
Sign up to save your podcasts
Or


Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nítjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson
Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 10.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna Egill Magnússon (FH), Jovan Kukobat (Víkingur), Birgir Steinn Jónsson (Gróttu), Guðmundur Hólmar Helgason (Selfoss) og Breki Dagsson (Fram).
Það eru háværar sögur um það að Heimir Árnason sé að bætast við þjálfarateymið fyrir norðan en hann ku vera búinn að tilkynna það.
Í lok þáttar hrósuðu þeir svo RÚV fyrir þeirra metnað í garð HM kvenna sem fer fram núna í desember.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp átjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Gestur Guðrúnarsson
Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 9.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna. Ásbjörn Friðriksson (FH), Björgvin Páll Gústavsson (Val), Einar Baldvin Baldvinsson (Gróttu), Arnór Viðarsson (Stjörnunni), Atli Báruson (Haukum) og Hrannar Bragi Eyjólfsson (Stjörnunni).
Í lok þáttar fóru þeir aðeins yfir tvö málefni, annars vegar staða handboltans á Akureyri en Árni Rúnar Jóhannesson formaður handknattleiksdeildar Þórs Akureyri skrifaði grein um það mótlæti sem félagið finnur fyrir hjá bæjarstjórn Akureyrar. Hins vegar fóru þeir aðeins yfir greinarnar sem Arnar skrifaði á handbolti.is þar sem að hann viðrar þær hugmyndir um að fækka liðum í úrvalsdeild.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp sautjánda þátt vetrarins. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Gestur Guðrúnarsson
Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það helsta sem gerðist í 8.umferð Olísdeildar karla auk þess að velja Klakaleikmenn leikjanna. Guðmundur Hólmar Helgason (Selfoss), Darri Aronsson (Haukum), Birkir Benediktsson (Aftureldingu) og Leonharð Þorgeir Harðarson (FH).
Þá fóru þeir aðeins inná málin í Grill66deild karla þar sem var hiti í mönnum í Austurberginu. Þeim félögum fannt þessi kæra ÍR-inga nokkuð athyglisverð en þeir voru þó sammála um viðbrögð manna fyrir vestan ekki vera til framdráttar ef satt reynist að styrktaraðilar ÍR hafi verið að fá símtöl að vestan.
Að lokum fóru þeir yfir dráttinn í Coca-Cola bikar karla þar sem þeim finnst að það þurfi að breyta reglunum þannig að úrvalsdeildarliðin komi inní 16-liða úrslitum og neðri deildar liðin keppi um það að komast þangað inn.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíoið sitt og tóku upp nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson.
Drengirnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu frá sér nýjan þátt í kvöld en að þessu sinni settust þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson í Klaka stúdíóið.
Það er skammt stórra högga á milli hjá drengjunum í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar en þeir settust í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp nýjan þátt. en að umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarsson, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson.
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klaka stúdíóið sitt eftir dálitla fjarveru en að umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarsson, Arnar Gunnarsson og Kristinn Guðmundsson.
Í þætti dagsins fóru þeir yfir úrslitaleikina í bikarnum og svo í lok þáttar ræddu þeir aðeins aðstöðu mál handboltans sem eru vægast sagt í skellfilegum málum.
Strákarnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar komu sér fyrir í Klaka stúdíóinu sínu snemma í morgun og tóku upp sérstakann Coca-Cola bikar þátt þar sem þeir rýndu í undanúrslita leikina sem og spáðu í spilin fyrir úrslitaleikina sem fara fram í dag.
Þeir hófu þáttinn á því að fara yfir kvennaleikina þar sem vandræðagangur í sóknarleik Vals kom þeim á óvart en hann var í raun bara á herðum Theu Imani Sturludóttur. En á sama tíma hrósuðu þeir varnarleik Fram í leiknum og frábærri frammistöðu Hafdísar Renötudóttur í marki Fram. Úrslitin í seinni undanúrslita leiknum kom engum á óvart en þeir félagar hrósuðu þó FH stúlkum fyrir að halda áfram að berjast þó um ofurefli væri að etja. Þá spáðu þeir fyrir um að úrslitaleikur Fra mog KA/Þórs yrði hin mesta skemmtun og væru líkur á því að sá leikur færi í framlengingu.
Því næst færðu þeir sig yfir í karlaleikina þar sem að Valsmenn fóru nokkuð létt með lið Aftureldingar en þar þótti þeim athyglisvert að Valsliðið hefði unnið þennan yfirburðarsigur í ljósi þess að markvarslan var ekki mikil hjá þeim. En þeir voru sammála því að Valsliðið er gríðarlega öflugt og væri fullt sjálfstrausts og það sæist í leik þeirra. Þeir voru hins vegar fyrir miklum vonbrigðum með lið Aftureldingar en það var engu líkara en að þeir gæfust upp í seinni hálfleiknum. Sigur Fram á Stjörnunni kom þeim skemmtilega á óvart og þeir voru sérstaklega hrifnir af varnarleik Fram þar sem þeir voru virkilega agaðir. Þeir eiga hins vegar von á því að úrslitaleikurinn gæti orðið þungur fyrir Fram en til þess að þeir eigi möguleika þá telja þeir félagar að Fram þurfi að stýra hraðanum í leiknum og vera virkilega agaðir í sínum sóknarleik.
From the publisher's feed