Sign up to save your podcasts
Or

Svanasöngur leikstjórans Stanley Kubrick og í senn hans ‘bjartasta’ kvikmynd, í þeim skilningi að hún er uppfull af von um betri tíma. Þetta þykir sérlega umræðuvert af sögu sem dílar við hjónabandsbresti, tryggð, myrku öfl elítunnar og býður upp á eitt drungalegasta kynsvall fyrr eða síðar á hvíta tjaldinu.
Tom Cruise leggur í eitt stórfurðulegt og draumakennt ferðalag um “Oz” (eða réttar sagt martraðarkenndu útgáfuna af New York) þar sem hann mætir hverri viðreynslunni á eftir annarri og ógrynni af furðufuglum. Á meðan þessu stendur liggur hugur hans á því hvort hjónaband hans við Nicole Kidman sé raunverulega að gliðna í sundur eða hvort hægt verði að stíga yfir þennan erfiða hjalla.
Útkoman er vægast sagt lágstemmd en stórspennandi (en það er smekksatriði, vissulega…), eins og þeir Kjartan, Tommi og Atli Sigurjóns diskútera í þættinum að sinni. Þá ákvað Atli einnig að gefa hlustendum smá innsýn inn í sleggjudómana og volgu viðbrögðin sem myndin fékk um sumarið 1999 á meðan stærri málin koma líka til tals; eins og hvort Eyes Wide Shut teljist virkilega til jólamyndar…
Lokið augunum fast og sperrið upp eyrun.
Aðgangsorðið er ‘Fidelio’….
Efnisyfirlit:
00:00 - 1999
06:41 - Tom Cruise
14:30 - Aðferðafræði Kubricks
25:51 - Ekki allra…
34:05 - “Traumnovelle”
38:40 - Viðreynslurnar í “Oz”
47:17 - Týndu tækifærin
57:47 - “Fyrirlestur um einkvæni”
By Bíófíklar HlaðvarpSvanasöngur leikstjórans Stanley Kubrick og í senn hans ‘bjartasta’ kvikmynd, í þeim skilningi að hún er uppfull af von um betri tíma. Þetta þykir sérlega umræðuvert af sögu sem dílar við hjónabandsbresti, tryggð, myrku öfl elítunnar og býður upp á eitt drungalegasta kynsvall fyrr eða síðar á hvíta tjaldinu.