
Sign up to save your podcasts
Or


Margt hefur breyst síðan Scary Movie leit fyrst dagsins ljós fyrir 26 árum, bæði út frá þróun hryllingsmynda og í hversdagsheiminum almennt. Serían hefur flakkað á milli alls konar ólíkra húmorista og lagðist í góðan dvala eftir misheppnuðu fimmtu myndina frá árinu 2013. Nú eru Wayans-bræður mættir aftur ásamt fleirum úr gamla teyminu, með það að markmiði að hrista duglega í smekklegheitum, velsæmismörkum og hryllingsmyndaformúlum. Hvort húmorinn allur gangi upp er algjört smekksatriði. En smekksatriði sem er þess virði að greina.
Kjartan, Tommi og Atli Freyr ræddu þessa sjöttu mynd með góðvini hlaðvarpsins, Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Hingað til hefur Arnór ekki leynt ást sína á fyrri myndum seríunnar og fór hann bjartsýnn á þá nýjustu.
Til að koma beint að efninu er öruggt að segja að skoðanir bíófíkla og gests séu misjafnar á endurkomu Wayans-bræðra í þessa syrpu. Er þetta kannski bara mynd þar sem best er að slökkva á heilanum til að geta öskurhlegið yfir ruglinu eins og óður bavíani? Eru brandararnir mögulega orðnir þreyttir og örvæntingafullir? Hversu mikið er að marka fáeina spretti sem ganga upp?
Svörin fást öll í kostulegu hlustuninni, og eldmóði Arnórs.
Efnisyfirlit:
00:00 - Scary Movie 1-5
14:28 - Scary MoVIe
20:55 - Keimlíkir djókar
28:54 - Árshátíðarmynd
36:37 - 'Virkir í athugasemdum'
44:09 - Endurtekningar á teygðum lopa
50:43 - Bingó í salnum
59:19 - Samantekt
Gættu hvers þú óskar þér. Í tilfelli litlu 'stórmyndarinnar' Obsession hefði leikstjórinn og YouTuber'inn Curry Barker ekki mögulega getað óskað sér betri útkomu hvað aðsóknina varðar.
Þessi mynd hefur verið að vekja gríðarlega athygli um allan heim og árangurinn er þeim mun magnaðri í ljósi þess að myndin er sögð hafa kostað undir milljón dollara. Þar af leiðandi má tvímælalaust gera ráð fyrir að Barker sé kvikmyndagerðarmaður sem kominn er til að vera og ekki síður leikkonan Inde Navarette, sem er hreint út sagt meiriháttar í hlutverki sínu.
Íris, Kjartan, Tommi og Atli Freyr kryfja atburðarás þessarar stórvinsælu indí-myndar eftir bestu getu, þar sem ólíkur bakgrunnur hvers og eins við mækinn spilar einhverja rullu í túlkunum. Obsession er kannski ekkert sérlega djúp bíómynd en það breytir því ekki að um margt er að ræða í tengslum við skilaboð hennar, persónusköpun og þemu. Er hægt að óska eftir meiru?
Efnisyfirlit:
00:00 - Sumarbíó og Backrooms
11:06 - Obsession, án spilla
21:05 - Bróðir eða ekki bróðir
36:44 - Spillarnir krauma...
43:25 - Alvöru Nikki/"Djöfla-Nikki"
54:03 - Flótti undan ábyrgð
01:08:05 - Jákvæðar breytingar
01:14:11 - Samantekt
Joel og Ethan Coen eru tvímælalaust prakkaralegt tvíeyki sem leynt hefur margt frumlegt og fjölbreytt í gegnum áraraðirnar. Þetta eru kvikmyndagerðarmenn sem hafa einstaka hæfileika þegar kemur að farsakenndum glæpasögum, misskilningum, hálfvitum, afbyggingum formúla og mörgu, mörgu öðru.
Fastagesturinn Atli Sigurjónsson kveðst vera mikill aðdáendi Coen-bræðra og skoraði á Bíófíkla til að hlaða í áskorun þar sem framúrskarandi myndir dúósins eru fyrir valinu. Jafnframt er reynt að komast til botns á því hvað einkennir frábæra ‘Coen-bræðra mynd’ og hvers vegna sérviska þeirra hittir mismikið í mark hjá almenningi.
