Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Umræður um menningu og listir. Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.... more
FAQs about Lestarklefinn:How many episodes does Lestarklefinn have?The podcast currently has 127 episodes available.
February 19, 2021Small Axe, Klassa drusla og Herbergi úr öðrum heimiRætt um kvikmyndabálkinn Small Axe sem sýndur er á RÚV þessa dagana, nýja íslenska kvikmynd sem heitir Hvernig á að vera klassa drusla og smásagnasafnið Herbergi í öðrum heimi eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur.Gestir þáttarins eru Gunnþórunn Guðmundsdóttir bókmenntafræðingur, Edda Kristín Sigurjónsdóttir deildarfultrúi myndlistardeildar LHÍ og Gunnar Ragnarsson kvikmyndarýnir og tónlistarmaður.Umsjón hefur Davíð Kjartan Gestsson....more50minPlay
February 05, 2021Afsakið mig, Last and first men og MórÍ Lestarklefa vikunnar verður fjallað um kvikmynda Last and first men eftir Jóhann Jóhannsson, nýja plötu Agnars Más Magnússonar og félaga sem heitir Mór og sýninguna Afsakið mig í Ásmundarsal.Gestir Lestarklefans verða Sváfnir Sigurðarson markaðs- og kynningarfulltrúi Þjóðleikhússins, Guðrún Erla Geirsdóttiir myndhöfundur og menningarmiðlari og Ásbjörg Jónsdóttir tónlistarkona.Umsjón: Guðni Tómasson...more50minPlay
January 22, 2021Gösta, innsetningarathöfn og Veit andinn af efninu?Fjallað um sænsku sjónvarpsþættina Gösta eftir Lukas Moodyson, innsetningarathöfn í embætti 46. forseta Bandaríkjanna, og samsýninguna Veit andinn af efninu? í Nýlistasafninu. Gestir eru Jón Gnarr, Rán Flygenring og Birta Guðjónsdóttir.Umsjón: Kristján Guðjónsson...more50minPlay
January 15, 2021Dunce, Vol. 1 og HljóðleikhúsJónas Sig, Elísabet Jökulsdóttir og Þórður Hans Baldursson ræða við Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur um gjörninga- og sviðslistatímaritið Dunce, samsýninguna Vol. 1 í Þulu gallerýi og Hljóðleikhús Þjóðleikhússins....more55minPlay
January 08, 2021Druk, Hrafnagaldur Óðins og MankRætt um kvikmyndirnar Druk og Mank auk hljómleikaplötu Sigur Rósar, Hrafnagaldur Óðins. Gestir eru Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarmaður, Þorsteinn Hreggviðsson útvarpsmaður og Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur.Umsjón hefur Davíð Kjartan Gestsson...more50minPlay
December 11, 2020Ari Eldjárn, Moses Hightower og Menning í mótunGestir Lestarklefans í dag verða Freyja Hlíðkvist Ómarsdóttir sérfræðingur á munasafni Þjóðminjasafnsins, Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona og Haraldur Þór Egilsson safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Þau ræða, við Guðna Tómasson, umsjónarmann þáttarins að þessu sinni, um nýja plötu hljómsveitarinnar Moses Hightower, Lyftutónlist, bresku sjónvarpsþættina Civilisations (Menning í mótun) sem RÚV sýnir um þessar mundir og uppistandsmynd Ara Eldjárn á Netflix sem heitir Pardon my Icelandic....more50minPlay
December 04, 2020Schubert, Tónlistarhátíð Rásar 1, GeislavirkirÞað verður tónlistarslagsíða í Lestarklefanum í dag. Rætt verður um ólíka tónlist frá ólíkum tímum. Nýjan geisladisk þar sem Edda Erlendsdóttir píanóleikari leikur þrjár píanósónötur eftir Franz Schubert, Tónlistarhátíð Rásar eitt sem fram fór í fjórða sinn í Norðurljósasal Hörpu í síðustu viku, en þar voru frumflutt fjögur verk eftir ung tónskáld. Og rifjað verður upp að um þessar mundir eru nákvæmlega fjörutíu ár síðan hljómplatan Geislavirkir með hljómsveitinni Utangarðsmönnum kom út. Gestir þáttarins verða Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Óperustjóri og píanóleikari, Árni Matthíasson menningarblaðamaður og Borgar Magnason, tónskáld og bassaleikari. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson...more48minPlay
FAQs about Lestarklefinn:How many episodes does Lestarklefinn have?The podcast currently has 127 episodes available.