Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Download on the App Store

Á ég að hend'enni? episodes

  • Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025

    Send us Fan Mail

    Tímabær andlátsfrétt  en afskaplega eldheitur útfararstjóri;)

    Á ég að hend´enni kveður því hér, í bili að minnsta kosti, því nú leita vinkonurnar  á ný mið eftir ríflega 70 þætti sem allir eru aðgengilegir á öllum helstu streymisveitum. 

    Í lokaþættinum réða þær til sín útfararstjóra enga aðra en manneskjuna sem þekkir og jarðar þær vitanlega best, æskuvinkonu beggja, Möggu Örnólfs sem er heimsfrægur Sykurmoli og handritshöfundur með meiru! 

    Hlustendum og áskrifendum þökkum við  innilega fyrir samferðina því án ykkar hefði þetta ekki verið hálft gaman en þetta er ekki BLESS heldur HALLÓ.  Bestu kveðjur Dóra Wonder og Steinunn Ólína

    Takk fyrir samstarfið:  Eldum Rétt, Mama Veitingahús, Icelandair, Íslandsbanki, O.Johnson & Kaaber, Hagkaup, og auðvitað fá líka þakkir allir vinir og vandamenn sem fylgdust misspenntir en styðjandi við uppátækið.

    Support the show

    1 hr 14 min
  • 72. Braselíski frumskógurinn og íslenska lækningakonan Ravi

    Send us Fan Mail

    Á veitingastaðnum Mama áttu þær Halldóra og Steinunn óvæntan fund við lækningakonuna Raví Jenný en hún er nýkomin til Íslands eftir 11 mánuða dvöl með Huin- Kuin þjóðflokknum.
    Raví segir okkur frá ferðum sínum, hvers hún leitaði og hvera hún var vísari. Kannski er lykillinn að okkar eigin plöntu og alþýðulækningamenningu fundin með hjalp þjóða sem enn hafa varðveitt lækningavisku þá sem hefur lifað með manninum frá örófi alda. langt áður en nokkrum datt í hug að eitthvað yrði til í framtíðinni sem héti spítali hvað þá heibrigðisfræði.
    Frábær gestur og fróður. Góða skemmtun!

    Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu

    Support the show

    43 min
  • 71. Áramótaþáttur III. og síðasti hluti

    Send us Fan Mail

    Þessi III. hluti Áramótaþáttarins er rúsínan í pylsuendanum! Hér fer stuðið fram úr hófi og auðvitað fer nánast allt úr böndunum. Gleðilegt ár kæru hlustendur!

    Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu

    Support the show

    49 min
  • 70. Áramótaþáttur II.hluti

    Send us Fan Mail

    Þessi II. hluti Áramótaþáttarins fer einnig  fram á uppáhaldsstaðnum, Mama, í Bankastræti og þar taka þær Steinunn Og Halldóra á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Nú æsast leikar! Fegurðardrottningar, völvur, lögmenn, kærastar, söngkonur og atvinnu álfkonur mæta á svæðið!



    Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu

    Support the show

    45 min
  • 69. Það eru að koma áramót 25/26 - Spjallað við merkar konur I. hluti

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti sitja vinkonurnar á sínum uppáhaldsstað, Mama, í Bankastræti og taka á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin.  Í þessum fyrsta hluta eru gestir enginn annar en Nikkó, eða Nicolas Pétur Blin eiginmaður Halldóru sem  er neyddur í stutt viðtal en svo kemur engin önnur en Esjudóttirin vitra, Linda Mjöll Stefánsdóttir, drottningin á Skrauthólum, sem nemur og les fjöllin og árnar,  hafbrimið og hvísl vinda háloftanna og þær skrafa um landið okkar fagra, tungumálið, áramót, það að vera dreki og gæta þess hvert halinn mann slæst eð aí hvað eða hvern... Ingibjörg Magnadóttir myndlistarmaður og sprenglærður þerapisti sest við hringborðið og  þá tekur sköpunarverkið sem þátturinn allur er bæði nýjar og spennandi vendingar. Við áramót er að mörgu að hyggja, hverju á að sleppa og hvað skal varðveitast áfram í huga og hjarta!

    Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu gleraugnaverslun

    Support the show

    45 min
  • 67. Gleðilegur jólaþáttur 2025

    Send us Fan Mail

    Það eru lúnar vinkonur sem fara yfir jólaundirbúninginn sem virðist vera lítill sem enginn en þó, Halldóra, keypti sófa og Steinunn Eldar rétt um jólin í fyrsta sinn!
    Annars er sagt frá tilurð skemmtilegasta skötuboðs aldarinnar sem fram fór á Þorláksmessu 2025. Geta líksnyrtar gefið ráð gegn ólykt, Steinunn hringir í besta útfararstjóra landsins og fær hjá honum góð ráð! Börnin, mennirnir og hvað vilja þeir eiginlega í jólagjöf!

    Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun

    Til að gerast áskrifandi þarf að fara á tal.is/hendenni

    Support the show

    46 min
  • 66. Virk-ilega farið yfir víðan völl

    Send us Fan Mail

    Steinunn vill gjarnan vinna við að ferðast um heiminn og stofna fyrirtæki sem hitir Tent-Living en Dóra segir þetta bara vera glorified tjaldútilegu. Varnarkerfi líkamans er til umræðu en er kerfi eins og hænsnanet

    Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun

    Fullan þátt má hlusta á hér: https://feeds.buzzsprout.com/2419952.rss

    Support the show

    10 min
  • 65. Dauði hjartans viðtal við Jared Wholeheart

    Send us Fan Mail

    Í  þessum þætti fá Halldóra og Steinunn til sín enn að leiðbeinendum Halldóru, Jared Wholeheart, en hann er sprenglærður ráðgjafi og hefur átt litríkan starfsferil. Einnig ræða þær um andlega vakningu, dauða hugans og hjartans á þeirri leið. Hvað sambönd geta kennt okkur um okkur sjálf og um hið magnaða samspil hins kvenlega og karlmannlega í fari hvers og eins. Hvernig getum við lært að vinna með eigin orku og finna jafnvægi í því  karlmannlega og kvenlega sem býr í öllum. Konur þurfa gjarnan að stíga inn í karlmannlega framkvæmdaorku en hjartað má ekki vanta. Og auðvitað verjum við tíma í að skýra nýjasta áhugamál Dóru eða light/dark feminine og light/dark masculine.

    Allan þáttinn fyrir þá sem kjósa að gerast áskrifendur má finna hér: https://tal.is/hendenni

    Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun

    Support the show

    11 min
  • 64. Steinn um Stein frá Steini til Steins (Steinn Steinarr)

    Send us Fan Mail

    Halldóra hefur tekið upp huggulegan lífsstíl og fræðir Steinunni um þær raunir sem hún hefur komist í við að gera hýbíli sín að tímaritaverðu ljósmyndaefni. Magga Erla Húsahvíslari kemur til sögunnar en hún kemur og galdrar inn á heimilum með því að færa til húsgögn, færa til myndir og leikur sér og endurnýtir eigur fólks sem fyrir er á staðnum - Kona með auga eins og Steinunn segir.  Fyrrilíf eru til umræðu enda varð Steinunn fyrir þeirri merkilegu reynslu að reyna það líkamlega að hafa verið skopparakringla í fyrra lífi. Draumar um nýjar útflutningsvörur eru reifaðir og svo sökkva þær stöllur sér ofan í nokkur ljóð Steins Steinarrs sem mörg eru svo óheyrilega skemmtileg.

    Support the show

    47 min
  • 63. Einsetukonur og tækifærissinnar

    Send us Fan Mail

    Steinunn ver sig fimlega þegar Halldóra reynir að fá hana til að axla ábyrgð á gengdarlausri leti sinni og vinnuframlagsleysi. Halldóra er langþreytt á gangi mála og reynir að ala vinkonu sína upp án árangurs. En Human Design þeirra vinkvennanna er undir og ýmislegt er gaman að skoða í kortum beggja enda eru þær báðar í því sem þær kalla ´transision´ án þess að þær skýri það nokkuð frekar.  En stöllurnar eru að leita a vit nýrra ævintýra á sama tíma og móðurhlutverkið er að hristast af þeim. Þetta er umhleypingatími í lífi beggja og vaxtarkippirnir hríslast um stúdíóið.

    Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. 
    Við kunnum að meta stuðninginn!
    Ást og friður

    Til að gerast áskrifandi og sérlegur stðningsmaur hlaðvarpsins:  tal.is/hendenni

    Support the show

    11 min

About Á ég að hend'enni?

From the publisher's feed

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman…