Djöflavarpið

Djöflavarpið

By Rauðu djöflarnirSportsSoccer
Download on the App Store

Djöflavarpið episodes

  • 91. þáttur – United áfram í bullandi toppbaráttu
    Maggi, Þorsteinn, Bjössi og Halldór settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Liverpool og Fulham. Einnig var talað um Wayne Rooney í kjölfar þess að hann lagði skóna á hilluna, af hverju línuverðir séu nánast hættir að flagga rangstöðu, frammistaða Paul Pogba, hitað upp fyrir bikarleikinn gegn Liverpool og ýmislegt fleira.
    1 hr 44 min
  • 90. þáttur – Við erum á toppnum!
    Maggi, Þorsteinn, Daníel og Halldór settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Watford og Burnley. Annað umræðuefni var meðal annars kaupin á Amad Diallo, salan á Fosu-Mensah. Einnig var rækileg upphitun fyrir þennan litla leik á sunnudaginn.
    1 hr 53 min
  • 89. þáttur – Á United að kaupa Jack Grealish?
    Maggi, Björn og Þorsteinn settust niður og fóru vel yfir leikina gegn Aston Villa og Manchester City. Einnig ræddum við fráfall fyrrverandi stjórans litríka Tommy Docherty, ráðningu Darren Fletcher, kaupin á Amad Diallo og veltum því fyrir okkur hvort United eigi að festa kaup á Jack Grealish.
    1 hr 5 min
  • 87. þáttur – Látlaust og leiftrandi gegn Leeds
    Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og ræddu leikina gegn Manchester City, Sheffield United og Leeds. Góð staða kvennaliðs United var einnig til umræðu ásamt Amad Diallo sem gengur til liðs við United í janúar sem og mótherjar United í Evrópudeildinni, Real Sociedad.
    1 hr 24 min
  • 86. þáttur – Lélegt leikskipulag í Leipzig
    Maggi, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru mjög ítarlega yfir leikina gegn West Ham og RB Leipzig. Paul Pogba og ummæli Mino Raiola voru tekin fyrir, veltum því fyrir okkur hvort við hefðum lært eitthvað af þessum leik sem við vissum ekki áður. Einnig ræddum við Ole Gunnar Solskjær og þjálfarateymið og hvort breytingar þar væri ekki þörf.
    1 hr 38 min
  • 84. þáttur – Maradona, enginn betri
    Maggi, Björn, Daníel og Þorsteinn settust niður og fóru yfir leikina gegn WBA og Başakşehir. Fórum svo yfir fréttir um þrepaskiptinguna sem ræður því hvort lið fái að hleypa inn áhorfendum eða ekki. Einnig minntumst við Diego Maradona sem lést í vikunni og fórum að lokum yfir slúður vikunnar.
    1 hr 11 min
  • Dimitar Berbatov
    Hann Halldór okkar settist niður með Dimitar Berbatov á dögunum. Rædd var nýútgefin bók hans sem og ástandið á Manchester United.
    21 min

About Djöflavarpið

From the publisher's feed

Rauðu djöflarnir fjalla um Manchester United frá hinum ýmsu hliðum. Þið finnið okkur á Facebook, Twitter og raududjoflarnir.is