Fréttir dagsins

22.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Haraldur Sigurðsson, betur þekktur sem Halli, er látinn, á 84. ári. Hann lést 18. febrúar eftir nokkur veikindi. Greint er frá andláti Haraldar í Morgunblaðinu í dag.
Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hefur verið slitið. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Skaga sem send var út síðdegis.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í heiminum úr tíu prósentum í fimmtán. Hann greinir frá á Truth Social.
Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo vann sögu­legan sigur í fimmtíu kíló­metra skíðagöngu karla á Vetrarólympíu­leikunum í dag. Þetta voru sjöttu gull­verð­laun Klæbo í jafn­mörgum greinum á leikunum og slær hann þar með met yfir flest gull­verð­laun á einum og sömu Vetrarólympíu­leikunum.
Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall í Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins.
Frank Booker eldri er látinn 61 árs gamall að aldri. Sonur hans, Frank Aron Booker, greinir frá andláti föður síns núna í morgun.
Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins