Handboltinn okkar

Farið yfir liðin í Olísdeild kvenna – Möguleikar íslensku liðanna í Evrópukeppnum skoðaðir


Listen Later

Að þessu sinni fóru kvartettinn í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar yfir stöðuna í kvennaboltanum þar sem þeir fóru yfir helstu breytingar á liðinum í Olísdeild kvenna. Þeir félagar spá því að deildin verði enn meira spennandi heldur en á síðustu leiktíð þar sem fleiri lið munu gera atlögu að þeim stóra í vor. En á sama tima lýsa þeir yfir smá áhyggjum af stöðu mála í Kópavoginum og hreinlega spyrja sig hvað sé í gangi í herbúðum HK en kvartettinn var sammála um að þeir myndu vilja sjá meira frá Kópavogsliðinu á komandi leiktíð.

Þá fóru þeir aðeins inná það hvenær þessi nefnd sem HSÍ ætlar að setja á fót um kvennahandboltann myndi verða tilkynnt og hvað væri ætlast til þeirra nefndar.  Þá fóru þeir aðeins yfir leiki íslensku liðanna í Evrópukeppnunum og þeir fagna því hversu mörg íslensk lið taka þátt í Evrópukeppnum á þessari leiktíð og þeir gera sér væntingar um að öll liðin komist í gegnum sínar viðureignir.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Handboltinn okkarBy Handboltinn okkar