Viðtalið er tekið í Bolungarvík sumarið 2007 af Lilju Steingrímsdóttur, dótturdóttur Kristjáns Gíslasonar, dóttir (Þóru) Kristínar Kristjánsdóttur. Kristján fæddist 1881 að Hvammi í Dýrafirði, bróðir Gústa guðsmanns, kvæntist Margréti Jóhönnu Magnúsdóttur frá Kleifum í Skötufirði, þau settust að á Ísafirði. Gvendur Golli heitir Guðmundur Halldórsson, hann er frá Ísafirði en hefur búið í áratugi í Bolungarvík. Hann er aldraður maður í dag (2020) en kynntist Kristjáni Gíslasyni þegar hann var polli á Ísafirði.