Bíófíklar

Bíófíklar

By Bíófíklar HlaðvarpTV & Film
Download on the App Store

Bíófíklar episodes

  • Samtal við Greg Sestero

    Oft hefur heitið ‘Íslandsvinur’ verið innistæðulaust þegar kemur að frægu fólki. Hins vegar er leikarinn, bókahöfundurinn og framleiðandinn Greg Sestero sannur Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hann hefur komið til landsins í ófáu skiptiin, hvort sem það hefur verið til að kynna nýjar bíómyndir eða vera viðstaddur á partísýningum hinnar ómetanlegu ruslmyndar The Room.

    Íris Árnadóttir, góðvinur og fastagestur hlaðvarpsins, hitti Greg nú á dögunum í Bíó Paradís og átti hressilegt spjall við kauða á vegum Bíófíkla. Í þessu stutta en sérstaka innslagi er farið yfir ýmist í tengslum við feril leikarans, almennan kvikmyndasmekk og verkefni í gegnum árin og á næstunni.

    Þá er gráupplagt að sperra upp eyrun og hlera samtal Írisar við hinn geðþekka Greg. 


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Inngangur

    01:45 - Big Shark

    7:03 - Leikstíll Gregs

    9:45 - Hvað ef...

    11:00 - The Disaster Artist

    12:45 - Bíónördið í 'Mark'

    16 min
  • 'Topp 5': Gervigreindarmyndir

    Er það A.I. eða 'Æ, æ', eða stöndum við einhvers staðar þarna á milli? Í þessum sérstaka samstarfsþætti leiða Gervigreindarklúbburinn og Bíófíklar hesta sína saman á Podcaststöðinni. Strákarnir kafa djúpt ofan í heim gervigreindar í kvikmyndum — allt frá klassískum hrollvekjum til hjartnæmra framtíðarsýna.

    Stefán Atli, Tómas og Kjartan ræða helstu stórvirkin sem hafa mótað hugmyndir okkar um vélar, meðvitund og framtíð mannkyns. Þátturinn fer út fyrir hvíta tjaldið og spyr spurninganna sem brenna á mörgum í dag:

    Mun gervigreind taka störfin okkar? Getur tækni öðlast sjálfstæðan vilja? Hvað verður um tilgang mannsins ef vélar geta gert allt betur en við? Er framtíðin meira í ætt við Wall-E, Her eða The Matrix?


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Hið jákvæða og neikvæða

    08:03 - Samtal við ChatGPT

    20:56 - Uppreisn vélanna

    29:57 - HAL ofl.

    37:02 - Þróun og framtíð

    46:54 - "Gullsins virði"


    59 min
  • Súrt og svarað: Gervigreind í bíómyndum

    Hver væri versta kvikmyndin til að talsetja á íslensku? Hvaða bíósería veitir ekki af því að vera tekin í gegn með ‘Evil Dead’-vinkli? Hvaða eintak í þekktum myndabálki væri ásættanlegt að gera ef hún væri skrifuð af gervigreind? Hvaða titlar eru endanlega ónýtir út af ofbeldisfólki?

    Tommi, Atli Freyr og Vilmundur Örn skoða þessar sturluðu og helvíti súru spurningar ásamt fleirum í þessu tiltekna innslagi af spurningarleik Bíófíkla þar sem hvorki eru til rétt eða röng svör; aðeins gamanið sem gert er til að veita innsýn inn í smekk þeirra sem við mækana sitja.

    Hlustandi er hvattur til að hlera þessa steik og svara í eigin kolli.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - ‘Leikreglur’ og vangaveltur

    14:13 - “Pop-up” aðlögun

    20:19 - Frægir Íslendingar í myndum

    25:41 - Leikstjóraegó á næsta stigi

    46:08 - AI skrifar bíómynd…

    51:50 - Talsetningar á íslensku

    01:02:45 - Evil Dead-vinkillinn

    01:12:17 - Af tvennu ömurlegu…

    01:20:56 - Óæskileg röðun

    01:28:03 - Leynigestur…!

    1 hr 34 min
  • I Swear (2025)

    Einstaka sinnum koma út bíómyndir sem óhætt er að mæla með fyrir alla. Þá bókstaflega alla; óháð aldurshópi, stétt, pólitískum gildum, lífsreynslu og fleira þess háttar. Svona myndir sem hitta einfaldlega bara vel í mannsálina, auka skilning á átökum náungans og skilja ýmist eftir sig. 

    I Swear er ein slíkra mynda. Eða svo segir allavega annar þáttastjórnenda Bíófíkla.

