Fréttir dagsins

27.02.2026 - Fréttir dagsins


Listen Later

Í fréttum er þetta helst
Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík.
Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar, eftir að hafa einnig mælst 5,2 prósent í janúar.
Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing.
Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Dóra skipti yfir í Samfylkinguna úr Pírötum í lok síðasta árs.
75 óskilorðsbundnar fangelsisrefsingar fyrndust í fyrra og 98 árið þar á undan. Vel á áttunda hundrað bíða nú refsivistar. Fangelsin eru yfirfull, segir forstjóri Fangelsismálastofnunar. 84% þeirra sem hófu gæsluvarðhald í fyrra voru erlendir ríkisborgarar.
Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum.
Skólahald í öllum tíu árgöngum Ölduselsskóla í Breiðholti í Reykjavík hefur verið fellt niður á morgun með skömmum fyrirvara með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi. Foreldrar barna í skólanum skilja hvorki upp né niður og velta fyrir sér hvað hafi eiginlega komið upp á.
Takk fyrir í dag, sjáumst á morgun.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Fréttir dagsinsBy Fréttir dagsins