Hlustandi kær er hvattur til að hlera þennan fróðlega fíflagang með líflegri innsýn í hugarheim tveggja virtra furðufugla.
Efnisyfirlit:
00:00 -Einkenni eða mynstur
06:51 - *Hvað* er Coen-mynd?
18:36 - The Big Lebowski
28:00 - Barton Fink
33;10 - Burn After Reading
38:03 - Miller’s Crossing
44:51 - O Brother, Where Art Thou?
49:38 - A Serious Man
53:49 - No Country for Old Men
01:02:26 - The Man Who Wasn’t There
01:11:26 - Fargo
01:20:44 - Raising Arizona
Star Wars hefur í áratugaraðir reynst sumum mikill gleðigjafi en hafsjór af triggerum fyrir aðra hópa. Þetta þykir furðu áhugavert í ljósi þess hversu títt þessar bíómyndir predika uppbyggjandi móral og stuðla að von, sameiningu og bjartsýni gegn myrkari mynstrum. Mætti jafnvel færa rök fyrir að Star Wars ‘aðdáendur’ séu á meðal reiðustu hópa veraldarvefsins, kaldhæðnislega.
Kjartan, Tommi og gestur þeirra, Einar Michaelsson, ræða tvær umdeildustu ‘Disney Star Wars’ myndirnar í seríunni; almennt umtal þeirra, legasíu á meðal aðdáenda/markhópsins, sitthvora kosti þeirra og galla. Tilangur umræðunnar er að komast aðeins til botns á því hvers vegna svona mikið úlfúð hefur fylgt þessum tilteknu myndum og hvað þær segja í sameiningu um svokallaða Sequel-þríleikinn sem hófst með aðsóknarsprengjunni The Force Awakens.
Þá skal bara kveikja á geislasverðunum og kanna hvað liggur á bak við nöldrið sem oft hefur einkennt Star Wars vörumerkið, og um leið hlusta hvort nákvæmlega sú krufning leiði til (en ekki hvað…) nöldurs!
Efnisyfirlit:
00:00 - Hver er Rey?
05:57 - Upprunalega Star Wars
16:36 - Hvað vilja aðdáendur?
25:58 - Karakterdýnamík í klessu
36:24 - Nostalgíubeiturnar
41:48 - “Strákafantasía”
50:15 - Er sjarminn farinn?
01:02:11 - Gæðamunur á myndum
01:16:55 - Samleikur við dauða manneskju
01:19:33 - Fúli Ford
Það hlaut að koma að því. Eitt vinsælasta tvíeyki síðustu ára úr Stjörnustríðsheiminum fékk að skjótast upp á hvíta tjaldið. The Mandalorian and Grogu er fyrsta Star Wars bíómyndin í sjö ár og má lengi spyrja sig hvort um ræði fagnaðarerindi fyrir aðdáendur eða merki um ákveðin vonbrigði. Þá er einnig kjörið að kanna hvort hægt sé að njóta þessarar myndar án þess að hafa horft á sjónvarpsþættina, eða aðrar Star Wars myndir ef út í það er farið.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er sestur í stúdóið hjá þeim Kjartani og Tomma þar sem mikilvægu nördamálin eru í brennidepli. Af stærra umræðumenginu að dæma er að minnsta kosti ljóst að skoðanir gætu skipst í ólíkar áttir. Ætli Einar sé á því að Jon Favreau (ásamt Dave Filoni) hafi dúndrað út algjörri neglu fyrir MandoGrogu unnendur? Hvaða kröfur gerði Kjartan til myndarinnar ? Er þetta leiðin, eða bara leiðinlegt?
Betra er að halda hjálminum áföstum, því leiðin að uppgjörinu gæti orðið snúin - þó fjörið vanti ekki.
Efnisyfirlit:
00:00 - Íslendingar í The Odyssey
07:05 - Einar á fullu
12:38 - Star Wars tilvistarkreppan
22:23 - ‘Fan edits’
26:55 - MandoGrogu, án spilla
42:44 - Spillingar!
