
Sign up to save your podcasts
Or


Meira mess - og MOVIE NIGHT næsti þáttur, omg. Þessi sería er svo góð???
Loksins eitt alvöru mál unnið vel (eða ágætlega og ÁN GERVIGREINDAR). Lovísa fær að slá um sig í íslenskunni og sýna sig aðeins á meðan Elfa skilur ekkert, eða kannski smá.
Í samstarfi við Tree Hut og COSRx 🫧
Ohhhhhh klikkuðum aðeins ''í byrjun''. Mjög erfitt að ýta á rauða takkann til að byrja að taka upp 🆘.
Eins gott að þið séuð flest að horfa á Love Island annars þurfið þið að skippa hér og þar, gefum út sér aukaþátt í vikunni!
Þátturinn er í boði Tree Hut og Skin1004 🫧
Mögulega TW fyrir seinni hluta þáttar, tölum mikið um mat!
Í samstarfi við Senia.is færum við ykkur þátt um okkar skrítnu matarvenjur og nostalgíukast í þeim dúr. Byrjum samt á bresku slúðurhorni þar sem 1/3 af slúðurpakkanum eldist verr en mjólk í sólbaði. Tæklum það aftur í næsta þætti.
Love you guys!!
Fórum um víðan völl og smá hlé í seinni hálfleik útaf leiðinlegu ókláruðu máli hjá okkur. Við erum öll mannleg og myndum alveg leyfa ykkur að heyra ef við værum ekki drepleiðinlegar að ræða þetta. Styttist verulega í gestaþátt með öllum systrunum, það verður eitthvað alvöru chaos.
Sem fyrr, í samstarfi við Senia.is - TreeHut, CosRX og Skin1004 <3
Við systur bjóðum ykkur með okkur ofan í smá kanínuholu. Við tökum fyrir sértrúarsöfnuði sem hafa vakið heimsathygli. Frá Manson-fjölskyldunni og Jonestown til Scientology, FLDS og Waco. Völd, áhrif og hversu auðvelt það getur verið fyrir suma að dragast inn í hættulega hugmyndafræði. Don't drink the Kool-Aid krakkar mínir.
Annar gestaþáttur! Fengum Valgerði vinkonu okkar til að fara aðeins yfir djammið með okkur í aðdraganda áramótanna.
Lengsti þátturinn til þessa og litla ferðalagið sem þessi þáttur er. Hljómar eins og við eigum við vandamál að stríða en það er þá helst bara að vera kvíðasjúklingar, líklega. Lofum að við erum allar skárri en meðal Íslendingurinn.
Hver kannast ekki við smá djammviskubit annars. Jæja, öl er böl, áfram gakk. GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Byrjum á smá krassandi fregnum frá Los Angeles. Síðan tekur JólaJomman við, hvað er það?
Þrif á Aðfangadag, Jól í útlöndum og má thrifta jólagjöf?
Drögum út vinningshafa í gjafaleiknum!!!
Heimildarþættir eru sameiginlegt áhugamál okkar systra, okkur fannst því tilvalið að ræða aðeins The Reckoning. Ef svo ólíklega vill til að það hafi farið framhjá ykkur þá bjó Lovísa sko í New York þannig það tók ekki langan tíma að tileinka borginni þátt.
Endar síðan á einni óvæntri rúsínu í pylsuendanum 🫢