Dagbók Brjálæðingsins

Dagbók Brjálæðingsins

By NonniMusic
Download on the App Store

Dagbók Brjálæðingsins episodes

  • 14. SólóBítlar - þriðji hluti - Ringo

    Ringo Starr. Hver elskar ekki Ringo? Lífsglaði, friðelskandi ástarpungurinn hefur dælt út sólóplötum síðustu 50 árin og í þessum þætti ætlum við að renna yfir ferilinn, fanga stemmninguna, elska og halda friðinn. 

    38 min
  • 13. SólóBítlar - annar hluti - Lennon

    Í þessari viku eru 40 ár síðan John Lennon féll frá. Því er tilvalið að taka hann fyrir í þessum örðum hluta yfirferðar okkar um sóló bítla. Andfýlan er auðvitað á sínum stað og sitt sýnist hverjum.  

    49 min
  • 12. SólóBítlar - fyrsti hluti - Goggi

    Eftir allt of langt vetrarfrí mæta Brjálæðingurinn og tæknimaðurinn og rennitækla sinn stærsta loðfíl til þessa. Við erum að tala um hina “fjóru fræknu”, “The Fab Four”.Í þessum fyrsta hluta tökum við fyrir sólóferil George Harrison eða Gogga.

    46 min
  • 11. Júró - part 2

    Í þessum seinni hluta af Júródagbókinni halda þau Nonni og Sunna áfram að fara yfir söguna og velja verstu og bestu lögin í sögu keppninnar

    46 min
  • 10. Júró - part 1

    Það hlaut að koma að því! Júróloðfílinn var tæklaður og það var ekki átakalaust. Farið yfir söguna, talað um fíling og skipts hressilega á skoðunum. Andfílan fór upp í loft en allir sexý að lokum

    48 min
  • 9. Andfíla

    Andfílan var slík í þessum þætti að það lá við yfirliði. Hart var tekist á, samstarfið hékk á bláþræði og enginn var að fíla sig...en samt allir í stuði

    44 min
  • 8. Progg

    Þessi dagbók er í framsæknari kantinum. Við kíkjum aðeins á upphaf proggsins og reynum að útskýra stærstu spurningu alheimsins sem er: ,,Hvað er progg?" Andfýlan og almenn vitleysa verður auðvitað líka á sínum stað.

    1 hr
  • 6. Grugg - part 1

    Eftir erfiða fæðingu tókst loksins að henda í þátt. Í þessum fyrrihluta ræðum við um upphaf gruggsins í rigningunni í Seattle og stiklum á stóru í sögu "big 4"

    1 hr 4 min

About Dagbók Brjálæðingsins

From the publisher's feed

Í þættinum er fjallað um tónlist út frá hinum ýmsu sjónarhornum. Kafað verður djúpt ofan í hlutina en með léttleikan að vopni og fagmennsku í fyrirrúmi.