Bíófíklar

Bíófíklar

By Bíófíklar HlaðvarpTV & Film
Download on the App Store

Bíófíklar episodes

  • 28 Years Later: The Bone Temple (2026)

    Fílar þú 28 Days Later en ert óviss með álit þitt á seinni myndunum? Finnst þér Ralph Fiennes vera frábær leikari en óskaðir þess að hann fengi stærra vægi í 28 Years Later?

    Ef svo, þá er aldeilis lukkan með þér í liði því nú fær Fiennes fókusinn til að leika meira lausum hala í framhaldinu á einni umdeildustu kvikmynd síðasta árs.

    Kjartan, Tommi og Atli Freyr renna yfir legasíu og bragðtegundir þessara '28 x Later' kvikmynda og hvað gæti verið næst í vændum eftir þennan ruglaða miðkafla sem hér er til umræðu, með og án spilla. 

    Upp með öfugu krossana, hendum einhverju geggjuðu á fóninn og dönsum eins og hálfvitar, því nú skal ræða eina stöppugeðveika ræmu...

    Spoiler-umræða hefst á klukkutíma-og-korters markinu...


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Forsýning og eðli mannsins

    11:15 - Upprifjun á seríunni

    25:15 - Boyle vs. Nia DaCosta

    37:32 - Part 1 og Part 2

    44:38 - The Bone Temple án spilla

    01:15:01 - SPILLAR hefjast...!

    01:24:06 - Heljarinnar Kelson

    01:34:06 - Lokamínúturnar

    01:42:01 - Part 3?...

    1 hr 51 min
  • Bíóárið 2025: Seinni hluti

    Nú þegar topplistarnir eru að mestu leyti að baki er um að gera að demba sér í *hinn* pólinn á liðnu bíóári.Kjartan og Tommi fara nú yfir mestu vonbrigði ársins 2025 ásamt slökustu myndunum með tilheyrandi útúrdúrum.

    En til að gefa aðeins breiðari mynd af þessu þéttpakkaða ári er upprennandi kvikmyndagerðarmaður sestur með þeim í stúdíóið. Það er hann Páll Kristinn Jakobsson sem leiðir með þeim ýmsu hverju mynstrin sem er vert að ræða.

    Þess að auki var hvergi komist hjá því að biðja Pál um að mæta með sína lista af því versta (og reyndar besta) frá umræddu tímabili.Yfir í fjöreríið!


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Rýnt betur í heildarárið

    06:04 - Companion

    08:12 - Bring Her Back og Bloodlines

    12:31 - Elio og Pixar

    18:55 - Mickey 17

    26:50 - Frankenstein/Snyder umræða... (?)

    37:45 - Bugonia

    47:44 - Keeper

    51:50 - K-Pop Demon Hunters

    56:11 - Skiptum um gír...

    01:00:38 - Tíu verstu (Kjartan)

    01:09:55 - Tíu verstu (Tommi)

    01:21:15 - Fimm slökustu (Páll)

    01:28:01 - Vonbrigði ársins

    01:40:21 - Sjónvarpsefni ársins

    01:44:38 - Mynstur á árinu

    2 hr
  • Topp 10: Heimir Bjarnason

    Atvinnunördið Heimir Bjarnason hefur verið að gera frábæra hluti í íslenskum kvikmyndabransanum og gegnir ófáum rullum í þeim iðnaði. Fram að þessu hefur hann verið framleiðandi, handritshöfundur, tökumaður, leikstjóri auk þess að vera einn færasti ef ekki virkasti klippari landsins. 

    Árið 2022 gaf hann út kvikmyndina Þrot, sína fyrstu (af fleirum, vonandi) í fullri lengd en leiðin að þeim draumi hófst fyrst og fremst með brennandi ástríðu fyrir kvikmyndaforminu og fjölbreytileika þess.

    Þeir Kjartan og Tommi tóku á móti Heimi þar sem hann leiðir hlustandann í gegnum tíu kvikmyndir sem skipta honum gífurlegu máli og hvers vegna. Áheyrnin er sögu fríkaðri. 


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hlé/ekki hlé?

    08:19 - Listasmíði Heimis

    16:38 - Betri Mamma Mia myndin

    19:10 - It's a Wonderful Life

    24:20 - The Life Aquatic with Steve Zissou

    29:50 - All About Eve

    36:07 - Chicago

    42:37 - Billy Elliot

    46:54 - Once Upon a Time in Hollywood

    54:31 - Ocean's Twelve

    01:01:08 - Beautiful Thing

    01:04:49 - The Worst Person in the World

    01:11:29 - Before Sunset

    01:22:42 - Aftur að Mamma Mia...

    1 hr 26 min
  • Bíóárið 2025

    Jæja, hið mikla uppgjör á liðnu kvikmyndaári blasir nú við og þá í tvímælalaust stærsta þætti Bíófíkla til þessa (eins og lengdin kann að gefa til kynna…).

    Gestirnir að sinni eru ekki af óskemmtilegri endanum en það eru þau Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir úr bíóhlaðvarpinu Video rekkinn. Bækur eru allverulega bornar saman - tímunum saman - um hvað stóð upp úr á þessu viðburðaríka og umræðuverða kvikmyndaári.

    Hér mætast við mækana ansi hreint ólíkir persónuleikar og smekkir, en það er vissulega bara ávísun á hressilegri hlustun. Lofað er líflegri dýnamík… og nokkrum svindlum.

    Dembum okkur í þetta.


    Efnisyfirlit: 

    00:00 - Video rekkinn á samfélagsmiðlum

    10:05 - Hvernig var árið?

    27:46 - 'Runner-up' listarnir

    01:08:51 - Predator: Killer of Killers

    01:12:05 - Eldarnir

    01:16:17 - Bugonia

    01:21:50 - Companion

    01:24:11 - Black Phone 2

    01:28:10 - Ballerina

    01:32:23 - K-Pop Demon Hunters

    01:35:45 - Die My Love

    01:38:12 - Superman

    01:45:32 - Caught Stealing

    01:48:22 - A Real Pain

    01:54:04 - Sisu: Road to Revenge

    01:57:56 - The Phonecian Scheme

    02:07:11 - Sinners

    02:15:02 - Frankenstein

    02:24:07 - Avatar: Fire and Ash

    02:48:00 - Nosferatu

    02:53:48 - One Battle After Another

    03:07:03 - 28 Years Later

    03:18:03 - Sentimental Value

    03:20:36 - Weapons

    03:27:51 - Samantekt

    03:32:32 - Bíóárið 2026...

    4 hr
  • Súrt og svarað: Babu Frik eða Bond?

    Þá skal halda áfram með spurningaleikinn þar sem fást engin ‘rétt’ svör og stigin skipta nákvæmlega engu máli. Á meðal pælinga er skoðað hver er versta Stjörnustríðsmyndin til að sýna einhverjum í fyrsta sinn, hvaða Bond-mynd ætti aldrei að vera fyrst fyrir valinu og hver eru stærstu feilsporin hjá virtum leikstjórum.

    Kjartan og Tommi bjóða kvikmyndaáhugamanninum Þorstein Valdimarsson hjartanlegaa velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem markmiðið er að kynnast smekk Þorsteins örlítið betur í gegnum gallsúrar en (vitaskuld) há-nördalegar spurningar.

    Hlustandi er að sjálfsögðu hvattur til að hlera þetta húllumhæ þar sem aldrei er of langt í algjöra steypu.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Nördismi og 'physical media'

    17:19 - Besta myndin frá lélegum leikstjóra

    25:57 - 'Gateway'-Stjörnustríð

    30:22 - "Versta tillagan að Bond-mynd..."

    39:42 - Eyðieyjuhörmungin

    43:18 - Óþolandi bíóupplifun

    49:41 - Hugleiðing um fræg vélmenni

    01:03:04 - Michael, Freddy eða Hannibal?

    1 hr 8 min
  • Planet of the Apes (2011-2024)

    Apaplánetan hefur verið ófáu kvikmyndaáhugafólki kunnug síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Þessi umræðuverði kvikmyndabálkur hefur verið títt þekktur fyrir að þræða saman samfélagsádeilu við sci-fi og einstaka sinnum tímaflakk.

    Þegar þetta er (hljóð-)ritað eru myndirnar orðnar tíu og endurræsingar tvær að talsins. Kjartan, Tommi og Frikki fastagestur taka létta yfirferð í gegnum þessar merku myndir en hafa ákveðið að einbeita sér að mestu að nýjustu núllstillingunni sem hófst árið 2011.

    Frikki hafði ekki séð neina af þeim myndum og verður þá stórt spurt um hvernig útkoman reynist, og á hvaða Apaplánetu er best að vera.

    Þremenningarnir virðast ekki alveg vera samhljóma um hvaða eining þessa fjórleiks ber hvað mest af. En hlustunin er klárlega þess virði að gæða sér á banana yfir og lát duglega heyra,


    00:00 - 10 myndir tótal

    24:29 - Rise of the Planet of the Apes

    43:11 - Dawn of the Planet of the Apes

    01:19:20 - War for the Planet of the Apes

    01:57:57 - Kingdom of the Planet of the Apes

    2 hr 23 min
  • Wake Up Dead Man (2025)

    Þriðja myndin í Knives Out-seríunni  frá Rian Johnson um eitursnjalla einkaspæjarann Benoit Blanc hefur verið á vörum margra síðustu vikur. Að þessu sinni er kirkja og trú tekin fyrir þar sem Blanc snýr bökum saman við ólukkulegan prest til að komast til botns á stórfurðulegu morðmáli.

    Líkt og hefur áður fylgt þessari seríu leiðir Daniel Craig stórskotalið leikara í líflegum bræðingi af glensi og alvöru. Viðsnúningar finnast reglulega handan við hornið í leitinni að svörunum við eftirfarandi spurningum; Hver framdi morðið? Hvernig og hvers vegna?

    Þeir Kjartan, Tommi og Birgir Snær skoða framvinduna og meta hvernig allt kemur heim og saman hjá Blanc og félögum að þessu sinni. Spillar verða tilgreindir og má finna skilmörkin í tímakóðunum hér að neðan.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Byrjum á Clue

    12:29 - Undir áhrifum Christie

    17:18 - Knives Out (með spillum)

    24:32 - Glass Onion (með spillum)

    32:36 - Wake Up Dead Man (*án* spilla)

    47:26 - Spillar hefjast hér!

    52:13 - "Fullur af Krist"

    59:26 - Johnson djókar með Star Wars

    01:02:09 - Vald yfir öðrum

    1 hr 12 min
  • Avatar: Fire and Ash (2025)

    Hér er hún; stærsta mynd ársins 2025, umdeilanlega stærsta myndin til þessa frá stórmyndakóngnum James Cameron og í senn ábyggilega umdeildasta Avatar-myndin.

    Nú er Cameron er kominn í logandi hágír með hæðir og lægðir Sulley fjölskyldunnar, vini þeirra, óvini og þær ófáu orrustur sem þar fylgja. Karaktersúpan er orðin meiri en áður og siglir allt í húrrandi sjónarspil þar sem peningurinn sést svo sannarlega á skjánum. Hvort að rassinn hjá áhorfandanum verði orðinn fullaumur eftir þriggja (plús) tíma setu er annað mál. Myndin er að sjálfsögðu rædd í þaula, með og án spilla (sem hefjast á circa 40 mínútna markinu).

