Sign up to save your podcasts
Or

Arnar Dan Kristjánsson leikari, Axel Ingi Árnason tónskáld, og Áslaug Kristjánsdóttir sálfræðingur mæta í hljóðverið til Birnu og Baldurs til að ræða alla anga föðurhlutverksins. Sagt er að allt breytist við það að verða foreldri; sambandið við eigin foreldra, sambandið við makann og oft neyðist fólk til þess að horfast í augu við eigin bresti samhliða barnauppeldinu.
Í þættinum eru andstæðurnar í kringum föðurhlutverkið ræddar; hefðbundnar væntingar samfélagsins til feðra og kröfur nútímans um aukna mýkt og þátttöku. En þau ræða líka rómantík, kynlíf, fótbolta og keppnisskap og velta fyrir sér hvort foreldrar nútímans séu mögulega alltof duglegir.
Svellið er afrakstur rýnihópavinnu sem UN Women á Íslandi lagðist í með aðstoð sérfræðinga árið 2024 og hlaut styrk frá félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytinu sama ár.
By HljóðkirkjanArnar Dan Kristjánsson leikari, Axel Ingi Árnason tónskáld, og Áslaug Kristjánsdóttir sálfræðingur mæta í hljóðverið til Birnu og Baldurs til að ræða alla anga föðurhlutverksins. Sagt er að allt breytist við það að verða foreldri; sambandið við eigin foreldra, sambandið við makann og oft neyðist fólk til þess að horfast í augu við eigin bresti samhliða barnauppeldinu.