
Sign up to save your podcasts
Or


The Ascended eftir Greenwich og Lennox er viðfangsefni 20. þáttar Blautra Blaðsíðna. Við kynnumst tvíburunum Thais og Thatcher og stígum inn í leyndardómsfullan guðaheim þar sem ekkert er alveg eins og það sýnist.
Við reynum að átta okkur á þessum nýja heimi, kynnumst áhugaverðum persónum og deilum auðvitað okkar fyrstu kenningum um hvað sé eiginlega í gangi. Spice-skalinn, RDG og bullið eru að sjálfsögðu á sínum stað.
ATH þátturinn inniheldur kynferðislegt orðalag og hentar ekki hlustendum yngri en 18.
Kiss of the Basilisk er viðfangsefni 19. þáttar Blautra Blaðsíðna. Við gerðum okkar allra besta við upptöku þáttarins, en þar sem bókin er jafn löng og hún er krydduð reyndist óvenju erfitt að halda hlátrinum niðri.
Í bókinni kynnumst við töfraheimi slönguskiptara og persónunum Temperance, Leo og Kaspian. Við komumst einnig að þeirri óvæntu niðurstöðu að það er bara alveg hægt að slanga yfir sig.
Spice-skalinn og RDG eru að sjálfsögðu á sínum stað... eða svona næstum því. Til að komast að því hvað fór úrskeiðis þarftu einfaldlega að lesa bókina og skella þér í þáttinn. Við lofum góðri skemmtun.
ATH: Þátturinn inniheldur kynferðislegt orðalag og er ekki ætlaður hlustendum yngri en 18 ára.
Eftir langa bið er Ballad of Falling Dragons loksins komið og það stóð svo sannarlega undir væntingum.
Í 18. þætti Blautra blaðsíðna snúum við aftur til Raeve, Kaan, Vayu og Kyzari, ræðum nýjar kenningar og förum yfir stærstu augnablikin. RDG og spice-skalinn eru að sjálfsögðu á sínum stað og við lofum hlátri, skvettum og skemmtun.
ATH þátturinn er ekki við hæfi hlustendum yngri en 18.
Bók nr 2 í The Shield of Sparrows trílógíunni er viðfangsefni 17. þátt Blautra blaðsíðna og lofum við miklu fjöri.
Við fylgjumst áfram með Odessu og Zavier, en kynnumst einnig nýjum persónum frá fjarlægum heimum og komumst vonandi aðeins meira til botns í þessum leyndardómsfulla töfra heim. Spice skalinn fer yfir það sem vel er gert og betur má fara, og RDG er á sínum stað.
Ekki missa af þessum þætti þar sem við köfum ofan í svikin, leyndarmálin, löngunina og allt það sem gerir þessa bókaseríu svona ávanabindandi.
Ath þátturinn inniheldur grafískar lýsingar og hentar ekki hlustendum undir 18 ára.
Í 16. þætti Blautra blaðsíðna fara Bryndís og María yfir bókina Shield of Sparrow. Heimur skrímsla og leyndarmála, þar sem Odessa og Zavier fara með aðalhlutverkin og leiða okkur í gegnum svik, rómantík og margt margt fleira.
Ekki missa af þessum þætti, þar sem föstu liðirnir eru á sínum stað og farið er vel út af sporinu.
Ath þátturinn inniheldur grafískar lýsingar og er ekki ætlaður hlustendum yngri en 18.
Í 15. þætti Blautra blaðsíðna fylgjumst við með Bryce, Hunt, Ruhn og fleiri eftirminnilegum karakterum í heimi þar sem nánast allar töfraverur eru til
Álfar með pabba vandamál, englar með mikilmennsku brjálæði, byssur, bílar og margt fleira. Þetta er að sjálfsögðu "Crescent city " bókaserían eftir Sara J. Maas.
Föstu liðirnir eru á sínum stað, umræðurnar fara stundum út af sporinu og við skemmtum okkur konunglega á leiðinni.
ATH. Þátturinn inniheldur grafískar lýsingar á kynferðislegum senum og hentar ekki hlustendum undir 18 ára.
14.þáttur Blautra Blaðsíðna er stuttur og laggóður en þó alls ekki af verri endanum. Við tökum smá U-beygju og förum yfir bókina Morning Glory Milking Farm, sem er með… áhugaverðan söguþráð.
Við mælum eiginlega með því að lesa bókina án þess að kynna sér of mikið um hana fyrirfram. Treystu okkur bara, þú munt ekki sjá eftir því.
ATH. þátturinn inniheldur grafískar kynferðislegar lýsingar og er ekki við hæfi einstaklinga undir 18 ára aldri.
Sagði einhver ufsagrýlur og heitir riddarar? Því þessi þáttur er stútfullur af hvoru tveggja.
Hlustaðu á 13. þátt Blautra blaðsíðna þar sem við köfum ofan í bókina The Knight and the Moth, kynnumst skemmtilegum aukapersónum, áhugaverðri kvennpersónu og nýjum töfraheimi.
Bókin skipti okkur aðeins í fylkingar og við erum mjög spenntar að heyra hvað þér, kæri hlustandi, finnst.
Ath. þátturinn inniheldur grafískar kynferðislegar lýsingar og er ekki við hæfi barna undir 18 ára.
Þangað til næst.
Drekar, forboðin örlög og skrítinn, hálf íslenskur víkinga ættbálkur.... þurfa konur eitthvað meira?
Í 12. þætti af Blautum blaðsíðum köfum við ofan í When the Moon Hatched eftir Sarah A. Parker. Við kynnumst nýjum og öðruvísi töfraheimi s, karakterum sem sitja lengi eftir og ræðum að sjálfsögðu allt og ekkert á milli himins og jarðar.
Ef þú ert fyrir verndandi karlpersónur, sterkar og ákveðnar kvenpersónur, dreka (!!) og áhugaverða nálgun á nýtt töfrakerfi, þá er þetta klárlega bók fyrir þig.
ATH þátturinn innihledur blótsyrði og kynferðislegt orðalag.
Varst þú líka hrifin af Harry Potter, en vildir óska að Hermione og Draco hefðu farið í sleik? Við líka. Þess vegna lásum við bókina Alchemised.
11.þáttur Blautra Blaðsíðna kafar inn í hinn magnaða töfra heim SenLin Yu og þessara frábæru spin-off bók sem er byggð á persónum úr töfraveröld Harry Potters. Hlustaðu með þegar við köfum niður í bókina og förum yfir allt á milli himins og svarta galdurs.
ATH þátturinn inniheldur grafískar lýsingar á kynferðislegum senum og hentar ekki yngri hlustendum.
From the publisher's feed