48:59 - Tónninn hjá Favreau
01:01:04 - Samantekt
Warren Beatty og litríka draumaverkefni hans frá árinu 1990 er ein djöfulsins skrípó-steypa, en með merkilega sögu að baki og síðan hún kom út. Dick Tracy var gefin út skömmu eftir stórvinsældir fyrstu Batman myndarinnar frá Tim Burton og býr yfir (næstum því…) samskonar fíling.
Tommi er sestur niður með Ötlum tveimur, sum sé Atla Frey og Atla Sigurjóns þar sem saga ræmunnar, stjarna, efnistök, leikarasúpa, litaþemu, Óskarstilnefningar, aðsókn og allt tilheyrandi er tekið til ítarlegrar skoðunar.
Skellið ykkur í skærgulu frakkanna og upp með Tomma-byssurnar… Þetta verður ruglað!
Efnisyfirlit:
00:00 - Litir og leikarar
12:10 - "Dirty Harry týpa"
24:18 - Óskarsmynd (?!)
30:31 - Fullorðinsleg krakkamynd...
38:27 - Markaðssetningin
45:19 - Meira um Warren...
52:40 - Tracy Zooms in...
56:00 - Fleira stílíserað 'noir'...
01:00:06 - Disney/Touchstone
Ekki láta gallsúra titilinn blekkja. Nirvanna The Band The Show The Movie er sprenghlægileg tímaflakkskómedía um tvo félaga sem setja líf sitt og dægurmenningu á annan endann.
Þeir Matt og Jay eiga þann langþráða draum að ná stórvinsældum með hljómsveit sinni, Nirvanna. Áætlanir þeirra um að fá gigg á skemmtistaðnum Rivoli í Toronto hafa gengið hægt fyrir sig og þolinmæðin á þrotum. Þá breytast horfur skyndilega þegar Matt finnur upp á tímavél fyrir slysni og félagarnir eru óvart orðnir heimsins fyrstu tímaflakkarar. Ætli þeir hafi þá loksins fundið lykilinn að tilvonandi heimsfrægð eða enda verða hlutirnir mögulega enn verri?
Þessi frumlega, pönnusteikta og tilkomumikla ræma er byggð á samnefndum sjónvarpsþáttum sem örfáir Íslendingar ættu að þekkja til. Á meðal þeirra Íslendinga eru Atli Sigurjónsson, sem mættur er í stúdíóið til Tomma og Kjartans ásamt Fannari Traustasyni, sem kom alveg kaldur að Nirvanna, en við upptöku þessa þáttar voru Bíófíklar nýbúnir að halda sérsýningu á myndinni í Smárabíói.
Hefst þá hin alíslenska krufning á Hljómsveitinni Nirvanna og brengluðu ævintýrum þeirra.
Myndin er rædd með spillum...
Efnisyfirlit:
00:00 - Nirvanna The Band
03:22 - 'The Show'
08:35 - 'The Movie'
11:11 - CN turninn
20:29 - Trylltar blekkingar
27:00 - Áætlun með tímavél
34:50 - Tímalínan brenglast
41:27 - Hálfvitalegir snillingar
46:46 - Öskurhlátur í bíósal (þungir spillar!)
52:25 - 'Force Awakens' þátturinn...
58:42 - Löggubílarnir
01:02:06 - Munur á útgáfum
01:08:22 - Skapandi takmarkanir
01:18:16 - Samantekt
Mortal Kombat vörumerkið hefur haldist býsna stöðugt og notið ágætra vinsælda síðustu 30+ árin. Fyrir utan heimsfræga tölvuleikinn og öll þau mismunandi form sem hann hefur fengist í, má nefna teiknimyndir, sjónvarpsþætti, vefþætti, myndasögur og - að sjálfsögðu - bíómyndir sem sveiflast hafa heiftarlega til í gæðum.
Þeir Atli Freyr, Tommi og Kjartan skelltu sér á ‘fjórðu’ Mortal Kombat-myndina, sem er þó í raun númer tvö í glænýrri endurræsingu. Um er að ræða beint framhald myndarinnar frá 2021 sem lenti með litlum hvelli í miðjum heimsfaraldri en varpaði engu að síður fram stórum loforðum um áframhaldið.
