Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Einn heitir Atli, hinn heitir Elías og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inní, útúr og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi.... more
FAQs about Atli & Elías:How many episodes does Atli & Elías have?The podcast currently has 58 episodes available.
August 18, 202246. Þáttur - & Baldvin fokking ZetaLoksins loksins loksins bjóðum við hinum umtalaða Baldvini Z í hlaðvarpið! Leikstjóri, trommari, hraðskákmeistari á Akureyri í unglingaflokki og skítsæmilegur golfari en fyrst og fremst gamall og góður vinur. Við förum um víðan völl og ruglum saman ártölum, kvikmyndum og Line Producerum í þessari epísku yfirferð um gamla tíma, framtíðina og jaðarinn þar á milli....more1h 52minPlay
June 29, 202245. Þáttur - Cannes prógram ungra framleiðandaDjöfullega langur þáttur (sem á það alveg skilið) um prógram ungra famleiðanda á Cannes Film Festival sem Atli tók þátt í. Margt annað er rætt en hér er þetta prógram eins og það leggur sig.Hinn almenni Einar Pétursson lærir allt sem Atli lærði í þessu prógrami við það að hlusta á þennan þátt....more1h 49minPlay
May 17, 202244. Þáttur - Vegurinn til Cannes er olíuborinnMögulega er kominn tími til að horfast í augu við að þetta sé mánaðarlegt podcast en ekki vikulegt. Fyrsta skrefið í átt að betrun er að viðurkenna vanmátt sinn (eða svo höfum við allavega heyrt). Atli er á leiðinni á kvikmyndahátíðina í Cannes og Elías segir okkur loksins frá seríunni sinni sem hafa prýtt innantóm loforð hans síðastliðna mánuði (er annað skrefið ekki annars að bæta upp fyrir gjörðir sínar?). Verkefni Elíasar hlýtur Eddutilnefningu og gullkorn dagsins snúa að stórvægilegu smygli húsmæðra í Fossvoginum....more1h 16minPlay
April 06, 202243. Þáttur - Ungur framleiðandi á CannesAtli var valinn á námskeið ungra framleiðanda á kvikmyndahátíðinni í Cannes og við hringjum í Dag Benedikt leikstjóra, ljósamann og handritshöfund og spyrjum hann spjörunum úr en hann sótti sama prógramm 2018. Einnig ræðum við Stockfish og misheppnaða tilraun Elíasar við að koma vel fram í útvarpsviðtali. Til að toppa þetta fer Atli með undurfagurt ljóð í Gullkornum dagsins.PS. Því miður fundum við ekki þáttinn sem við vitnum í, um Berlinale shooting stars prógramið hans Atla, en það er vegna þess að við erum ömurlegir í að skrifa nákvæmar lýsingar á hverjum þætti eins og við erum að skrifa hér....more56minPlay
March 10, 202242. Þáttur - Engin þöggun í skúrnumDrengirnir hittast aftur eftir langa fjarveru. Atli talar EKKI um vinnutörn sem hann var að ljúka við hjá Truenorth en heit umræða á Facebook-síðu kvikmyndagerðarfólks er krufin til mergjar. Hvað er til bragðs ef verkefnið manns er sett á ís?...more1h 6minPlay
March 04, 202241. Þáttur - Sá úreltiTekinn upp á óræðum tíma í janúar en gefinn út í mars. Þetta gæti verið nýtt met í frestunaráráttu Atla. En hann er þó með ágæta afsökun í þetta skiptið. Verbúðin, Svörtu Sandar og svo margt margt fleira....more1h 8minPlay
December 13, 202140. Þáttur - 2021 í hnotskurnVið horfum aftur til Janúar 2021, og veltum fyrir okkur hvernig ár við sáum fyrir okkur í samanburði við það ár sem við fengum. Persónulegri þáttur svona rétt fyrir jól, og örlítil sjálfsást sem fylgir því að lesa lítil fanmail sem barst okkar -- Það í samanburði við póst sem Atli fékk frá stalker þegar Órói var ný og vinsæl mynd....more1h 20minPlay
December 03, 202139. Þáttur - Labbaðu upp á þetta fjallDrengirnir eru komnir aftur eftir alltof langa pásu. Elías hefur ferðast heimshorna á milli og smitaðist af Covid fyrir vikið á meðan Atli mætti seint á fyrirlestur Kvikmyndamiðstöðvar um umsóknarferlið þeirra. Strákarnir drulla EKKI yfir Ófærð og Atli segir frá erlendu tökuteymi sem gjörsamlega gekk frá honum....more1h 10minPlay
October 13, 202138. Þáttur - RIFF ’21: BlaðamannapassinnAlþjóðlega kvikmyndahátíð Reykjavíkur er í fullu fjöri á meðan við tókum upp þennan þátt, Eddu-styttur ársins búnar að finna sín heimili, og Atli og Elías eru aftur komnir í þægilegri stöðu bara tveir. Engir gestir. Bara þægindi....more1h 9minPlay
October 05, 202137. Þáttur - Ninna Pálma, Áratugur í bransanumLeikstýran Ninna Pálmadóttir fór strax að vekja athygli þó hún væri enn ekki útskrifuð úr Tisch School of the Arts með myndunum sínum Blaðberinn og Allir hundar deyja. En hún vann bæði Edduna og RIFF fyrir Blaðberann. Við ræðum við Ninnu um uppkomu hennar í bransanum og yfirþyrmandi drauma um að verða leikstjóri sama hvað það kostaði....more1hPlay
FAQs about Atli & Elías:How many episodes does Atli & Elías have?The podcast currently has 58 episodes available.