Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
Gestur: Bergsteinn Sigurðsson
Í 18 þætti af Gleymdum Perlum Níunnar fáum við menningarvitann Bergstein í heimsókn.
Eðlilega má gera ráð fyrir menningarlegu gáfumannapoppi á hans lista.
Bergsteinn hóf níuna á Patreksfirði og bjó hann þar fyrstu ár áratugarins, hann er alinn upp á hármetal sem var að hverfa þegar núan heilsar.
Á unglingsárum dettur í hann körfuboltaáhugi enda 6. besti senter sunnanverðra vestfjarða og vaknaði í leiðinni áhugi hans á hip hop tónlist.
Allt þetta breytist þegar pilturinn flytur suður til þess að fara í skóla, brittpopp og rúllukragapeysur taka við keflinu af röppurum með dassi af trip hoppi og gáfumannapoppi.
Bergsteinn og hans gleymdu perlur níunnar