Bíófíklar

Bíófíklar

By Bíófíklar HlaðvarpTV & Film
Download on the App Store

Bíófíklar episodes

  • Street Fighter (1994)

    Hvernig getur eitthvað verið svona ofboðslega vont en samt svo skemmtilegt á sama tíma? Hér erum við með JVCD á kókaíni, leiksigur frá Raul Julia í hinstu rullu kappans, heljarinnar haugur af aukapersónum, vitleysu, áróðri, búningum, nefnið það. Þetta er 'næntís' myndin Street Fighter.

    Bíófíklar taka glettilega á móti Bjarna Gauti og Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Í sameiningu skulu þeir krafsa í þessari gölnu stúdíómynd sem gerði svo ótrúlega margt rétt og ótrúlega margt kolvitlaust á sama tíma.

    Þá skal einnig ræða anime viðaukann 'Street Fighter II: The Animated Movie...' (... Arnóri til mikillar gremju)

    Beint í búningana, upp með pósurnar og smellum Martin Luther King á fóninn. Þetta verður gufuruglað!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - "70 karakterar í bíómynd"

    08:50 - Kóngurinn 'Húlía'!

    24:00 - Steven De Souza

    33:19 - 'Bisonics'

    38:43 - 'Vei, stríð!'

    42:42 - Street Fighter II: The Anime...

    51:51 - "We Can All Go Home"...

    59 min
  • Hedwig and the Angry Inch (2001)

    “Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!”

    Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur.

    Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig leikstýrði henni meira að segja!

    Hún græddi lítið í bíó en þegar á vídjóleigurnar var komið fann hún sinn aðdáendahóp eins og gengur og gerist með költmyndir. Ásamt því hefur söngleikurinn notið meiri vinsælda í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að Neil Patrick Harris söng hlutverk Hedwig á Broadway 2014. 

    Íris fær Hauk Heiðar Steingrímsson til sín í stúdíóið enn á ný en í þetta skiptið dregur hann eiginmann sinn og rokksöngleikjaáhugamanninn Jón Baldur Bogason með sér. Þar kryfja þau atburðarrás myndarinnar ásamt lögunum. Þar kviknuðu upp margar spurningar:  Hvaða lag var best? Hvað er kyngervi Hedwig? Er Yitzhak karl eða kona og hvernig á maður að bera fram þetta nafn? Hver er í rétti, Hedwig eða Tommy Gnosis? 

    Taktu hárkolluna úr kassanum því nú ætla þau að leiða þig í gegnum þennan grimma, litla bæ.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Þættir og bíóuppeldi

    10:10 - Pönkið í Hedwig

    18:01 - Geggjuð tónlist

    31:22 - Litríkar aukapersónur

    40:10 - Um ákvörðunarrétt

    46:04 - Hvað með þennan endi?

    52:04 - Samantekt

    54 min
  • Topp 5: Alex Garland

    Alex Garland er mikill meistari þegar kemur að stórum hugmyndum, mannvonsku, níhilisma og abstrakt hugmyndum og enn fremur vísindaskáldskap. Garland hefur skrifað bækur, kvikmyndahandrit og spreytt sig slatta í leikstjórasætinu en þess vegna liggur hann nú undir smásjá Bíófíkla.

    Gestur er Þorsteinn Valdimarsson og slæst í för þremenningana um að bera saman gerólíka lista, mismunandi kríteríur og einna helst hvort sjónvarpsserían Devs fái að fljóta með?

    Svarið er já.

    En þá er enn haugur af safaríkari spurningum eftir og misskýrum svörum, pælingum eða umræðupunktum, sem ætti að vera í ágætum stíl við Garland sjálfan.

    Efnisyfirlit:

    00:00 - Af hverju Garland?

    12:09 - Þungbær breyskleiki…

    30:01 - Ólíkir listar

    33:45 - Warfare

    38:20 - MEN

    40:45 - Annihilation

    43:21 - 28 Years Later

    47:41 - Dredd

    51:04 - Devs

    55:34 - 28 Days Later ofl.

    1 hr 22 min
  • Coyote vs. Acme (2026)

    Fæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort myndin ætti nokkurn tímann eftir að líta dagsins ljós (enda munum við hvernig fór fyrir aflýstu Batgirl myndinni...). Nokkrum árum síðar kom framleiðslufyrirtækið Ketchup til að bjarga öllum málum og þar af leiðandi gefa myndinni tækifæri til þess að eiga eitthvað líf eða í það minnsta skila sér til áhorfenda.

    Coyote vs. Acme tekur frumlegan vinkil á dómsmálaþriller í hálfgerðum '90s stíl og sýnir hvað tæki við ef hinn góðkunni Wylie E. Coyote myndi loksins ákveða að lögsækja stórrisana hjá Acme kompaníinu eftir síendurteknar bilanir á græjunum þeirra. Eftir taumlausar feilaðar tilraunir til að klófesta Road Runner-fuglinn er komið að hörðu baráttunni, en það lögsækir enginn stórfyrirtæki eins og Acme án afleiðinga og mögulegra ormagryfja. En ætli þá sléttúlfurinn komist þá nokkuð nær stóra draumnum að ná þessum blessaða fugli eða er stærri hugsjónarbarátta tekin yfir?

    Bíófíklar fengu brellumeistarann og trausta fastagestinn Fannar Traustason til að veita örlitla innsýn á bak við gerð þessarar myndar. Upp koma líka stærri spurningar, eins og hvort þetta gæti sennilega verið langbesta 'Looney Tunes' myndin, eða í það minnsta sú snjallasta. Fannar vekur einnig upp spurninguna um hvort myndin gæti líklega verið *of* snjöll ef ekki fullorðinsleg fyrir yngri hópana.

    Og talandi um það, ætli einhver fjórmenninganna í stúdíóinu hafi horft á hana með íslensku tali?

    Ein leið er til að komast að þessu, og það er að skella sér í sparifötin, setjast í dómsalinn, sperra upp eyrun og hlera drengina kveða upp úrskurðinn um ágæti (eða ofmat...) þessarar leiknu- og teiknuðu bræðingarmyndar. Hlaupum af stað og könnum málið.


    *Meep meep!*


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Aðkoma Fannars að myndinni

    07:48 - Langt ferðalag útgáfunnar

    19:03 - Looney Tunes minningar

    27:30 - Meira um brelluvinnu

    40:03 - Bíófíklar vs. Acme

    48:48 - Ný hlið fígúranna

    51:06 - Spillar og sprell

    01:00:56 - Í samanburði við…

    1 hr 7 min
  • Clue (1985)

    Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og '80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Upphaflega gefið út undir nafninu 'Cluedo'.

    En vissir þú að nafnið Cluedo væri samblanda af Clue+Ludo? og að það hafi alltaf verið upprunalegt nafn spilsins en breytt fyrir amerískan markað? Og eigum við að ræða hvað frammistaðan og hlaupagangurinn hjá Tim Curry* í þessari mynd er mikil frussandi snilld?!

    Íris, Tommi og Auður Svavars eru sest við matarborðið til að finna út hvernig í ósköpunum þessi mynd fúnkerar svona vel og hvað dræma aðsókn hennar á sínum tíma hefur rænt frá okkur heilu flóruna sem við hefðum getað fengið af flippuðum borðspilsförsum.


    En... Upp með vopnin og í gang með fókusinn. Nú þarf að leysa eina galna ráðgátu...


    *Og hvíl í friði, elsku Tim! Bíófíklar eru þér ómælanlega þakklátir fyrir allar yfirdrifnu minningarnar og ekki síst hláturinn.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - ‘Gistipartímynd’

    07:53 - Ólíku endarnir

    12:45 - Karaktersúpusnilld

    21:41 - Borðspilsmyndir

    31:28 - Í andstæðulitum

    36:36 - Íslenskt Clue

    48:07 - Samantekt


    56 min
  • Primetime (2026)

    Það er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna sína í hinni væntanlegu Dune: Part Three. Þá komum við að Primetime, þar sem Pattinson gjörsamlega hverfur inn í hlutverk sitt sem hinn alræmdi og heimsfrægi Chris Hansen.

    Mynd þessi er algjörlega gerð án samþykki Hansens og fjallar um áhugavert tímabil í bandarískri sjónvarpssögu þar sem þættirnir To Catch a Predator hófu göngu sína áður en allt framleiðsluferlið varð að hreinræktaðri katastrófu.

    Bíófíklar buðu Gabríel Jean-Sage De-Fontenay aftur velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem margbrotið umræðuefni er til umfjöllunar. Drengirnir við míkrafónanna stúdera stílbrögð, narratífu og almennan árangur þessarar bíómyndar auk þess að kafa aðeins út í ‘TCAP’ bóluna, áhrif hennar og eftirleiki.

    Hlustandi er hvattur til að fá sér sæti og láta vel (en ekki of vel…) um sig fara, því nú hefst óþægilega samtalið.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Skandalar í brennidepli

    07:17 - To Catch a Predator

    13:23 - Peningar, frægð og status

    20:03 - Lance Oppenheim er…

    32:02 - Ósamþykki Hansens

    37:13 - Um dekruð börn…

    41:15 - Fávitar og spillar

    49:51 - (Sjálfs)blekkingarleikir

    1 hr 1 min
  • Resident Evil (2002-2017)

    Resident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar vissulega mokuðu inn sérdeilis hlass af seðlum, þó aðdáendur tölvuleikjanna sátu ekki glaðir með úrvinnsluna.

    Til að viðra með Bíófíklum hinar ýmsu vangaveltur varðandi þessa seríu er Gabríel Jean-Sage De-Fontenay stiginn inn í stúdíóið. Skemmst er frá því að segja að Gabríel er mikill unnandi leikjanna.

    Merkilegt nokk þá sammælast mennirnir við mækana ekki um hver er besta eða skásta myndin í þessari bíóseríu, en hvað með verstu?

    Dúndrum okkur í leðrið og leggjumst í sameiningu öll á kaf inn í þennan viðbjóð.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Um tölvuleikina…

    06:51 - Resident Evil

    17:02 - Apocalypse

    24:40 - Extinction

    32:14 - Afterlife

    42:07 - Retribution

    47:12 - The Final Chapter ofl.

    1 hr 1 min
  • Resident Evil (2026)

    Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Road leikjamyndanna.’

    Viktor Árni Júlíusson fastagestur er dyggur aðdáandi Resident Evil tölvuleikjanna og gekk hæstánægður út af þessari mynd. Bíófíklar tóku honum og alls konar umræðum um Cregger, hinar bíómyndirnar og vörumerkið sama og fagnandi. Ekki eru allir á sömu skoðun við borðið um óheflaða hæpið eða ótvíræðu gæði þessarar Resident Evil myndar, en það er heldur betur nóg til að róta í hvað varðar framsetningu, stíl og endalausu páskaegg myndarinnar.

    Upp með byssurnar, hunsið hengilásin og tökumst á við þessa bölvuðu blóðugu vitleysu saman.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Páskaegg Creggers
    08:45 - Röfl um lúxussali ofl.
    19:47 - Samantekt án spilla
    26:55 - Spillar hefjast…
    33:19 - Bregður og viðbjóður
    40:14 - Austin power’ið
    52:25 - Meira svona?

    1 hr 4 min
  • The Invite (2026)

    Matarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth Rogen, Penelope Cruz og Edward Norton.

    Íris Árnadóttir leiðir samnörda sína í þessu umræðuboði þar sem The Invite er krufin sundur saman, þar af leiðandi með alls konar spillum.

    Upp með glösin, niður með buxurnar og leggjumst öll á gott trúnó um stórskemmtilega mynd.


    Efnisyfirlit:
    00:00 - Boð og boð
    13:35 - Þras eða ró
    24:02 - Ræða Nortons
    32:02 - Að njóta eður ei
    44:20 - Endirinn…

    57 min
  • Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan?

    Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? 

    Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en annað.

    Íris Árnadóttir samdi megnið af spurningunum, en þá er bara að hlera herlegheitin, og í senn spyrja sig hvernig í ósköpunum fimm manns eru í þættinum þegar míkrafónarnir eru bara fjórir…


    Efnisyfirlit:
    00:00 - ‘Öðruvísi teik’
    08:12 - Óþægilegur bangsi
    12:04 - Kokkurinn eða mannætan?
    15:09 - Flokkaskipti
    24:42 - Erlent rímeik
    28:40 - Þrenna og söngleikir
    41:06 - Frændsemisbarn…
    49:01 - “Ha…??!’ mynd
    59:14 - Horror-klisjur
    01:05:05 - Rom-com klisjur

    1 hr 17 min

About Bíófíklar

From the publisher's feed

Hlaðvarp um bíódellu.