    Myndin er byggð á sannri sögu og fjallar um hinn ljúfhjartaða John Davidson, sem hefur frá unglingsaldri glímt við Tourette heilkenni. Útkoman er ljúfsár og einstaklega yljandi þar sem varpað er sterku ljósi á umræðuefni sem ber að fræða margan manninn um (ekki síður í ljósi umtalaða atviksins á BAFTA verðlaununum…). Þá má jafnframt fullyrða að atburðarás þessarar kvikmyndar kann að vera lyginni líkust, enda er veruleikinn gjarnan furðulegri en skáldskapur.

    Kjartan og Tommi fara ítarlega í frásögnina, ‘biopic’-formúlur, mýtur og vangaveltur um Tourette, kosti myndarinnar og galla. Gætu hugsanlega líka dúkkað upp leynigestir í miðjum tökum.

    Hendum okkur í þetta helvíti!…


    Efnisyfirlit:

    00:00 - BAFTA-skandallinn…

    05:38 - “Of mikil biopic-mynd”?

    09:05 - Skilningur og umburðarlyndi 

    15:37 - Baylen Out Loud

    20:44 - Of gott til að vera… (spillar!)

    29:28 - Flæði tilfinninga

    37:19 - Nei sko, leynigestir…!

    43:03 - Erfiðu samtölin

    49:17 - Listin að tilheyra

    55 min
  • The Super Mario Galaxy Movie (2026)

    Mario-bræður og vinir möluðu gjörsamlega gull í aðsókn á heimsvísu þegar fyrsta bíómyndin mætti með látum árið 2023. Þá kom að sjálfsögðu ekki annað til greina en að halda samstarfinu áfram hjá Nintendo og Illumination. Hvar endar þetta?

    Skipta gæðin einu sinni máli þegar um ræðir svona þekkt vörumerki og skilyrðislausar vinsældir? Er kannski bara nóg að krakkarnir gangi alsælir og sáttir út úr bíóinu? (og ekki er það beinlínis neikvætt að börn flykkist í kvikmyndahús til að byrja með…). Laumast kannski meira undir yfirborði Super Mario myndanna en eingöngu sykurvíma, tilvísanir og ‘páskaegg’?

    Svör þessi reyna á mat sérfræðings og Kjartan og Tommi fengu Arnór Stein Ívarsson úr Tölvuleikjaspjallinu til að greiða úr gúmmelaðinu. Tengsl hvers og eins við tölvuleikina eru einnig krufin, almenn nostalgía og hlutleysi.

    Skellum í okkur sveppina og kýlum á þetta.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Nintendo mafían

    09:00 - Mario-legasían

    18:01 - Super Mario ’64…

    26:38 - Fyrri myndin

    29:27 - Hegðun í bíósal

    36:28 - Illumination-lógík

    40:01 - Super Mario Galaxy

    43:41 - Star Fox og cast’ið…

    48:56 - Lagstuldur…

    52:48 - Samantekt og krítík


    1 hr 4 min
  • Topp 10: Svavar Máni

    Svavar Máni Geislason brunaði beinustu leið frá Akureyri til að skella sér í stúdíó Podcast-stöðvarinnar til að setjast niður með Bíófíklum, enda mikill slíkur sjálfur að eigin sögn. Þegar upp kom spurningin um umfjöllunarefni þá varð vissulega svonefndur 'kósí-þáttur' fyrir valinu; kósí fyrir þáttastjórnendur, krefjandi fyrir gestinn. Eins og það á að vera...

    Smekkur Svavars fer yfir víðan völl og leiðir hann Kjartan og Tomma í gegnum sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir, með viðeigandi sem og furðulegum útúrdúrum annað slagið. Þess að auki myndast merkilega skondnar umræður um vægi og gildi Óskarsverðlauna.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Bíóið á Akureyri

    09:21 - Aftersun

    16:09 - In Bruges

    22:11 - Beautiful Boy

    33:23 - Better Man

    43:43 - The Holdovers

    53:14 - Scott Pilgrim Vs. The World

    01:01:34 - Pulp Fiction

    01:09:27 - All of Us Strangers

    01:13:16 - One Flew Over the Cuckoo’s Nest

    01:19:00 - The Green Mile

    01:31:07 - Magnolia

    01:38:16 - One Battle After Another

    1 hr 53 min
  • Meet the Feebles (1989)

    Ef það er til eitthvað steiktara frá leikstjóra The Lord of Rings-myndanna heldur en Braindead eða jafnvel Bad Taste, þá er það klárlega Meet the Feebles! Hér er enginn afsláttur veittur og öll velsæmismörk eru svo gott sem ósýnileg. Það er að minnsta kosti öruggt að aldrei hefur áður eða síðan sést eitthvað í líkingu við hana. Við viljum vita hvers vegna….

    Tommi og Frikki settu upp prakkaralegt glott og völdu þessa kvikmynd með séróskir um að Kjartan fengi ekkert að kynna sér né lesa sig til um hana fyrirfram, að hann þurfti sumsé að horfa á hana algjörlega blindandi. Þekkjandi Kjartan eru viðbrögðin klárlega skrautleg og umræðan verður svoleiðis sprellfjörug að Atli Freyr Bjarnason stóðst heldur ekki mátið að vera með í öllu glensinu. 

    Þetta er Meet the Feebles frá Peter Jackson, og hún er vægast sagt ein spes bíómynd. Hlustandi er vitaskuld hvattur til að taka þátt í smekkleysunni.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - “Fokkaðu þér, Frikki”

    07:15 - Stoltur viðbjóður

    14:48 - Metnaður?

    26:23 - Söguþráðurinn…

    34:43 - Samantekt(ish)

    44 min
  • Project Hail Mary (2026)

    Er þetta með betri sci-fi skáldverkum undanfarinna ára, spurning? Bókin eftir Andy Weir virðist allavege eiga stóran hóp aðdáenda og þá er bara að skoða hvernig til tekist hefur með kvikmyndaaðlögunina.

    Nöfnin eru allavega ekki af slakari endanum; Leikstjórateymið Lord & Miller, handrit eftir Drew Goddard, Ryan Gosling í burðarrullunni og ein stjarnfræðilega krúttleg geimvera að nafni Rocky. Svo fáein dæmi séu nefnd.

    Kjartan, Tommi og Birgir Snær skella sér í þessi sendiför og meta hvort allt hæperbólið standist, ásamt mögulega einum leynigesti.

    En ekki hvað?


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Tuð, nostalgía og hasar

    09:51 - Weir, Goddard og Lord/Miller

    28:54 - Samantekt án spilla

    47:13 - Dýpra kaf (þ.e. spillar)

    01:00:05 - Fíllinn í aspect ratio’inu…

    01:07:46 - Leynigestur

    01:12:01 - Brúða en ekki brella

    01:17:10 - Í hvaða sal?

    01:26:00 - “Æðisleg. Fullyrðing”

    1 hr 30 min
  • The Commitments (1991)

    Dögg Mósesdóttir er leikstjóri, naglharður múltítaskari og með heldur betur heilmikla reynslu af kvikmyndahátíðum á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún verið dagskrástýra Stockfish en að hennar eigin sögn er þemað ákaflega fjörugt í ár.

    Írsk menning er allsráðandi þetta árið en Dögg settist niður með Kjartani og Tomma til að ræða Sprettfiskinn næstkomandi, feril sinn, áhugasvið, íslenska kvikmyndabransann og eina af sínum uppáhaldsmyndum. Það mun vera stuðmyndin The Commitments, sem á sér skemmtilega sögu og legasíu.

    Myndin naut mikilla vinsælda á sínum tíma og fylgir henni hafsjór af bæði hressilegum tónlistaratriðum og fjörugum fróðleiksmolum.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Írskur fókus

    14:31 - Íslandstenging

    19:30 - Hagkerfi kvikmyndagerðar

    36:47 - The Commitments

    40:50 - Fjölbreyttur soul-hópur

    50:36 - Óreyndir naglar

    58:31 - Súrrealisminn heillar

    1 hr 3 min
  • The Bride! (2026)

    Maggie Gyllenhaal veitir engan afslátt með nýstárlegri túlkun sinni á Brúður Frankenstein. Þessi pönkaða útrásarmynd með Jesse Buckley og Christian Bale í aðalhlutverkum hefur skipt gagnrýnendum í fylkingar og tapað heilmiklum stúdíópeningum. Án þess að skafa af því er sennilega um að ræða eitt stærsta flopp þessa árs.

    Vinsældir og gæði haldast þó ekkert alltaf í hendur og þau Kjartan, Tommi og Steingerður Friðriksdóttir rýna í öll rugluðu efnistökin sem tröllríður öllu.

    Er þetta misskilinn geimsteinn, tilvonandi költari, hálfbökuð hugmyndasúpa eða ein stór óreiðuklessa?  Eða kannski bara þetta allt saman?

    Hendum okkur á dansgólfið og finnum öll svörin í sameiningu.


    Efnisyfirlit:

    00:00 - Menningarsjokk

    16:46 - IMAX upplifunin

    27:11 - Óreiða brúðarinnar

    33:48 - Útúrdúr um ‘Menn’…

    36:41 - Pönk og andsetning

    39:41 - Leynigestur og spillar…

    43:36 - “Röngu skilaboðin”

    47:47 - Neitunarvaldið

    51:45 - Hliðstæða “parið”

    56:42 - Draugurinn Shelley

    01:00:41 - Markhópur og samantekt

    1 hr 9 min

About Bíófíklar

From the publisher's feed

Hlaðvarp um bíódellu.