Nú fer Karl Urban á kostum ásamt fleiri slagsmálaóðum góðkunningjum í þeysireið þar sem ýmsu subbulegu er tjaldað til. Kjartan kemst þó ekki hjá því að spyrja hvaða kröfur er sanngjarnt að áhorfendur geri til svona myndar. Er Mortal Kombat II lítið annað en skítþunn hasarsteypa sem eingöngu er ætluð aðdáendum tölvuleikjanna eða leynist meira á bakvið þessa ljómandi flippuðu bardagaveislu?
Skoðanir munu stangast á og þá er ekkert annað hægt en að kanna hver þremenningana hefur vinninginn.
Efnisyfirlit:
00:00 - Lamið yfir víðan völl
12:49 -Mortal Kombat (2021)
21:23 -Mortal Kombat II
27:18 - Spillar blæða…
30:11 -Nýjar áherslur
34:15 -Svindl og flipphljóð
42:12 - Fortnite-leiðin…
46:12 - Helvíti og blævængir
53:31 - Karakterar út um allt
57:26 -Samantekt
Hér kemur smá sprell með skondna sögu að baki. Kvöld eitt, fyrir fimm árum síðan (veturinn 2021 nánar til tekið…), settust þeir Tommi og Óli Bjarki Austfjörð niður við míkrafóna til að ræða stóru málin í tengslum við tvær af þekktari leiksýningum íslenskrar menningar. Bæði leikritin voru gefin út á VHS/DVD og hafa lifað ágætu ‘költ’ lífi síðan, einna helst hjá hópum sem eiga sér nostalgíurætur að tengja við þetta skrípóflipp úr smiðju Magnúsar Scheving.
Tommi og Óli, eins og má kannski heyra, eru vel galsaðir þegar upptökur stóðu en halda engu að síður efnistökunum hnitmiðuðum og krufningunni innan velsæmis- og skynsemismarka. Upp rísa spurningar á borð við þessar: Hvar er allt fullorðna fólkið í Latabæ? Hvers vegna er bæjarstjórinn svona niðurlútur? Af hverju eru krakkarnir með bílpróf? Hversu úthugsað er lykiláætlunin hjá Glanna glæp og af hverju í ósköpunum beitir Íþróttaálfurinn handrukkara-töktum á hrekkjusvíninu Höllu?
Þáttur þessi hefur lengi safnað ryki í geymslu og þótti bíófíklunum að nú væri sá tími kominn til að gefa þetta út.
Hví ekki?
Efnisyfirlit:
00:00 - Nostalgían kvödd
07:34 - Áfram Latibær
11:59 - Karakterkynningar
25:00 - Hentugar lausnir
39:52 - Bær sem heitir ‘Frábær’…
42:11 - Glanni glæpur…
48:12 - Ýktar breytingar
51:21 - Stóra planið
58:35 - Samantekt(ish)
Einn sá virkasti í bransanum og að öllum líkindum methafi þegar kemur að 'leikstjóraköttum' eða almennt lengri útgáfum af kvikmyndum. Þar að auki hefur Ridley Scott sýnt fram á gríðarlega fjölbreytni í gegnum áraraðirnar og gælt við alla mögulegu flokka; frá vísindaskáldsögum eða hryllingsmyndum til epískra períódumynda, sannsögulegra glæpamynda og meira að segja furðulegra gamanmynda.
Fjölbreytnin er meira að segja orðin svo mikil að lengi má spyrja sig; Hver eru einkenni kvikmyndar frá Ridley Scott? Hver eru mynstrin? Hvar liggja gildin? Hverjir eru styrkleikarnir?
Og... (vitaskuld!) hvaða fimm myndir frá manninum þykja mest framúrskarandi og hvers vegna?
Þeir Kjartan, Tommi og Birgir Snær tækla þessar spurningar og ýmsar fleiri, til að betur skilja þennan kvikmyndagerðarmann sem lætur fátt stoppa sig og virðist fara létt með það að dæla út hverri risamyndinni á eftir annarri. Stundum árlega!
Efnisyfirlit:
00:00 - Sjónvarp og stöff
11:51 - Boromír og Faramír
30:44 - Blade Runner
37:47 - Matchstick Men
40:34 - Black Hawk Down
44:22 - The Counselor
47:28 - Kingdom of Heaven: DC
52:50 - The Martian
59:47 - Thelma & Louise
01:02:26 - Gladiator
01:08:22 - Alien
01:21:26 - InfinityVision...?
From the publisher's feed