Bókakaffi

Bókakaffi

By Ari Óskar Víkingsson, Friðrik Snær BjörnssonArtsBooks
Download on the App Store

Bókakaffi episodes

  • #6 Lífsreglurnar fjórar - Don Miguel Ruiz

    Einföld og kjarnyrt sjálfsstyrktarbók þar sem settar eru fram fjórar lífsreglur sem óhætt er að mæla með að lifa eftir. Kanónur eins og Halla Tómasdóttir, forseti íslenska lýðveldisins, og Páll Óskar hjálmtýsson, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, hafa dásamað þessa bók og áhrif hennar á líf sitt.


    Reglurnar fjórar eru eftirfarandi:

    1. Vertu flekklaus í orði

    2. Ekki taka neitt persónulega

    3. Ekki draga (rangar) ályktanir (e. don´t make assumptions)

    4. Gerðu alltaf þitt besta


    Einkunnagjöf var eftirfarandi:

    Boðskapur: Ari - 4,5 / Friðrik - 4

    Tilfinningaáhrif: Ari - 3,5 / Friðrik - 4

    Stíll/uppbygging: Ari - 4,5 / Friðrik - 4

    Heildareinkunn: Ari - 4,2 / Friðrik - 4

    1 hr 11 min
  • #5 Ódysseifskviða - Hómer

    Ódysseifskviða er eitt elsta varðveitta stórvirki heimsbókmennta. Sagan hafði borist munnlega frá kynslóð til kynslóðar áður en hún var rituð af forngríska skáldinu Hómer fyrir um 2700 árum.

    Hér er farið yfir þessa merkilegu sögu og bókin, í stórkostlegri 19. aldar þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar, borin saman við nýútkomna Hollywood-endurgerð sögunnar eftir Cristopher Nolan.

    Hverju breytir Nolan frá upprunalegu sögunni?

    Bætir myndin lestur bókarinnar?

    Þessum spurningum er velt upp í þættinum og að lokum komist að neðangreindri einkunn á bókinni:



    Karakterar: Ari - 4 / Friðrik - 3,5

    Ritstíll: Ari - 4,5 / Friðrik - 4,5

    Sögusvið: Ari - 3,5 / Friðrik - 3

    Tilfinningaáhrif: Ari - 4 / Friðrik - 4

    Saga: Ari - 4,5 / Friðrik - 4,5

    Heildareinkunn: Ari - 4,1 / Friðrik - 3,9

    1 hr 31 min
  • #4 - Egils saga

    Egils Gull Lite, Egilshöll og Silfur Egils…


    Forfaðir okkar Egill Skallagrímsson lifir enn með okkur í alls kyns myndum. Hann var bardagamaður mikill með girnd fyrir sífellt meira silfri og landi. Á sama tíma hafði hann mannlega hlið sem birtist í hjartnæmum ljóðum sem hann orti eftir þunglyndisköstin sín.


    Þessi þáttur er bæði fyrir þá sem hafa lesið bókina og þá sem hafa ekki gert það. Við lok hlustunar verður viðkomandi orðinn sérfræðingur í uppgangi Haralds hárfagra í Noregi, landnámi Skalla-gríms í Borgarfirði og svo öllum helstu bardögum, ljóðum, áskorunum og sigrum Egils.



    Persónur: Ari - 4,5 / Friðrik - 4


    Sögusvið: Ari - 3 / Friðrik - 3,5


    Ritstíll: Ari - 4 / Friðrik - 3,5


    Tilfinningaáhrif: Ari - 4 / Friðrik - 4


    Saga: Ari - 4,5 / Friðrik - 5


    Heildareinkunn: Ari - 4 / Friðrik - 4

    2 hr 34 min
  • #3 Bókin um veginn - Lao Tse

    Bókin um veginn er 2500 ára gömul lífsspekibók sem hefur lifað af ástæðu.


    Farið er yfir vítt svið í þættinum, allt frá tilurð heimsins niður í anarkisma Jóns Gnarr. Bókin snertir á trúarmálum, stjórnmálum, hermálum og einstaklingnum og ákjósanlegum lífsháttum hans.


    Bókin er einungis 84 blaðsíður, skrifuð í stuttum setningum sem eru í stóru letri. Þetta þýðir að ef þú nennir að hlusta á þáttinn þá nennir þú að lesa bókina!


    Þetta mun vera okkar besti þáttur hingað til.


    Einkunnagjöf fylgir í kjölfar umræðna og er til hliðsjónar hér að neðan:


    Boðskapur

    Ari - 4,5

    Friðrik - 4


    Tilfinningaáhrif

    Ari - 3,5

    Friðrik - 2,5


    Stíll

    Ari - 4,5

    Friðrik - 4


    Lokaeinkunn

    Ari - 4,2

    Friðrik - 3,5 (3,9 í kjölfar leiðréttingar a vægi þáttakr


    1 hr 22 min
  • #2 Sjálfstætt fólk - Halldór Kiljan Laxness

    Hér er farið yfir eitt af meistaraverkum nóbelskálds þjóðarinnar.

    Er Bjartur í Sumarhúsum enn til í nútímasamfélagi?

    Er ást hans á Ástu Sóllilju sönnun þess að allir eigi sína mjúku hlið?

    Vangaveltur eins og þessar eru ræddar en einnig er farið í hávísindalega ritdóma með formfastri einkunnagjöf (0-5 stjörnur) og fylgir hún hér að neðan:

    Karakterar: Ari - 5 / Friðrik - 5

    Sögusvið: Ari - 4 / Friðrik - 4

    Ritstíll: Ari - 4,5 / Friðrik - 4,5

    Tilfinningaáhrif: Ari - 5 / Friðrik - 5

    Saga: Ari - 4,5 / Friðrik - 4

    Heildareinkunn: Ari - 4,6 / Friðrik - 4,5


    1 hr 51 min

About Bókakaffi

From the publisher's feed

Hér verður skeggrætt um góðar bækur og drukkið gott kaffi.