Lilý Erla Adamsdóttir setti upp sýninguna Skrúðgarður í Listasafninu á Akureyri. Lilý talar ýmist um verkin sín sem loðin málverk eða dansandi útsaum. Hlynur Hallsson sýningarstjóri ræðir hér við Lilý um sýninguna og verk hennar.
Hlaðvarp Akureyrarbæjar, 17. þáttur. Rætt er við Sigríði Stefánsdóttur sem var lengi kennari, bæjarfulltrúi og stjórnandi hjá Akureyrarbæ en situr nú í öldungaráði sveitarfélagsins.
Þóra Sigurðardóttir er sýningarstjóri sýningar á verkum Kristínar Katrínar Þórðardóttur Thoroddsen - Málverk og ljósmyndir. Þóra segir frá sýningunni, lífshlaupi og verkum Kristínar í þessum hlaðvarpsþætti Listasafnsins.
Guðrún Pálina Guðmundsdóttir er annar tveggja sýningarstjóra sýningar á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar - Lengi skal manninn reyna. Hún segir hér frá Þorvaldi og sýningunni í samtali við Hlyn Hallsson safnstjóra Listasafnsins.
Hólmkell Hreinsson, Hrönn Björgvinsdóttir og Þórður Sævar Jónsson sem öll starfa á Amtsbókasafninu á Akureyri, ræða brakandi ferskar bækur sem þau hafa nýlega lesið. Umsjónarmaður þáttarins er Berglind Mari Valdemarsdóttir.
Berglind Mari Valdemarsdóttir og Hrönn Björgvinsdóttir, sem báðar starfa á Amtsbókasafninu á Akureyri, spjalla um hringrásarhagkerfið, óhefðbundinn safnkost og græna viðburði.