Í fréttum er þetta helst
Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum.
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu vegna talsverðrar eða mikillar snjókomu.
Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir til skoðunar að færa hluta af starfsemi göngudeildar spítalans í annað húsnæði. Stöðugt verði að vinna að nýjum úrræðum. Langan tíma taki að hrinda þeim í framkvæmd og þegar þau eru tilbúin til notkunar hafi mikið bæst í hóp þeirra sem spítalinn verður að þjónusta.
Demókratar saka ríkisstjórn Donalds Trumps um mestu yfirhylmingu í sögunni vegna nýrra upplýsinga um óbirt gögn í Epstein-málinu.
Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar krónprins Noregs, segir að þó að hann eigi í vandræðum með skap sitt hafi hann aldrei beitt nokkurn mann ofbeldi. Hann segir framburð fyrrverandi kærustu sinnar um samband þeirra ekki réttan.
Tólf starfsmönnum var sagt upp störfum hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að uppsagnirnar séu til að auka skilvirkni og efla lykilþætti í starfseminni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur úrskurðað grískan karlmann sem grunaður er um að hafa ráðið portúgölskum manni bana í Kópavogi, í áframhaldandi gæsluvarðhald.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.