Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Í þáttunum er leikin sígild tónlist úr ýmsum áttum. Tíndir eru saman fróðleiksmolar um tónlistina og höfunda hennar og skyggnst í söguna á bak við verkin.... more
FAQs about Á tónsviðinu:How many episodes does Á tónsviðinu have?The podcast currently has 334 episodes available.
October 10, 2024OktóberÍ þættinum verða flutt tónverk sem eiga að lýsa októbermánuði. Þar má nefna októberkaflann úr ballettinum "Tólf með póstvagninum" eftir Knudåge Riisager, kaflann "Októberhátíðin" úr tónaljóðinu "Rómverskar hátíðir" eftir Ottorino Respighi og jazztónsmíðina "Undir októberlaufi" sem Carl Möller samdi við ljóð eftir Matthías Johannessen. Einnig verður fluttur söngurinn "October doth before us go" eftir Christian Walter Catsanos, en þar er október lýst sem vormánuði því árstíðirnar á suðurhveli jarðar eru þveröfugar við árstíðir hér á norðurhveli. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson....more52minPlay
September 26, 2024Anton BrucknerÁ þessu ári eru liðin 200 ár frá fæðingu tónskáldsins Antons Bruckner, en hann fæddist í þorpinu Ansfelden í Austurríki 3. september 1824. Í tilefni af þessu verður þátturinn helgaður Bruckner að þessu sinni. Hann var eitt af merkustu tónskáldum 19. aldar, en samdi einkum verk af tvennu tagi: annars vegar sinfóníur, hins vegar trúarleg kórverk. Í þættinum verða leiknir kaflar úr sinfóníu hans nr.4 og strengjakvintett í F-dúr auk stuttra söngverka. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson....more52minPlay
FAQs about Á tónsviðinu:How many episodes does Á tónsviðinu have?The podcast currently has 334 episodes available.