Í fréttum er þetta helst
Maðurinn sem var skotinn til bana við Mar-a-Lago, glæsihýsi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, í dag var 21 árs gamall og hafði nýlega stofnað fyrirtæki sem sérhæfði sig í handteiknuðum listrænum myndum af golfvöllum.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði um kvöldmatarleytið að slökkva sinueld sem kviknaði við Elliðavatn síðdegis. Í fyrstu var talið að ekki væri mikill eldur og var þá einn slökkviliðsbíll sendur á staðinn til að kanna aðstæður. Fljótt kom í ljós að þetta var mikill eldur. Fljótt var búið að senda alla slökkviliðsmenn á vakt að berjast við eldinn og kalla út aukamannskap.
Glæpaforinginn Rubén Nemesio Oseguera, sem var betur þekktur sem El Mencho, lést fyrr í dag eftir að hafa verið skotinn í bardaga við Mexíkóska herinn.
Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í.
Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir í viðtali við Jeremy Bowen á BBC að Rússlandsforseti hafi hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum.
Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.