Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Umræður um menningu og listir. Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.... more
FAQs about Lestarklefinn:How many episodes does Lestarklefinn have?The podcast currently has 127 episodes available.
May 14, 2021Alma, Spessi og StofuhitiÍ Lestarklefanum verður að þessu sinni rætt um kvikmyndina Ölmu eftir Kristínu Jóhannesdóttur, sjónvarpsþættina stofuhita með Bergi Ebba Benediktssyni og yfirlitssýningu á ljósmyndum Spessa í Þjóðminjasafninu. Gestir Guðna Tómassonar verða Magnús Karl Magnússon, Berglind Rós Magnúsdóttir og Bergþóra Snæbjörnsdóttir....more50minPlay
May 07, 2021The Father, Góði hirðirinn, Marianne FaithfullÍ Lestarklefanum í dag verður fjallað um heimildamyndina Góði hirðirinn eftir Helgu Rakel Rafnsdóttur. Kvikmyndina The Father eftir franska kvikmyndaleikstjórann og rithöfundinn Florian Zeller, með þeim Anthony Hopkins og Oliviu Colman í aðalhlutverkum. Og nýja plötu ensku tónlistar- og leikkonunnar Marianne Faithfull, She Walks in Beauty, en þar flytur Faithfull ljóð eftir ensk, rómantísk skáld frá 19. öld. Gestir þáttarins verða þau Arnbjörg María Danielsen, dagskrárstjóri í Norræna húsinu, Jón Óskar myndlistarmaður og Pálmi Gestsson leikari.Umsjón: Eiríkur Guðmundsson...more50minPlay
April 30, 2021Nomadland, Nashyrningar og Já/NeiUmræðuefni Lestarklefans eru óskarsverðlaunamyndin Nomadland, Hirðingjaland, Nashyrningarnir eftir Ionesco í Þjóðleikhúsinu, og sýningin Já/Nei með verkum eftir Auði Lóu Guðnadóttir. Gestir eru Ana Stanicevic, doktorsnemi í menningarfræðum, Fritz Hendrik Berndsen IV myndlistarmaður og Geir Sigurðsson, heimspekingur og prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands....more50minPlay
April 09, 2021Sóttkví, Píslarsaga Krists og list í opinberu rými.Í Lestarklefanum, föstudaginn 9. apríl kl. 17:03, verður spjallað um sjónvarpsmyndina Sóttkví í leikstjórn Reynis Líndal sem var á dagskrá RÚV um páskana, gestir þáttarins lásu líka píslarsögu Krists eins og hún kemur fyrir í Nýja testamentinu og þeir viðra sig líka í vorinu og skoða list í opinberu rými, velja verk til að rabba út frá. Gestir í Lestarklefanum að þessu sinni eru Ása Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndagerðarkona, Harpa Árnadóttir myndlistarkona og útvarpsmaðurinn Ævar Kjartansson.Umsjón Lestarklefans að þessu sinni hefur Guðni Tómasson...more50minPlay
March 26, 2021Í Lestarklefanum í dag verður fjallað um heimildamyndina Hálfur álfur eftir Jón Bjarka Magnússon, myndlistarsýninguna Jörðin hefur marga lykla sem opnuð var nýlega í Nýlistasafninu í Marshall-húsinu en þar má sjá verk eftir skosku listakonuna Katie Paterson. Og nýja íslenska kvikmynd, Þorpið í bakgarðinum, eftir Martein Þórsson sem frumsýnd var á dögunum.Gestir þáttarins verða kvikmyndaleikstjórarnir Ísold Uggadóttir og Karna Sigurðardóttir, og Margrét H. Blöndal myndlistarkona. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson....more50minPlay
March 12, 2021Benedikt búálfur. A Song Called Hate. Royal Inbreed með Toy Machine.Í Lestarklefanum að þessu sinni verða tekin fyrir þrjú nokkuð ólík umfjöllunarefni. Byrjað verður að ræða fjölskyldusöngleikinn Benedikt búálf sem nýlega var frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar. Því næst verður rætt um heimildarmyndina A Song Called Hate eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur. Að lokum verður rætt um plötuna Royal Inbreed með akureyrísku hljómsveitinni Toy Machine. Gestir Lestarklefans eru Kristín Þóra Kjartansdóttir hjá Flóru menningarhúsi, Karólína Baldvinsdóttir myndlistarmaður og meðlimur í listahópnum Kaktus, og Hjörleifur Örn Jónsson tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir....more52minPlay
FAQs about Lestarklefinn:How many episodes does Lestarklefinn have?The podcast currently has 127 episodes available.