Augnablik í iðnaði

Augnablik í iðnaði

By IÐAN fræðslueturBusiness
Download on the App Store

Augnablik í iðnaði episodes

  • Maí er mánuður nýsköpunar á Íslandi
    Edda Konráðsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda Iceland Innovation Week er viðmælandi okkar í Augnablik í iðnaði. Hún segir frá dagskránni í ár sem er mjög viðamikil. Von er á metfjölda fjárfesta á viðburðinn í ár sem fer fram 14.-16.maí í Kolaportinu og er haldin í fimmta sinn. Hvert ár hafa Edda og hennar teymi aðlagað sig að aðstæðum í samfélaginu hverju sinni. Edda segir frá reynslu sinni og mikilvægi nýsköpunar.
    17 min
  • Fræðslustjóri að láni, með Guðrúnu Blandon mannauðsstjóra VHE
    VHE fór því nýlega í gegnum verkefnið Fræðslustjóri að láni. „Helstu markmið með verkefninu var að fá heildaryfirsýn yfir fræðsluþörfina og skipuleggja fræðslustarf framtíðarinnar“ segir Guðrún Blandon mannauðsstjóri.
    Hún mælir aukna starfsánægju hjá starfsfólki sem hún vill tengja beint við verkefnið.
    Þetta og margt fleira í þessu fræðandi og skemmtilega spjalli
    36 min
  • Erasmus+ ævintýri í Tallin, með Ástrósu Elísu Eyþórsdóttur bakara hjá Bláa lóninu
    Við útskrift úr bakaraiðn fann Ástrós fyrir faglegri þreytu og langaði í nýja reynslu sem myndi styrkja hana sem fagmann. Hún kynnti sér því Erasmus+ fyrir nýsveina og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Málin þróuðust þó þannig að hún endaði á því að fara til Tallin í Eistlandi og sér ekki eftir þeirri ákvörðun.
    Helen Gray leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni spjallar hér við Ástrósu um reynsluna af því að fara út til Tallin.
    22 min
  • Fræðslumál hjá Samkaupum, með Guðna Erlendssyni mannauðsstjóra
    Eva Karen Þórðardóttir hjá Effect ræðir hér við Guðna Erlendsson mannauðsstjóra Samkaupa.
    Mikil saga og menning er fyrir fræðslu hjá Samkaupum. Kaupmannsskólinn var rekinn eins og hefðbundinn skóli með staðbundnum námskeiðum sem nú hafa verið færð mikið til yfir í rafræna fræðslu. Covid hjálpaði til við að ýta undir umbreytinguna þó að vissulega hafi sú vinna verið hafin áður. Guðni segir Samkaup einnig vera í góðum samskiptum við Bifröst hvað varðar námsleiðir fyrir starfsfólk.
    37 min
  • Fræðslumál hjá Isavia, með Gerði Pétursdóttur fræðslustjóra
    Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík fær til sín margar milljónir gesta ár hvert. Það kallar á að starfsfólk viti nákvæmleg til hvers er ætlast af því og hlotið viðeigandi þjálfun. Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en hún hefur ásamt öflugu teymi byggt upp Isavia skólann síðan árið 2016.
    53 min
  • Tilskipun ESB um upplýsingagjöf í sjálfbærni, með Jennifer Schwalbenberg lögfræðingi
    Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærnimála hjá Iðunni ræðir hér við Jennifer Schwalbenberg lögfræðing um tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf og hvernnig hún á eftir að hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki.
    Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru varðandi m.a. kolefnisspor, loftlagsmál og starfsmannastefnu.
    22 min
  • Starfsemi Tækniseturs og nýsköpun, með Guðbjörgu H. Óskarsdóttur framkvæmdastjóra Tækniseturs
    Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Tækniseturs er hér í afar fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni. Tæknisetur byggir á fjögurra áratuga reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála. Það er öflugur samstarfsaðili í hagnýtum rannsóknar og þróunarverkefnum og býr yfir sérhæfðum búnaði og aðstöðu sem er gagnast sprotafyrirtækjum á sviði hátækni.
    28 min
  • Fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði, með Ragnheiði Björgvinsdóttur mannauðsstjóra
    Ragnheiður Björgvinsdóttir er hér í léttu og skemmtilegu spjalli við Evu Karen Þórðardóttur um fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður í vestur Evrópu og nær yfir 15% af Íslandi. Þjóðgarðurinn nær til átta sveitafélaga.
    Um 50 starfsmenn starfa við þjóðgarðinn allan ársins hring. Sumarið er svo mjög annasamur tími með 120 starfsmenn, sem dreifast út um allt land. Fræðslan er því ákveðin áskorun.
    27 min

About Augnablik í iðnaði

From the publisher's feed

Podcast by IÐAN fræðsluetur