Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka sagði frá uppvextinum í vesturbænum, en hann er lang ynstur fjögurra systkina. Hann sagði frá áhuganum á fjármálum sem kviknaði snemma, árunum í Verslunarskólanum og síðar í viðskiptafræðinni í HR. Hann hóf störf í Glitni og hefur starfað nær óslitið í bankanum sem i dag heitir Íslandsbanki. Hann segir að íslendingar eigi að stefna að því að verða fjármálalæsasta land í heimi. Anna Hildur Hildibrandsóttir er sagði frá uppvextinum í Garðabænum og hvernig henni tókst að næla sér í íslenskan kærasta í Svíþjóð. Hún hefur starfað sem fréttaritari bæði á Bylgjunni og síðar ruv. Hún skrifaði ævisögu Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings, en hefur starfað lengst af við útflutning á íslenskri tónlist. Í dag starfar hún í fyrirtæki sem hún á ásamt tveimur bretum og heitir Tattarrattatat og flakkar á milli Bretlands og Íslands árið um kring.