Bjarni Jónasson kennari, sveitarhöfðingi og samvinnumaður í Húnaþingi varð hugfanginn af ungri stúlku, Önnu Sigurjónsdóttur og sendi henni fyrsta bónorðsbréfið árið 1920. Hann gafst ekki upp þrátt fyrir afsvar og að lokum tókst honum að vinna hjarta hennar. Bréfin hans Bjarna eru varðveitt af afkomendum þeirra hjóna og gefa, auk fjölda dagbóka Bjarna einstaka innsýn í líf ungs manns á fyrstu áratugum tuttugustu aldar. Anna Hinriksdóttir yfirþýðandi og dóttur dóttir Bjarna og Önnu Sigurjónsdóttur kom á stefnumót með afa sínum. Í þættinum eru lesnir bútar út bréfum og dagbókum Bjarna. Þeir eru úr útvarpsþættinum Ástin á tímum ömmu og afa sem Anna Hinriksdóttir vann fyrir RÚV. Lesari er Felix Bergsson. Umsjón: Margrét Blöndal.