
Sign up to save your podcasts
Or


Í seinasta þætti fórum við yfir hvað þyngdarstjórnunarlyf eru, í þætti vikunnar förum við yfir afhverju ég ákvað að nýta mér þau sem verkfæri.
Í þessari viku af Ekkert plan kemur Erla Gerður læknir sem hefur starfað við offitumeðferðir í 20 ár. Við ræðum um hið alræmda
Reta, hverjir þurfa á þyngdarstjórnunarlyfjum að halda og fordómana sem eru gagnvart ofþyngd.
Perla kom ekki tómhent í Ekkert plan heldur kveikti hún svo sannarlega í jólastemningunni! Perla stofnaði Wagtail fyrir átta árum og við ræddum aðeins um það og ótrúlega margt annað eins og okkur einum er lagið.
Ekkert plan er í boði Landbankans og Happy Hydrate
Tilgangurinn með Ekkert plan er að fullorðnast saman. Í dag ætlum við heldur betur að fullorðnast, því hvað er fullorðinslegra en að fjárfesta? Anna Lilja ætlar að fara yfir þetta allt saman með okkur og sýna okkur að þetta má vera skemmtilegt.
Í þætti vikunnar kom Tania Lind, hún hefur verið að kljást við Alopecia seinustu ár en það sem dró mig að henni er þetta magnaða hugarfar. Ég býð ykkur að fræðast með okkur en mikilvægast af öllu hlægja með okkur!
Í þætti vikunnar förum við yfir markmiðaspjald ársins 2026, tvö vandamál í lausnahringnum og förum yfir markmiðasetningu og væntingar. Það var líka öfugsnúin vika því ég gleymdi náttfötunum í þetta skiptið.
Það hlaut að koma að því að litli bróðir minn Jakob Jóhann kæmi hlaðvarpið. Við slúðruðum svolítið, fórum í lausnahringinn og fundum reyndar ekki lausn á öllu en áfram gakk.
Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate
Ellý Ármanns kom í Ekkert plan og gerði mig heldur betur orðlausa! Ég mæli innilega með því að hlusta á þáttinn í hvert einasta skipti sem þig vantar að komast á hærri tíðni.
Í þætti sex af Ekkert plan fór ég inná ansi mörg sprengjusvæði. Ég legg til að þið hlustið með opnum hug og eins og alltaf þá verði þið að senda á mig ef þið tengið eða jú tengið alls ekki neitt.
Þátturinn er í boði Happy Hydrate.
Það er enginn önnur en Mamma sem er mætt í hlaðvarpið að þessu sinni. Hún er minn eigin lífsþjálfi og flestir ættu að vilja hafa hana í sínu horni. Við förum yfir vandamál úr lausnahorninu gagnvart stjúpfjölskyldum. Þaðan förum við yfir víðan völl, hvorug með plan eins og við viljum hafa það.