
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur þáttarins að þessu sinni er Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó paradísar
- Inngangsstef: Franz Schubert: Trio pour piano et violoncelle en Mi Bémol Majeur, D. 929, Op. 100: II. Andante con moto.
- Útstef: Þorgrímur Andri Einarsson
- Framleiðendur: Kvikmyndafræði HÍ
- Þáttarstjórn: Björn Þór Vilhjálmsson
- Klipping og tæknisnið: Kjartan Már Ómarsson
Gestur þáttarins að þessu sinni er Ásgrímur Sverrisson leikstjóra og vefstjóra Klapptre.is
Gestur þáttarins, Benedikt Erlingsson, ræðir um kvikmyndagerð sína við Björn Þór Vilhjálmsson.
Gestur þáttarins er Gunnar Tómas Kristófersson og rætt er um tvær konur sem sannarlega voru ísbrjótar í íslenskri kvikmyndasögu. Annars vegar Ruth Hanson, dans- og íþróttakennara, sem varð fyrst kvenna til að gera kvikmynd hér á landi. Þá er sjónum einnig beint að Svölu Hannesdóttur, sem Gunnar Tómas segir leikstjóra fyrstu íslensku listamyndarinnar.
Gestir þáttarins María Lea Ævarsdóttir og Sólrún Freyja Sen ræða við Björn Þór Vilhjálmsson um Reykjavík Feminist Film Festival.
Rætt er við Gunnar Ragnarsson um íranska leikstjórann Abbas Kiarostami, alþjóðlega listabíóið og breytufrásagnir.
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, og Ísak Jónsson, tæknimaður, en báðir eru sérstakir áhugamenn um viðsjárverða menningu.
- Inngangsstef: Franz Schubert: Trio pour piano et violoncelle en Mi Bémol Majeur, D. 929, Op. 100: II. Andante con moto.
- Útstef: Þorgrímur Andri Einarsson
- Framleiðendur: Kvikmyndafræði HÍ
- Þáttarstjórn: Björn Þór Vilhjálmsson
- Klipping og tæknisnið: Kjartan Már Ómarsson
Viðfangsefni Engra stjarna í þetta skiptið er drag, jafnt í kvikmyndum, sjónvarpi og í íslensku skemmtanalífi. Sérstakur gestur þáttarins er Sólveig Johnsen, kvikmyndafræðingur, dragsérfræðingur, dragkóngur og listamaður á hinum ýmsustu sviðum.
Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Hrafnkel Úlf Ragnarsson um sérstöðu Bíó Paradísar í íslenskri kvikmyndahúsamenningu og mikilvægi þess að hér á landi sé starfandi að minnsta kosti eitt listabíó. Þá ræðir Björn Þór við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradísar, um sögu bíósins, ...stöðu mála nú um mundir og framtíðarhorfur. Að lokum kemur Oddný Sen í þáttinn en hún er verkefnisstjóri kvikmyndafræðslu Bíó Paradísar og hún segir Birni frá þessum mikilvæga þætti í starfi bíósins.
Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræðideildar Háskóla Íslands. Í þessum þætti ræðir Björn Þór Vilhjálmsson við kvikmyndafræðinginn Gunnar Tómas Kristófersson um kvikmynd Júlíusar Kemp, Blossa frá 1997 og költkvikmyndir.
From the publisher's feed