börn.
Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins