Share Bílar, fólk og ferðir
Share to email
Share to Facebook
Share to X
By Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.
5
11 ratings
The podcast currently has 41 episodes available.
Það var sérlega gaman að fá Jóhannes Árnason í heimsókn fyrr í dag, en hann hefur eiginlega alla sína ævi unnið við akstur bíla ýmiskonar. Jói er góður sögumaður eins og margir kolleka hans úr flutningabílabransanum og segir hér vel frá lífi og starfi sl ára.
Við þekkjum öll gulu hópferðabílana sem eru svo víða hér um borg á ferðinni. Vel merktir TEITUR og hér segir Harald Teitsson sonur Teits Jónassonar sögu pabba síns og fyrirtækisins sem hefur starfað í rúm 60 ár.
Strandamaðurinn Einar Indriðason mætti óvænt í heimsókn og auðvitað stukkum við niður í stúdeóið og tókum upp einn þátt. Einar hefur stundað akstur um langt skeið, ekið vöruflutningabílum og rútum ýmiskonar, þar á meðal eitt sumar með hinum eina sanna Guðmundi Jónassyni fjallabílstjóra. Skemmtilegur þáttur að mati þáttarstjórnanda, sem hefur ekki hlegið jafn mikið í langan tíma.
Fjallagarpurinn og frumherjinn Úlfar Jacobsen hóf snemma rekstur bíla til aksturs um hálendi Íslands. Var
Hér segir Hilmar Jacobsen sögu pabba síns og fjölskyldufyrirtækisins og það er ljóst að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Hópferða- og ferðaþjónustufyrirtækið Snæland Grímsson hf er rótgróið og gott fyrirtæki í alla staði. Byggir á langri sögu, formlega frá árinu 1945, en löngu áður voru eigendur þess farnir að vinna við bílarekstur ýmiskonar. Hallgrímur Lárusson annar eigenda fyrirtækisins í dag segir hér sögu þess og rifjar m.a. upp sögu langafa síns, sem var sá 12 hér á landi sem fékk bílpróf.
"Lífið er núna" segja þau hjónin Gunnar Valdimarsson og Lára Kristjánsdóttir, en þau hafa stundað ferðalög og útivist um um langt skeið, þar sem skíði, sleðar, skór og ökutæki eru óspart notuð. Hér segja þau sögu sína frá unga aldri, þar sem hátindur ferðalaga var lengsta jeppaferð Íslandssögunnar sem tók 9 mánuði og ekið var um 54.000 km í leiðangri ásamt vinahjónum um síðustu aldamót, þar sem hughrekki, kjarkur og ævintýramennska dreif ferðalagið áfram.
Auðbert Vigfússson bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal er gestur fyrsta þáttar ársins 2024, en akstursferill hans spannar yfir 50 ár. Farsæll alla tíð og rekur í dag ásamt syni sínum flutningafyrirtækið Auðbert og Vigfús Páll ehf sem sinnir ma daglegum flutningum frá borginni austur í Vík og Kirkjubæjarklaustur.
Flutningabílstjórar fyrri ára hafa haft það orð á sér að vera miklir sögumenn og Vignir Þór Siggeirsson er þar engin undantekning á. Í þessum þætti er stiklað á stóru um akstursferil Vignis, auk þess sem kappinn er sérlega minnugur um samtíðamenn sína og ýmiskonar bras rifjað upp.
Margeir Ármann Jónsson bílstjóri frá Grindavík hefur verið í útgerð vörubíla frá 1970. Margeir er einn sá jákvæðasti maður sem hefur komið í þátt minn og bílaflotinn í dag í eigu Jóns & Margeirs ehf er sannarlega einn sá glæsilegasti hér á landi. Kappinn segir hér sögu sína, þar sem í gegn skín bæði metnaður og fagmennska.
The podcast currently has 41 episodes available.