Sign up to save your podcasts
Or

Strákarnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar komu sér fyrir í Klaka stúdíóinu sínu snemma í morgun og tóku upp sérstakann Coca-Cola bikar þátt þar sem þeir rýndu í undanúrslita leikina sem og spáðu í spilin fyrir úrslitaleikina sem fara fram í dag.
Þeir hófu þáttinn á því að fara yfir kvennaleikina þar sem vandræðagangur í sóknarleik Vals kom þeim á óvart en hann var í raun bara á herðum Theu Imani Sturludóttur. En á sama tíma hrósuðu þeir varnarleik Fram í leiknum og frábærri frammistöðu Hafdísar Renötudóttur í marki Fram. Úrslitin í seinni undanúrslita leiknum kom engum á óvart en þeir félagar hrósuðu þó FH stúlkum fyrir að halda áfram að berjast þó um ofurefli væri að etja. Þá spáðu þeir fyrir um að úrslitaleikur Fra mog KA/Þórs yrði hin mesta skemmtun og væru líkur á því að sá leikur færi í framlengingu.
Því næst færðu þeir sig yfir í karlaleikina þar sem að Valsmenn fóru nokkuð létt með lið Aftureldingar en þar þótti þeim athyglisvert að Valsliðið hefði unnið þennan yfirburðarsigur í ljósi þess að markvarslan var ekki mikil hjá þeim. En þeir voru sammála því að Valsliðið er gríðarlega öflugt og væri fullt sjálfstrausts og það sæist í leik þeirra. Þeir voru hins vegar fyrir miklum vonbrigðum með lið Aftureldingar en það var engu líkara en að þeir gæfust upp í seinni hálfleiknum. Sigur Fram á Stjörnunni kom þeim skemmtilega á óvart og þeir voru sérstaklega hrifnir af varnarleik Fram þar sem þeir voru virkilega agaðir. Þeir eiga hins vegar von á því að úrslitaleikurinn gæti orðið þungur fyrir Fram en til þess að þeir eigi möguleika þá telja þeir félagar að Fram þurfi að stýra hraðanum í leiknum og vera virkilega agaðir í sínum sóknarleik.
By Handboltinn okkarStrákarnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar komu sér fyrir í Klaka stúdíóinu sínu snemma í morgun og tóku upp sérstakann Coca-Cola bikar þátt þar sem þeir rýndu í undanúrslita leikina sem og spáðu í spilin fyrir úrslitaleikina sem fara fram í dag.