Gleymdar perlur áttunnar

Andri Freyr Viðarsson


Listen Later

Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
Gestur: Andri Freyr Viðarsson.
Eftir netta Perlupásu snúum við aftur með geggjaðan þátt, Andri karate er mættur í Gleymdar Perlur Níunnar!
Þetta er rokkaðasti þátturinn til þessa og hér er boðið upp á þykkustu indie sósuna.
Andri lætur allt flakka, glæpaferillinn í Skífu og Senubúðunum, heimsókn frægu indie stjörnunar heim til drengsins þar sem horft var á þýskt þungarokk og endalausar safaríkar sögur.
Það er oft talað um að fólk eigi ekki að gera upp á milli barna sinna en þessi þáttur verður mögulega ekki toppaður, það þarf allavega mikið til.
Þetta er skilduhlustun fyrir rokk og indie fólkið en fyrir aðra..... skildu hlustun (það er hægt að spóla bara yfir lögin ef þau heilla ekki).
Þátturinn tók heila viku í upptöku þar sem þáttarstjóri og gestur skutust í hljóðver milli verka þegar tími gafst... þetta er líka lang lengsti þátturinn.
Ef þetta er ekki belgískt gæða eyrnakonfekt í bæði eyru þá er það ekki til.
Ég segi bara, góða skemmtun
Doddi
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Gleymdar perlur áttunnarBy RÚV