Bíófíklar

Bíófíklar

By Bíófíklar HlaðvarpTV & Film
Download on the App Store

Bíófíklar episodes

  • Birdman... (2014)

    Tómas Geir Howser er leikari á uppleið í lífinu og hefur marga fjöruna sopið á stuttum tíma á ferli sínum. Undanfarin ár hefur hann verið búsettur í London en Bíófíklar vildu ólmir grípa í hann á meðan hann heimsótti litla Ísland og leyfa honum að velja mynd til umfjöllunar. Tómas ákvað þá að velja líflegu Óskarsmyndina sem heitir að fullu nafni ‘Birdman or (The Unexpected Virtue of Ignorance)’ þar sem Michael nokkur Keaton sýnir stjörnuleik ásamt fleirum kunnuglegum.

    Kjartan, Tommi og Tómas ræða þessa ‘fever-dream’legu’ kvikmynd og marga hverja kosti hennar, orðspor, einkenni, stílbrögð og þá ekki síður Óskarinn almennt og þá bransapólitík sem fylgir þeim verðlaunum. 

    Komið ykkur á loft og hlustið á herlegheitin.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Cabaret og leiklist

    12:21 - Óskarsverðlaunin

    27:31 - Birdman…

    38:43 - Vald gagnrýnandans

    51:03 - Gimmick eða geggjun

    57:14 - Aftur að Óskarnum

    1 hr 9 min
  • The Truman Show (1998)

    Hér er mynd sem var heldur betur á undan sinni samtíð og var gefin út áður en raunveruleikasjónvarp fór að yfirtaka heiminn. The Truman Show er alveg einstaklega hressandi sci-fi “hryllingur” þar sem allt angar af tilgerð í umræddum þætti nema aðalpersónan. Þetta markaði í raun fyrsta dramatíska hlutverk gúmmíkarlsins Jim Carrey og er býsna athyglisvert hvað þessi kvikmynd hefur náð að eldast vel.

    Gestur þáttarins er Vilmundur Örn Gunnarsson, forfallinn bíófíkill og einn af óteljandi aðdáendum þessarar myndar. Saman fara þeir Kjartan og Tommi yfir mannlega þáttinn í Truman-þættinum, undirliggjandi óhugnaðinn, sjarmann og makalaust frumlegu framvinduna. Ætli einhver sé að fylgjast með? Hvað gerist ef einhver í stúdíóinu veit of mikið? Verður sá einstaklingur kannski numinn á brott?

    Svörin fást í hlustuninni, svo lykilatriði er að koma sér vel fyrir í baðkarinu.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Allir í sínum Truman-þætti

    03:43 - Mainstream Peter Weir

    08:47 - Prísund í beinni

    14:17 - Truman á YouTube

    18:21 - Rútína og flótti

    22:57 - Implantaðar fóbíur

    25:34 - Getnaður… í beinni?!

    31:35 - Allt í plati

    36:12 - Fiji…!

    38:46 - “Halló…?”

    41:13 - Ímynd gúmmíkallsins

    48 min
  • Scream (1996-2026)

    Fyrir þrjátíu árum síðan gerði Scream allt vitlaust og áhorfendur voru hiklaust ólmir í meira og enn meira. Þessi sería úr smiðju hrollvekjumeistarans Wes Craven hóf þarna langlífu göngu sína og síðan þá farið í gegnum alla flóruna af gæðum í höndum mismunandi teyma og leikstjóra.

    Þessi ádeilukennda blanda af slasher og ‘whodunnit’ ráðgátu hefur taumlaust leikið sér að formúlum og handritsreglum og má segja að það sé bæði óvænt og magnað að þetta sé enn í fullum gangi. En hvert áframhaldið leiðir og hver legasían verður á komandi árum er miklu stærri ráðgáta. 

    Í tilefni sjöundu myndarinnar, þar sem Kevin Williamson hefur formlega tekið við keflinu og sett allt fútt í nostalgíuna, ákváðu Bíófíklar að taka létta yfirferð á öllum eintökunum auk þess að hlaða í uppröðun á hverju þeirra.

    Kjartan, Tommi og Atli Freyr koma sér í gírinn og bera saman b(r)ækur um hvort Ghostface-morðinginn eigi enn nóg afl eftir í sér eða hvort betra sé að hengja upp grímuna og kalla þetta gott. Að þessu ógleymdu má eiga von á einum eða tveimur leynigestum, að hætti Scream-myndanna.

    Þá er betra að setja upp gerviröddina og grípa í símann. Nú skal ræða uppáhalds hrollvekjur. 


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Scream 

    18:41 - Scream 2

    27:06 - Scream 3 

    37:57 - Scream 4 

    43:54 - Scream ’22 

    46:32 - Scream VI 

    50:29 Scream 7 án spilla

    57:44 - Leynigestur og SPILLAR 

    01:09:22 - Gæðaröðun 

    01:14:32 - Annar leynigestur…

    1 hr 18 min
  • Topp 10: Arnór Steinn

    Ef það er til stærri aðdáandi kvikmyndarinnar Magnolia heldur en annar þáttastjórnenda Bíófíkla, þá er það Arnór Steinn Ívarsson. Eins og sumir kannski vita þá er Arnór annar heilinn á bak við hlaðvarpið Tölvuleikjaspjallið og stóðst kauði ekki mátið að kíkja til nágranna sinna í Podcaststöðinni og telja upp sínar uppáhaldsmyndir… í kexruglaðri númeraröð!

    Hlustandi má gera fastlega ráð fyrir ólgandi skoðunum og óséðum hneykslissvipum Bíófíkla, en ástríðan er að sjálfsögðu yfirráðandi hjá þremenningunum. Ef satt er það sem sagt er um að hláturinn lengi lífið, þá ætti þetta innslag Bíófíkla að bæta nokkrum mánuðum við æviskeið hvers og eins í stiknandi stúdíóinu.

    Fjölbreyttum titlum er lofað en film-bró-bræðurnir Nolan og Tarantino yrðu líka trúlega hæstánægðir með strúktúrinn á topplistanum að þessu sinni.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Matartips

    06:52 - Arnórslistinn

    11:30 - Scary Movie

    21:32 - Not Another Teen Movie

    31:41 - No Country for Old Men

    42:00 - Toy Story 2

    47:30 - The Bourne Supremacy

    55:33 - Once Upon a Time in America

    01:05:00 - The Princess Bride

    01:07:30 - The Departed

    01:10:59 - Magnolia

    01:14:25 - Hilmir snýr heim

    1 hr 18 min
  • The Nice Guys (2016)

    Oft er betra að veðja á Black. Þegar kemur að kjaftforum karakterum, kostulegum hasar og ruglaðri framvindu sem spila með væntingar áhorfenda, er yfirleitt hægt að reiða á hinn þrælskemmtilega Shane Black.

    The Nice Guys er (ó)umdeilanlega á meðal hans betri mynda en þarna fara þeir Ryan Gosling og Russell Crowe tvímælalaust á kostum og sýna jafnvel sínar bestu hliðar. Kómík og kaos er að minnsta kosti allsráðandi ásamt fjölda frasa og uppákoma sem endalaust er hægt að vitna í… allavega að mati þeirra sárafáu sem hafa séð myndina.

    The Nice Guys lenti ekki beinlínis með miklum vinsældarhvelli á sínum tíma - þvert á móti endaði hún í töluverðu tapi - en hefur seglað til sín dygga aðdáendur á undanförnum áratug. Þau Kjartan, Tommi, Frikki fastagestur og Guðbjörg Marín (e. betri helmingur Frikka, réttara sagt) rifja upp þessa ómótstæðilegu veislu af vitleysu þar sem harðsoðnar klisjur eru teknar í gegn með stöðugu sprelli í ólgandi ‘70s stíl. Sannkölluð “frasa-hasarmynd.” 

    Um að gera að leggja í hlustunina, hafa það næs og vera memm!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Grín með meiru…

    06:25 - Shane Black’isminn

    12:03 - Ryan Gosling og öskrið

    21:51 - Harðsoðnir stælgæjar

    27:06 - Fyndnir aukaleikarar

    32:04 - Drykkja og mannúð

    39:03 - Aðsókn/“Dumping ground”

    50:16 - Play Dirty og bolir!


    58 min
  • Pillion (2025)

    Einhver umtalaðasta mynd síðasta árs, jafnvel af mörgum talin ein sú heitasta ef ekki bitastæðasta.

    ‘Dom-com’ kvikmyndin Pillion virðist hafa heillað og heltekið gagnrýnendur og áhorfendur víða um heim og því er kjörið að komast til botns á því hvað einkennir þessa fyrstu kvikmynd leikstjórans Harrys Lighton. Hérna sameinast tveir gerólíkir karlmenn í umræðuvert og geysilega eftirminnilegt samband og það tekur ekki langan tíma fyrir áhorfandann til að laðast að öðrum þeirra, eða báðum.

    Kjartan og Tommi tóku á móti Írisi Árnadóttur og Steingerði Friðriksdóttur þar sem hver við sinn míkrafón lýsir upplifun sinni á myndinni. Að sjálfsögðu fylgir þessu líka að fara yfir hæðir og lægðir lykilsambandsins í myndinni. Hlustandi er því hvattur til að smella sér í leðrið og skella sér á fjórar fætur, vegna þess að nú hitnar í stúdíóinu!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hvað er ‘Pillion’?

    04:02 - Samantekt á undan spillum

    09:20 - Nördinn Colin (ath. spillar!)

    14:31 - Samþykki ofar öllu 

    21:26 - Mýtur um BDSM

    37:19 - Ást eða ekki ást

    43:23 - Draumadagurinn

    50:42 - Þróun Colins (og Secretary)

    56 min
  • Wuthering Heights (2026)

    Aldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar.

    Þessi tímamótasaga um erfiðar (lesist: eitraðar) ástir, þráhyggju, hefndir, stéttaójafnvægi, örlög og kynslóðaskipti hefur farið í gegnum öll mögulegu form til að höfða til nýrra kynslóða, frá einfölduðum bíómyndum til mini-sería og afbakaðra hroða (helst ber þar að nefna rokkuðu unglingamyndina frá 2002 eða Lifetime-mynda viðbjóðinn Wuthering High School frá 2015…). Hver flutningur hefur átt sitt sérsnið þegar kemur að áherslum en hörðustu aðdáendur bókarinnar hafa margir hverjir fært rök fyrir því að sögunni hefur aldrei fyllilega náð að komast til skila. 

    Steingerður Friðriksdóttir, mannfræðingur og einlægur aðdáandi skáldsögunnar, er mætt í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að meta þessa hjólgröðu aðlögun hinnar efnilegu Emeralds Fennell (sem færði okkur áður Promising Young Woman og Saltburn). Hverjar eru áherslurnar að sinni (fyrir utan gredduna) og hvað meira aðskilur þessa tilteknu nálgun á sögu Brontës sem áður hefur ekki sést? 

    Stóru málin eru öll könnuð með spillum.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Wuthering Heights í heila öld

    09:14 - Titillinn í gæsalöppum

    13:52 - Þrjóska, grimmd og frekjuskapur

    22:53 - Meira lagt í Cathy en vanalega

    28:44 - Heathcliff eða Edgar?

    34:35 - Næsta kynslóðin

    38:37 - Isabella og Nelly

    46:19 - Um kemistríuna…

    50:57 - Nútíma taktar

    01:01:05 - Samantekt

    1 hr 10 min
  • The Dark Crystal (1982)

    Jim Henson var sannkallaður galdrakarl í tengslum við sköpunargleði sína með brúðum; alveg frá Sesame Street til Prúðuleikaranna og fleira sem löngu er orðið tímalaust eða sígilt. Það er að minnsta kosti klárt mál að Henson eigi stóran hlut í nostalgíu ákveðinna kynslóða.

    Friðrik Önfjörð fastagestur er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma en að þessu sinni mætti hann ásamt maka sínum, Guðbjörgu Marín Guðmundsdóttur. Það var hugmyndin hennar Guggu að kafa aðeins ofan í þetta furðuverk Hensons og kollega hans, Frank Oz, og hvetja drengina í senn til að endurnýja kynnin við þetta léttmyrka ævintýri.

    Myndin er óneitanlega glæsileg í sjónarspili, hönnun og leikmyndum og einkennist af masterklassa ‘80s svip. Hvernig ræman eldist og hvað býr á bak við hennar költaða orðspor er hins vegar skemmtilegra til umræðu.

    Hljómar þetta ekki Prúðulega? *


    *Talandi um hljóð, þá var tæknin í Podcaststöðinni eitthvað að stríða Bíófíklum heiftarlega að sinni. Reynt var eftir bestu getu að minnka rafsuðið úr míkrafónunum, en það laumast enn í gegn á köflum. Afsakið þetta innilega.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Gagnslausi Jen

    05:13 - Henson feðgin á hóteli

    11:11 - Latex og gervihár

    17:39 - Nostalgíutenging

    26:35 - Erfiðin á settinu

    34:25 - Umgjörð vs. handrit

    42:55 - Að djamma með “kartöfludúddum”

    46:05 - ‘80s ‘Tráma-myndir’


    52 min
  • Topp 5: Danny Boyle

    Viti menn, þá er komið að hundraðasta þætti Bíófíkla þar sem tilefnið er að halda upp á einn stórlega vanmetinn og fjölhæfan listamann. 

    Ef þú vilt orku, dúndurgóða tónlist, skemmtilega leikara í essinu sínu og stílíseraða fjölbreytni, þá ætti breski dugnaðarforkurinn Danny Boyle að geta glatt þig á margs konar vegu - allavega oftar en ekki. Margt kvikmyndaáhugafólk þekkir til mannsins en stærri sarpinn í allri sinni dýrð ber að ræða.

    Kjartan og Tommi eru eldhressir að sinni (og Óli Bjarki Austfjörð enn fremur en hann settist einnig þarna niður með dúóinu) með það að markmiði að fræða hlustandann betur um alla þann Boyle’isma sem ber að ræða yfir vænan og tilraunakenndan feril.

    Opnum nú þennan maníska konfektkassa og skoðum hvar styrkleikarnir liggja.

    Athugið að þátturinn hefur verið klipptur aðeins til - af ástæðum sem kunna að skýrast þegar líður á hlustunina… en það er líka bara vel í anda Boyle mynda!


    Efnisyfirlit: 

    00:00 - Þáttur 100! 

    02:19 - Hvers vegna Boyle?

    12:54 - Shallow Grave

    18:49 - ‘Runner up’ myndir

    25:18 - Yesterday

    31:18 - Slumdog Millionaire

    37:07 - Sunshine

    41:11 - Steve Jobs

    50:44 - Trance

    01:00:30 - 28 Days Later…

    1 hr 6 min
  • Hackers (1995)

    Það er ekkert rétt eða rangt, bara skemmtilegt og leiðinlegt. Svo er mælt í spennu- og unglingamyndinni Hackers. Um er að ræða gífurlegt barn síns tíma frá Iain nokkrum Softley með stórskotaliði minnisstæðra leikara og fullt af fríkuðum karakterum, ef ekki ógleymanlegum.


    Myndin varð fyrir valinu hjá Atla Sigurjónssyni kvikmyndagerðarmanni og skoða þeir Tommi ræmuna út í gegn, þar sem ein mikilvæg spurning er meðal annars vörpuð fram;‘Er þetta mesta* ‘90s mynd allra tíma?

    *Ath. Hvorki besta né vinsælasta, heldur ‘mesta’ ...


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Iain svo Softley

    07:17 - ‘Cyberpunk’ ræmur

    13:31 - Í leit að einkenni

    20:41 - Eldri ungmenni og Íslandsvinur

    25:19 - Gibson’inn

    29:17 - Tónlistin

    35:38 - Mömmu-komplexar

    41:21 - Kjarnahópurinn

    49:18 - Hvar eru allir í dag?

    01:00:26 - Skondnir dómar


    1 hr 5 min

About Bíófíklar

From the publisher's feed

Hlaðvarp um bíódellu.