Fréttir dagsins

24.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Hópur þjóðarleiðtoga, þar á meðal Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, eru komin til Kyiv, höfuðborgar Úkraínu, þar sem þess verður minnst í dag að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar gerðu allsherjarinnrás í landið. Þetta er í annað skiptið sem Kristrún kemur til Kyiv, en hún var fyrir réttu ári síðan.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins áætlar að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Á svo stórum fleti kæmust fyrir 45 fótboltavellir af viðurkenndri stærð. Sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varar við áframhaldandi eldhættu.
Sálfræðileg aðstoð, rannsókn á meðferðar- og vistheimilum, möguleikar á sanngirnisbótum og aukið eftirlit með fósturráðstöfunum eru verkefni sem Stjórnarráðið hefur þegar komið í farveg eftir umfjöllun Kveiks um brotalamir á vistheimilinu Bakkakoti.
1.700 manns eiga flugmiða í ferðir Icelandair sem var aflýst vegna óveðurs í New York í Bandaríkjunum í gær og í dag. Tveimur ferðum til New York var aflýst í gær og í dag aflýsti Icelandair tveimur ferðum til New York og einni til Boston.
Mikil öryggisgæsla er í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem statt er í Queretaro í Mexíkó og mætir heimamönnum í æfingaleik á miðvikudag. Fulltrúar KSÍ taka enga sénsa varðandi öryggi leikmanna og starfsfólks eftir ófremdarástand sem skapaðist í landinu í gær í kjölfar þess að mexíkóski herinn skaut einn helsta glæpaforingja landsins til bana.
Utanríkisráðherra segir ekki liggja fyrir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þrátt fyrir fréttir um að hún kunni að verða haldin strax í sumar. Hagsmunir þjóðarinnar ráði hvenær atkvæðagreiðslan fer fram.
Lundúnalögreglan hefur sleppt Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, gegn tryggingu. Hann var handtekinn á heimili sínu í gær vegna rannsóknar á meintu misferli hans í opinberu starfi.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins