Sign up to save your podcasts
Or

Aldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar.
Þessi tímamótasaga um erfiðar (lesist: eitraðar) ástir, þráhyggju, hefndir, stéttaójafnvægi, örlög og kynslóðaskipti hefur farið í gegnum öll mögulegu form til að höfða til nýrra kynslóða, frá einfölduðum bíómyndum til mini-sería og afbakaðra hroða (helst ber þar að nefna rokkuðu unglingamyndina frá 2002 eða Lifetime-mynda viðbjóðinn Wuthering High School frá 2015…). Hver flutningur hefur átt sitt sérsnið þegar kemur að áherslum en hörðustu aðdáendur bókarinnar hafa margir hverjir fært rök fyrir því að sögunni hefur aldrei fyllilega náð að komast til skila.
Steingerður Friðriksdóttir, mannfræðingur og einlægur aðdáandi skáldsögunnar, er mætt í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að meta þessa hjólgröðu aðlögun hinnar efnilegu Emeralds Fennell (sem færði okkur áður Promising Young Woman og Saltburn). Hverjar eru áherslurnar að sinni (fyrir utan gredduna) og hvað meira aðskilur þessa tilteknu nálgun á sögu Brontës sem áður hefur ekki sést?
Stóru málin eru öll könnuð með spillum.
Efnisyfirlit:
00:00 - Wuthering Heights í heila öld
09:14 - Titillinn í gæsalöppum
13:52 - Þrjóska, grimmd og frekjuskapur
22:53 - Meira lagt í Cathy en vanalega
28:44 - Heathcliff eða Edgar?
34:35 - Næsta kynslóðin
38:37 - Isabella og Nelly
46:19 - Um kemistríuna…
50:57 - Nútíma taktar
01:01:05 - Samantekt
By Bíófíklar HlaðvarpAldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar.