Á ég að hend'enni?

31.Á mörkum raunveruleikans (Macbeth)


Listen Later

Halldóra fékk eiginmann sinn til að nálgast Alheimsskjalasafnið  eða Akashic skjölin í hugleiðslu og má segja að þau hafi bæði lent í töluverðum ógöngum því þegar þangað er komið er nauðsynlegt að stimpla sig út því annars er maður fastur milli tveggja heima. Steinunn segist svo jarðbundin að hún festist frekar í Napoleonsskjölunum eftir Arnald Indriðason. Fyrirvaralaust breytist Halldóra í söngvarann Jacques Brel og í kjölfar þess ræða þær stöllur handhafa sannleikans og það að lærðir benda á að oft rugli fólk skoðunum sínum saman við sannleikann, Það skyldi þó aldrei vera. Þær skella sér báðar í hlutverk hinnar metnaðargjörnu lafði Macbeth, nokkuð sem leikhúsunnendur ættu að láta fram hjá sér fara.

Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki - Icelandair - Ó. Johnson & Kaaber - Sjáðu Gleraugnaverslun

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á ég að hend'enni?By Á ég að hend'enni?