Fréttir dagsins

25.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu.
Íslenska frumkvöðlafyrirtækið Kerecis mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands. Um er að ræða skatt vegna kaupa Coloplast, móðurfélags Kerecis, á hugverkaréttindum dótturfyrirækisins.
Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús þar sem hann er nú staddur á Tenerife. Ástæðan er sýking og vökvaskortur en að öðru leyti er ástand konungsins gott.
Samgöngustofa hefur ógilt skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum sem einn þjónustuaðili framkvæmdi árið 2025 í framhaldi af auknu eftirliti. Ákvörðunin byggir á frávikum sem komu í ljós við nýlega útttekt.
Gló stuðningsfélag hefur ekki fengið áframhaldandi styrki til aukaverkefna á vegum Reykjadals fyrir næstkomandi sumar. Ekkert verður því af svokölluðum Ævintýrabúðum og Vinahópum í sumar.
Miðflokknum fatast flugið og Sjálfstæðisflokkurinn nær vopnum sínum í nýrri könnun Maskínu. Niðurstöðurnar voru birtar í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en meðal annarra tíðinda eru þau að Píratar mælast í þetta skiptið með meira fylgi en Flokkur fólksins.
Lögreglan á Suðurnesjum auk lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biðlar til vegfarenda um að taka ekki óþarfa áhættu og fara ekki af stað á vanbúnum bílum þar sem spáð sé snjókomu víða á suðvestanverðu landinu á morgun með vetrarfærð. Þá er fólk hvatt til að fylgjast vel með færð og veðurspá.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins