Bíófíklar

Bíófíklar

By Bíófíklar HlaðvarpTV & Film
Download on the App Store

Bíófíklar episodes

  • Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan?

    Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? 

    Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en annað.

    Íris Árnadóttir samdi megnið af spurningunum, en þá er bara að hlera herlegheitin, og í senn spyrja sig hvernig í ósköpunum fimm manns eru í þættinum þegar míkrafónarnir eru bara fjórir…


    Efnisyfirlit:
    00:00 - ‘Öðruvísi teik’
    08:12 - Óþægilegur bangsi
    12:04 - Kokkurinn eða mannætan?
    15:09 - Flokkaskipti
    24:42 - Erlent rímeik
    28:40 - Þrenna og söngleikir
    41:06 - Frændsemisbarn…
    49:01 - “Ha…??!’ mynd
    59:14 - Horror-klisjur
    01:05:05 - Rom-com klisjur

    1 hr 17 min
  • Ghost World (2001)

    Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar.

    Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla með samnefndu myndasöguna og hefjast þá ýmsar umræður um muninn á kvikmyndinni og smásögunum, vanmetna leiksigurinn hjá Steve Buscemi og jafnframt hinni viðkunnanlegu Thoru Birch - sem lítið hefur til sést á undanförnum árum. Hið sama á reyndar við um leikstjóra myndarinnar líka.

    Setjið nú sígildu og fágætu vínylplötuna á fóninn, dressið ykkur upp eftir þörfum og skottist með í þetta sérkennilega ferðalag um líf og langanir minnisstæðra sérvitringa.

    (Beðist er velvirðingar á því hvað nokkrir við míkrafónana eru slapparalegir til hljóms, en þar er vesalings haustpestin að verki...)


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Sorgarfregnir úr mannaheimum

    13:52 - Draugaveröld

    20:56 - List eða ekki list

    31:07 - Enid + Seymour

    38:28 - Thora Birch

    44:55 - Scarlet Johansson

    48:52 - ‘Wowsville’...

    53:11 - Samantekt

    1 hr
  • Grease (1978) & Grease 2 (1982)

    Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu.

    Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi skortur á heilum kynslóðunum sem þekkja allflest lögin úr þeirri mynd. Þar að auki var þetta bíómyndin sem skaut John Travolta (og Oliviu Newton-John í einhverjum mæli) hraðar upp stjörnuhimininn.

    Grease 2 er önnur saga; sú mynd hefur verið stuttlega rædd annað slagið í hlaðvarpinu en aldrei til fulls… fyrr en núna!

    Það er vægt til orða tekið að fullyrða að Grease 2 er óvinsælli myndin af þeim tveimur; fæstir úr upprunalegu myndinni snéru aftur (en persónurnar voru svo sem löngu búnar að útskrifast…) og lögin þótti alls ekki jafn grípandi að mati áhorfenda og gagnrýnenda. Að vísu er erfitt að neita því að Michelle Pfeiffer átti þarna massasvala innkomu og gladdi fáeinan einstaklinginn með sóló-söngnum ‘Cool Rider’, en listinn yfir kosti þessarar mynda ná sjaldnast lengra en það.

    Þá að sjálfsögðu er einn ónefndur Bíófíkill sem hefur í áraraðir tekið upp mótorhjólahanskann fyrir hinni veraldlega hötuðu Grease 2. Hvers vegna? Það veit enginn, nema jú, hlustandi góður sem kýs að ganga í klíkuna og hlera þetta djúsí spjall um myndirnar tvær.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Minningar af Koppafeiti

    17:05 - Kynjapólitíkin

    24:45 - Litrík flóra persóna

    29:52 - Dans- og bílakeppni

    36:58 - ‘Fimm-söngleikja-reglan’

    45:47 - Grease 2…

    54:01 - Umdeildari lög

    58:00 - Dólgslæti persóna

    01:07:22 - Týnda sjónvarpsserían…

    1 hr 17 min
  • Topp 5: John Waters

    Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar.

    Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry Baby, svo aðeins nokkur dæmi séu nefnd. Má þá líka gjarnan færa þau rök að Waters hafi kynnt heiminum fyrir óviðjafnanlega skemmtikraftinum Divine.

    Íris Árnadóttir heldur utan um taum þessa innslags og í stúdíóið með henni eru mættir þeir Ormur Guðjónsson og Haukur Heiðar Steingrímsson. Saman velja þau sínar uppáhalds myndir eftir þennan snilldarlega sérvitring - sem er svo sannarlega ekki allra - og skoða þau ýmsu mynstur sem hafa fylgt honum í áratugaraðir. En aðdáendahópar Waters eru dyggir, mjög svo utangarðs í ýmsum samfélögum og e.t.v. prakkaralegir, líkt og heilinn á bak við titlaflóruna.

    Hér verður allsvakalega gramsað, rökstutt og róterað í alls konar gúrme skít í tengslum við þessa óvenjulegu filmógrafíu frá enn óvenjulegri kvikmyndagerðarmanni.

    Ríðum á vaðið, pössum upp á kjúklinginn og höfnum öllum samfélagslegum normum. Hláturtaugar verða sennilega kitlaðar. 


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Testum nú Waters

    07:03 - Fyrsta upplifunin

    14:49 - Uppáhalds leikari

    17:35 - Divine legasían

    24:27 - Cameo’in og einkennin

    38:47 - Cry Baby

    49:42 - Hairspray

    58:56 - Polyester

    01:15:27 - Serial Mom

    01:26:56 - Female Trouble

    01:42:23 - Pink Flamingos

    1 hr 59 min
  • Deadpool (2016-2024)

    Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda. 

    Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng og á tíðum kolólögleg, þegar stærsti aflgjafinn var svonefnt ‘test reel’ lak með undraverðum hætti á internetið við ómælanlegan fögnuð netverja og áhorfenda. Á þeim tíma voru margir enn með óbragðið í munninum eftir að Deadpool karakterinn fékk hlægilega ef ekki móðgandi meðhöndlun í sorpmyndinni X-Men Origins: Wolverine.

    En talandi um Wolverine! Þá hefur Jarfinn sjálfur oft verið hluti af Deadpool-seríunni, beint eða óbeint, og leiddi það á endanum til þess að þeir sameinuðust með ógleymanlegum hætti í þriðju Deadpool-myndinni. Engu að síður vakna þarna upp ýmis konar spurningar, eins og: Eru vinsældir þessara mynda sjálfkrafa ávísun á gæði? Hversu vel eldast þær eiginlega eða eru þær jafnvel bara ákveðin búbbla síns samtíma? Og þá að sjálfsögðu líka, að öllu sögðu: Hver er besta Deadpool myndin af þessum þremur?

    Bíófíklar leggja í það að svara þessum og miklu, miklu fleiri spurningum með óforskammaðri greiningu á myndasyrpunni þar sem engu er tilsparað varðandi slettur og blótsyrði. Nú er lagt í subbulegt ferðalag skoðana og sturlaðra staðreynda.

    Beint í búningana með alla, smellum fáeinum [RITSKOÐAÐ]-línum í nasirnar og bölvum út í allar áttir, því nú skal hefja fjörið. Þess að auki er hlustandi jafnframt hvattur til að hlaða í eina eða tvær Chimichanga-rúllur á meðan hlustun stendur.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Forsagan og Fox-fíaskóið

    07:27 - X-Men Origins: Wolverine

    14:38 - Deadpool

    31:43 - Deadpool 2

    52:03 - Deadpool & Wolverine

    1 hr 7 min
  • The End of Oak Street (2026)

    Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk upp á því við Bíófíkla að fjalla um kvikmyndina þar sem þeir J.J. Abrams og David Robert Mitchell (It Follows ofl.) snúa saman bökum með vonir um að kæta og hrella bíógesti um allan heim.

    The End of Oak Street er ráðgáta, skrímslamynd og sci-fi spennutryllir sem gerist á níunda áratugnum. Eftir að dularfullt yfirnáttúruafl flytur Eikargötu - og allt hverfið eins og það leggur sig - á óþekktan stað (og mögulega í óþekktan tíma…), uppgötvar fjölskylda fljótlega að tilvera hennar veltur á því að þau standi saman á meðan þau reyna að átta sig á því sem gerðist. 

    Arnar og Bíófíklar leggjast nú saman í ferðalag um að meta og kanna ágæti þessa ferðalags sem þau Anne Hathaway, Ewan McGregor og fleiri prýða svo hressilega. Er þetta drekkhlaðið stuð, innantómt fjör eða hreinlega allt bara innantómt gól? Lifir hundurinn þetta af? Hvað með kettina?

