Feðgarnir Jón Sigurðsson, Jón í bankanum og Trausti Jónsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg voru stefnumótagestir þessa þáttar. Jón samdi fjölda laga sem mörg hver eru meðal vinsælustu dægurlaga þjóðarinnar og enginn hefur tölu á öllum þeim textum sem hann samdi. Í þættinum eru bútar út sjónvarpsþættinum Manstu gamla daga þar sem sem Helgi Pétursson talaði við Jón. Þátturinn er frá árinu 1991. Tónlist: Komdu í kvöld ( lag og texti Jón Sigurðsson) Fjórir kátir þrestir ( lag: höf óþekktur, texti Jón Sigurðsson ) Komdu niður ( lag og texti Jón Sigurðsson) Vor við flóann ( lag erl. texti Jón Sigurðsson ) Í rökkurró ( lag erl. texti Jón Sigurðsson ) Úti í Hamborg ( lag og texti Jón Sigurðsson ) Vertu ekki að horfa ( lag erl. texti Jón Sigurðsson) Hún var með dimmblá augu ( lag erl. texti Jón Sigurðsson) Ég fann þig ( lag erl. texti Jón Sigurðsson) Ég vil fara upp í sveit ( lag og texti Jón Sigurðsson) Kvöldsigling ( lag Gísli Helgason, texti Jón Sigurðsson ) Sagan af Nínu og Geira ( lag erl. texti Jón Sigurðsson) Ég er kominn heim ( lag erl. texti Jón Sigurðsson) Umsjón: Margrét Blöndal.