Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Umræður um menningu og listir. Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.... more
FAQs about Lestarklefinn:How many episodes does Lestarklefinn have?The podcast currently has 127 episodes available.
November 19, 2021Succession, The French Dispatch og Koma jól?Rætt um sjónvarpsþættina Succession, kvikmyndina The French Dispatch og ljóðabókina Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og Rán Flygenring. Gestir þáttarins eru Áslaug Torfadóttir, Andrés Jónsson og Nichole Leigh Mosty. Umsjónarmaður er Davíð Kjartan Gestsson....more53minPlay
November 05, 2021Versta manneskja í heimi, Opus Oups og Benni Hemm HemmGestir Lestarklefans á Rás 1 föstudaginn 5. nóvember verða Sigríður Tómasdôtir, Rakel Garðarsdóttir og Sigurður Unnar Birgisson. Þau ræða norsku kvikmyndina Versta manneskja í heimi, sýningu Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur, Opus Oups, á Kjarvalsstöðum og spunatónlistarverk tónlistarmannsins Benna Hemm Hemm sem heita Church & School. Umsjón: Guðni Tómasson....more50minPlay
October 29, 2021Leynilögga, Mannamyndasafnið, BushidoÞað er fámennt en góðmennt r í klefanum í dag. Anna Marsibil Clausen ræðir við Baldvin Albertsson, leikstjóra og stofnandi Vita Games, og Sigríði Jónsdóttur sérfræðing við Leikminjasafn Íslands sem og leikhúsgagnrýnanda Fréttablaðsins. Til umræðu eru kvikmyndin Leynilögga, Mannamyndasafnið og nýjasta plata rapparans Birnis sem ber nafnið Bushido....more50minPlay
October 22, 2021Wolka, Hellraiser IV og Hilmir snýr heimRætt um kvikmyndina Wolka, hljómplötuna Hellraiser IV með Skröttum og ljósmyndasýninguna Hilmir snýr heim í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Gestir þáttarins eru Karolina Boguslawska, listfræðingur, Ólöf Rut Stefánsdóttr, forstöðumaður Ásmundarsalar, og Davíð Roach Gunnarsson, pistlahöfundur og textasmiður....more50minPlay
October 15, 2021James Bond, Eilífur snjór í augunum og MuggurÍ Lestarklefanum að þessu sinni er fjallað um nýjustu kvikmyndina um njósnara hennar hátignar; James Bond, yfirlitssýningu Listasafns Íslands um Mugg og nýjustu afurð hljómsveitarinnar Kef LAVÍK sem ber heitið Eilífur snjór í augunum. Gestir þáttarins, þau Ingileif Friðriksdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Stefán Ingvar Vigfússon, velta fyrir sér rauða þræði listaverkanna sem þau segja fall eitraðrar karlmennsku. Umsjón: Snærós Sindradóttir...more50minPlay
October 01, 2021Dýrið, Last song og Time Matter Remains TroubleÍ Lestarklefanum á morgun kl. 17:03 verða gestir Guðna Tómassonar kvikmyndagerðarmaðurinn Óskar Axelsson, fjöllistakonan Kristín Björk Kristjánsdóttir einnig þekkt sem Kira Kira og Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði við HÍ. Þau ræða þrjár menningarafurðir, eins og venja er í Lestarklefanum. Kvikmyndina Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar, plötuna Last song þar sem Una Sveinbjörnsdóttir fiðluleikari og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari leika íslenska og erlenda tónlist og loks myndlistarsýninguna Time Matter Remains Trouble í Norræna húsinu....more50minPlay
FAQs about Lestarklefinn:How many episodes does Lestarklefinn have?The podcast currently has 127 episodes available.