    Og hvað segir risaeðluséníið í stúdíóinu?

    Flytjum okkur nú á slóðir út fyrir endimörkin þar sem tími og rúm er komið í algjört rugl, og metum afþreyingargildi þessa rugls. Athugið að búast má við öskrum. Og spillum.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hemmi Gunn og 4DX

    14:41 - Hvert fór JJ Abrams?

    20:30 - Eikarstæti án spilla

    30:26 - Risaeðlupælingar

    38:17 - Yfir í spoilera…

    50:13 - Klappað í salnum

    1 hr 5 min
  • Mighty Morphin Power Rangers (1995)

    Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns. Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum útfærslum, formum, litum og myndum, hefur aldrei verið gífurlegur hluti af íslenskum kúltúr en víða um heim hefur þetta vörumerki haldið stjórnlausri göngu í áraraðir og séð sinn skerf af lægðum og hæðum. En vissulega skulu fullorðnir ekki gera kröfur um hágæðaefni þegar umrædda vörumerkið hófst með því að ‘stela’ óbeint frá annarri þáttaröð, og sérstaklega þegar hugmyndin gengur út á að kæta sykuróða krakkalinga og selja þeim gommur af leikföngum.

    Bíófíklar buðu Vilmundi Erni Gunnarssyni aftur í stúdíó Podcaststöðvarinnar en hann átti hugmyndina að grandskoða mátt og mistök tveggja þekktustu Power Rangers-bíómyndanna, með áherslu á legasíu batterísins eins og það leggur sig. Í brennidepli er það sum sé Mighty Morphin Power Rangers: The Movie frá ’95, með léttri skimun á hundaskítinn frá 1997 sem kallast ’Turbo: A Power Rangers Movie. Vilmundur og vinir eru heldur ekki sparsamir á steiktar og sturlaðar staðreyndir um Power Rangers í gegnum árin, harmsögur af leikurum þáttanna og - að sjálfsögðu - græðgina og nískuna í spottatogaranum Haim Saban. Þá er einnig spreytt sig í stóru málunum, eins og hvers vegna foringinn Zordon vill eingöngu safna til sín liðum unglinga og af hverju hann ákvað að búa til taugaveiklað vélmenni til að aðstoða sig í höfuðstöðvum sínum...

    Fjórmenningarnir í settinu koma sér í stellingar, kalla út nöfn á risaeðlum með háfleygum hætti og rýna í umfjöllunarefni þar sem einn við míkrafóninn spyr réttilega að eftirfarandi spurningu; Er þetta nördalegasti þáttur Bíófíkla til þessa?

    Og hvernig í heitasta helvítinu ná drengirnir að þræða Glæstar vonir og Leiðarljós inn í þetta umfjöllunarefni?


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Klám og græðgi

    11:44 - Frá sjónarhorni barns

    19:46 - Ríbútt, Twitch og ‘special’inn’

    35:50 - “Notist í neyð”

    45:12 - Skósveinar úr leir

    51:11 - Sambærileg ofurgengi

    01:00:11 - Glæstar vonir og Leiðarljós…

    1 hr 8 min
  • Spider-Man: Brand New Day (2026)

    Nú er Peter Parker orðinn niðurlútur, enda liðin fáein ár síðan allir hans nánustu gleymdu honum og þýðir þá ekkert annað fyrir hann að sökkva sér dýpra í hlutverk vingjarnlegu hverfishetjuna í New York. Spider-Man: Brand New Day er fjórða kvikmyndin með Tom Holland í burðarhlutverkinu og má fastlega reikna með að um sé að ræða eina af langstærstu myndum ársins.

    Bíófíklar tóku á móti fastagestinum Siggu Clausen, sem oft hefur verið útnefnd sérfræðingur hlaðvarpsins í Marvel málum. Nóg er til að ræða í tengslum við vegferð Hollands sem Köngulóarmaðurinn þar sem nú eru heil tíu ár liðin síðan hann skaut fyrst upp kollinum í Captain America: Civil War. 

