Í Tengivagninum í dag veltum við fyrir okkur umhverfsmálum og listum með listahópnum Endur Hugsa, en í sumar stendur hópurinn fyrir fyrirlestrum og viðburðum í Gerðarsafni.
Við heyrum brot úr viðtali frá árinu 1975 við rithöfundinn Jakobínu Sigurðardóttur um bók hennar Snaran, en hún er bók vikunnar á Rás 1.
Við kynnum okkur svo einkasýningu bandarísku hugmyndalistakonunnar Adrian Piper sem nú stendur yfir í nútímalistasafninu í New York, MoMA, en sýningin er stærsta einkasýning lifandi listamanns sem haldin hefur verið í safninu. Sýningin tekst á við eldfim umræðuefni á borð við kynþætti og rasisma. Sverrir Norland, rithöfundur, kíkti á sýninguna og segir frá upplifun sinni.