Í dag mæta feðgar mæðgum. Það eru þeir Baldur og Þórarinn sem mæta Sólrúnu og Ragnheiði. Við heyrum ýmis skemmtileg brot úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, sturtusöngvarinn syngur fyrir okkur vel valin lög, við heyrum orð borin fram aftur á bak, reynum að greina hvaða tungumál er verið að tala svo eitthvað sé nefnt.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Hugmynd og höfundur leiksins: Sindri Bergmann
Leikarar: Hera Ólafsdóttir, Karl Pálsson og Rúnar Freyr Gíslason
Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson
Keppendur:
Sólrún Una Einarsdóttir (ískrið)
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir (ískrið)
Baldur Þórarinsson (Bjöllusauðirnir)
Þórarinn M. Baldursson (Bjöllusauðirnir)