    Farið er grimmt í gegnum Home-þríleikinn svokallaða og fjórðu myndina, með spillum og án þeirra. Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá mörgum netverjum og aðdáendum MCU-mynda að mikil leynd hefur hvílt yfir myndinni. En að sama skapi komast bíófíklar ekki yfir að kanna stærri spurningar Spider-Man myndanna; þá varðandi réttindamál og ekki síst: Hvar í ósköpunum geymir Peter Parker snjallsímann sinn þegar hann er í búningnum?

    Þá er bara að smella á sér grímurnar og skoða sveiflurnar á milli gæða.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Lúsmý í Hveragerði

    11:50 - Tom Holland slær metið

    26:56 - Home-þríleikurinn

    57:00 - Brand New Day án spilla

    01:11:00 - Spoiler-umræða

    01:33:35 - Atli Freyr sveiflast inn


    1 hr 48 min
  • The Warriors (1979)

    Walter Hill vissi stundum vel hvað hann söng og þegar hann afhjúpaði The Warriors á sínum tima fylgdi útgáfunni heilmikið vesen. Visssulega hitti ræman alveg í mark hjá ungu fólki en var ítrekað gagnrýnd fyrir að vera áhrifagjörn og hreinlega bara stórhættuleg. Þetta var líka fyrsta Hollywood-myndin sem fjallaði um gengi án þess að það fjalla um slíkt sem rót alls hins versta. Hill tók mjög pönkaða afstöðu í staðinn og legasía myndarinnar skýrir sig sjálfa.

    Ekki nema þú hafir aldrei heyrt um þessa mynd… En þá er ekkert minna tilefni til að hlusta á innilega krufningu Bíófíkla á The Warriors og sögunum á bak við gerð hennar. Í stuttu máli gerist hún í ‘myndasögulegri’ dystópíu þar sem gengi ráða ríkjum. Þegar Warriors-glæpagengið er ranglega sakað um morð, þurfa allir sem einn að slást við óvinahópa sem hundelta þá úr öllum áttum.

    Hugmyndin að þessari úttekt skrifast á góðkunnan gest, en það er plötu- og kanilsnúðurinn Atli Viðar Þorsteinsson (e. ‘Atli Kanill’). Atli á sér sterkar tengingar við kvikmyndina, söguna og tónlistarsöguna. Þá færir hann líka rök fyrir því að þetta gæti verið ein af þessum myndum sem FULLT af fólki hefur heyrt vísanir í, án þess að hafa séð myndina eða þekkja til hennar.

    Komið nú út að leika og verið öll með í eltingarleiknum því nóg er um bransasögur og fróðleiksmola.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Algjör steypustöð

    14:40 - The Warriors

    25:21 - Eltingarleikur

    41:17 - Skrítin kúrekamynd

    57:00 - New York-mynd

    01:10:05 - Áhrif og eftirhermur

    01:21:10 - “Alltof sætt tyggjó”

    1 hr 28 min
  • The Rules of Attraction (2002)

    Hefur þú heyrt um vanmetnu ’systkinamynd’ hinnar geggjuðu American Psycho? 

    Nei? Já? Hvílíka lukkulega tilviljunin, því nú skal ítarlega leggjast yfir kolsvörtu unglingamyndina sem (því miður) of fáir hafa séð. Þetta er The Rules of Attraction, sem fjallar meðal annars um ónytjunginn Sean (bróður Patricks…) Bateman og sveittu ævintýri nokkurra ólíkra háskólanema; ástir þeirra og örlög með smá sukki.

    Hér fara James Van Der Beek, Shannyn Sossamon, Ian Somerhalder, Eric Stoltz og Clifton Collins Jr. með lúmskan leiksigur. Útkoman er ekki allra, en algjört partí engu að síður!

    (Kannski ekkert sérstaklega gott partí, og bersýnilega fráhrindandi satt að segja, en án efa brjálæðislega áhugavert innlit.)

    Auður Svavars er mætt aftur í Podcaststöðina til að ræða þessa óvenjulegu kvikmynd úr smiðju Rogers Avary og byggð á samnefndri skáldsögu eftir Bret Easton Ellis. 


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Spice World & Rules...

    07:49 - Ógagnkvæm hrifning

    11:24 - Ferðalag og fávitaskapur

    19:51 - 'NC-17 útgáfa'

    28:28 - Roger Avary

    45:12 - Endir og byrjun

    55:14 - Pjúra óskhyggja?

    1 hr 1 min

About Bíófíklar

From the publisher's feed

Hlaðvarp um bíódellu.