Tengivagninn

Tengivagninn

By RÚVArts
Download on the App Store

Tengivagninn episodes

  • Heyrðu mig, Jose Luis er Andervel, Anaxagóras og íslenskan
    Við byrjum þáttinn á sagnfræðilegum fróðleik í boði Illuga Jökulssonar, sem segir okkur frá Anaxagórasi, fæddum 500 fyrir Krist, sem bjó til kenningar um meðal annars, sólmyrkva.
    Svo er rætt við tónlistarmanninn Andervel. Nýlega kom út platan Ironclad and Palm trees. Bárujárn og pálmatré. Þetta er fyrsta plata tónlistarmannsins en titillinn er annars vegar vísun í bárujárnið sem klæðir húsin í Reykjavík og hins vegar pálmatré sem stóð í garði ömmu hans í Mexíkó, þar sem hann ólst upp.
    Við hittum mæðgurnar Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Diljá Sveinsdóttur, sem eru að klára að undirbúa sig undir frumsýningu á nýju dansverki, Heyrðu mig, sem verður sýnt á Ásmundarsal. Sveinbjörg er höfundur verksins, og er það samið um líf þeirrar Diljáar, sem dansar í verkinu. Diljá fæddist heyrnalaus en fékk síðar heyrn með aðgerð og heyrnatækjum og er sú lífsreynsla kveikjan að verkinu.
    Þórhildur Tinna Sigurðardóttir flytur sinn síðasta pistil um tenginguna milli Írlands og Íslands, og sömuleiðis Arndís Þórarinsdóttir, um íslenskuna.
    1 hr 25 min
  • Almyrkvi í beinni á Echolalia
    Við verjum aðdraganda almyrkvans í hópi tónleikagesta á Echolalia, reivi og listahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Sólmyrkvahátíðin er skipulögð af Björk og er samstarf við Listasafn Íslands, en þar stendur uppi sýning á verkum hennar með sama nafni, og Smekkleysu, sem fagnar 40 ára afmæli á árinu.
    Sólmyrkvinn var ekki sjáanlegur frá Víðistaðatúni, en við upplifum myrkrið, stystu nótt lífs okkar, í grennd við sviðið, þar sem Björk steig svo á svið strax og hafði birt aftur, og hóf að spila sitt sett við mikinn fögnuð tónleikagesta.
    1 hr 49 min
  • Örn Karlsson og Villistrákarnir, hinsegin kvikmyndir, bókameðmæli úr Grafarvogi
    Í tilefni nýafstaðinna Hinsegin daga og Pride, verður hinseginleikinn þráður í þætti dagsins. Við erum með hugann við bókmenntir og kvikmyndir.
    Við hefjum þáttinn á viðtali sem Kristján Guðjónsson tók við Örn Karlsson, myndlistamann og þýðanda. Þýðing Arnar á bókinni Villistrákar eftir William S. Burroughs kom nýverið út, en hún var áratugi í bígerð. Bókin segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, mælir með nokkrum höfuðverkum hinsegin kvikmyndasögu, og dregur fram þá hinsegin leikstjóra sem hafa skarað fram úr.
    Að lokum heimsækir Pétur Magnússon bókabúðina í Hverafold í Grafarvogi, og fær bókameðmæli frá eiganda hennar Pétur Viðarsson.
    1 hr 17 min
  • Evrópa, yfirnáttúrulegir staðir, nýlendusaga í myndlist
    Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, ræðir við okkur um Evrópu. Hvað er Evrópa? Hvenær varð hún til? Hvaða jarðvegur var til staðar fyrir stofnun Evrópusambandsins? Þó forn Grikkir hafi fyrstir gefið þessu landfræðilega og menningarlega afmarkaða svæði fyrstir nafn þá skoðum við söguna sem er nær okkur í tíma í leit að svörum.
    Þórhildur Tinna Sigurðardóttir flytur pistil um tengsl Írlands og Íslands, að þessu sinni skoðar hún yfirnátturlega staði, annars heims upplifanir og goðsagnir.
    Svo heyrum við af sýningu sem nýlega var opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri, sýning sem heitir Sýni. Þessi sýning er sprottin af samstarfi listamanna frá Íslandi, Grænlandi, Danmörku og Jamaíku – og fjallar meðal annars um nýlendusögu þessara þjóða og tengingar þeirra við þrælahald. Meðal þeirra listamanna sem standa fyrir sýningunni er Bryndís Björnsdóttir, við ræðum við hana.
    1 hr 46 min
  • Europe 2031, tomi g og feminísk þýðing á Ódysseifskviðu
    Europe 2031 er skálduð sviðsmynd um framtíð Evrópu ef álfan breytir ekki um stefnu í gervigreindarmálum. Framtíðarsýn höfunda er svört. Evrópa verður vanmáttugur eftirbátur Bandaríkjanna og Kína og Evrópubúar ófærir um að verja gildi sín og viðhalda hinu evrópska velferðarkerfi. En er eitthvað til í þessari framtíðarsýn? Við ræðum málin við Halldóru Mogensen, sem á sæti í vísindanefnd Evrópusambandsins um gervigreind.
    Við heimsækjum líka unga tónlistarmanneskju sem heitir tomi g og flytjum pistil frá Guðrúnu Úlfarsdóttur um feminíska þýðingu Emily Wilson á Ódysseifskviðu.
    1 hr 44 min
  • Heimsókn til Maó og kattarins Kókos, Hinsegin dagar, Skálda, lestur
    Maó Alheimsdóttir, skáld, leiðsögumaður, tungumálakennari og kattaeigandi, tekur á móti okkur og kynnir okkur fyrir kettinum sínum Kókos. Kókos er lítil og sæt læða, sem kann best við sig uppi á skáp. Stundum kíkir hún út í garð og leikur sér þar. Hún á sér nokkuð dramatíska upprunasögu, en hefur það ansi gott í dag.
    Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, að þessu sinni er hún að velta fyrir sér lestri í nútímanum.
    Flettum í dagskrá Hinsegin daga, sem voru settir í dag og ræðum við Önnu Gyðu Sigurgísladóttur og Uglu Stefaníu Kristjönudóttur, sem taka báðar þátt í dagskránni í ár.
    Kíkjum líka í bókabúðina Skáldu á Vesturgötu og fáum meðmæli frá bóksalanum Einari.
    1 hr 48 min

About Tengivagninn

From the publisher's feed

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.