    Hvort að Fire and Ash marki gígantískan endi á risa þríleik eða sé enn ein upphitunin að einhverju stærra er í brennidepli hjá Kjartani og Tomma. Auk þess er farið grimmt út í þær umræður um hvort að þetta sé meira af því sama eða djúsí stigmögnun og stækkun á þeim þrívíða bíóheimi sem yfirgnæfir Pandoru. Eitt er þó allavega víst; Þetta er KLÁRLEGA graðasta Avatar-myndin…


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Ástríðan í heimi Camerons

    11:24 - "Rosalega mikil mynd"

    20:47 - Meira af því sama?

    35:01 - Samantekt á undan spoilerum

    44:44 - HFR eða ekki HFR?

    49:30 - Spoiler-umræða hefst!

    58:06 - Litlu stóru augnablikin

    01:02:17 - Á gráa svæðinu...

    01:08:16 - Um aðra karaktera

    01:16:26 - Með einfaldleikann að vopni

    01:27:30 - "Að ná betri tengingu"

    01:40:00 - Hafsjór af stöffi....

    1 hr 49 min
  • Avatar (2009) & Avatar: The Way of Water (2022)

    Ofurþjarkurinn James Cameron hefur skipað sér í allsvakalegan sérflokk með að eiga þrjá titla á listanum yfir fimm tekjuhæstu kvikmyndir allra tíma. Það eru að sjálfsögðu Titanic og fyrstu tvær Avatar myndirnar, en þegar sú fyrri leit fyrst dagsins ljós hafði Cameron ekki gefið út bíómynd í heil 12 ár og liðu síðan 13 ár á milli Avatar myndanna sem nú skal aðeins kryfja áður en þriðja eintakið fær sitt sviðsljós.

    Kjartan og Tommi rýna í efnistök þessara gígantísku sci-fi fantasíuæintýramynda og skoða hvort meira leynist þarna sem nær út fyrir óumdeilanlegt sjónarspil. Netverjar hafa oft fullyrt að Avatar (e. "Strumpa-")myndirnar hafi ekki skilið eftir sig neitt svakalegt ‘kúltúrs-fótspor’ ef svo má segja, en Bíófíklatvíeykið kanna slík ummæli í þaula og ýmist annað sem þessum ævintýrum fylgir… þangað til þeir verða bláir í framan…

    Þá er bara að skottast yfir til Pandoru og gæðatesta viðveruna þar.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - "Baby's First Cameron"

    06:56 - 'Anti-Netflix' upplifunin

    14:37 - Avatar 

    20:05 - Styttri eða lengri útgáfan?

    35:27 - Avatar: The Way of Water

    47:41 - 'Mo-Cap' ferlið og smáatriðin

    58:01 - Samantekt og framtíð

    1 hr 7 min
  • Spurt og spilað: Bak við tjöldin, Bíóblaður eða Bíótöfrar?

    Einn þáttur. Tveir fastagestir. Þrjú spil. Fjórir við míkrafónana og hefst þá gæðaprófið um besta kvikmyndaspil þessa árs. Nýverið voru gefin út þrjú ólík spurningaspil þar sem áherslur hvers þeirra eru nokkuð mismunandi. Spilin heita Bak við tjöldin, Bíóblaður og Bíótöfrar.

    Kjartan og Tommi eru sestir niður með Atla Sigurjónssyni og Fannari Trausta til að (svo það sé pent orðað…) gæðatesta skítinn úr þessu.

    Hvaða spil mun bera höfuð og herðar yfir hin tvö? Hvert þeirra er síst? og hvaða lið mun sigra; A.K.A. (Kjartan & Atli) eða Travolta's Demons (Tommi & Fannar)?

    Hlustunin er sögunni ríkari, enda lengir hláturinn lífið. *

    *Spyrjið bara Mel Brooks...


    Efnisyfirlit: 

    00:00: - A.K.A. vs. Travolta's Demons

    03:29 - Bak við tjöldin

    37:42 - Bíóblaður

    01:12:41 - Bíótöfrar

    02:16:25 - Samantekt

    2 hr 24 min

About Bíófíklar

From the publisher's feed

Hlaðvarp um bíódellu.