Í Lestarklefa vikunnar fjalla Brynhildur Björnsdóttir, Snæbjörn Brynjarsson og Ragnar Helgi Ólafsson um gott gengi Íslendinga á menningarverðlaunum Norðurlandaráðs, listahátíðina Cycle, leiksýninguna Samþykki í Þjóðleikhúsinu og kvikmyndina A Star is born með Lady Gaga í aðalhlutverki.