Flakk

Flakk

By RÚVArts
Download on the App Store

Flakk episodes

  • Flakk - Fjallað um Guðna Pálsson arkitekt
    Tveir menn hafa haft áhrif á mig varðandi arkitektúr og skipulag, það eru þeir Guðni Pálsson arkitekt og Pétur Ármannsson byggingalistfræðingur, við heyrum í báðum í þættinum, sem fjallar um Guðna Pálsson arkitekt. Farið yfir feril Guðna, rætt um ýmsar byggingar sem hann hefur hannað. Rætt um skipulag Kvosarinnar frá 1986, Hvítu blokkirnar við Skúlagötu, 3 hús í Borgartúni, nýtt hverfi í Hamranesi í Hafnarfirði sem er að rísa, auk þess um íbúðaklasa eins og Guðni vill kalla nýjung í byggingu fjölbýlishúsa, sem enn hefur ekki risið. Rætt við Pétur Ármannsson byggingalistfræðing um Guðna og og störf Péturs á stofunni hans. Fyrir tilstilli Húsafrðunarnefndar var einbýlishús Guðna við Litlu Bæjarvör 4 á Álftanesi friðað í fyrra sem gott dæmi um arkitektúr níunda áratugarins.
    50 min
  • 15122022 - Flakk um tvær bókabyggingar
    Verðmætasta bókasafn landsins hefur átt heimili víða í borginni - nú hyllir undir nýtt heimili, því Hús Íslenskunnar er risið við Suðurgötu og verður opnað í vor ef allt gengur eftir. Við fengum að kíkja í heimsókn með arkitektinum Ögmundi Skarphéðinssyni hjá Hornsteinum. Nýlokið er samkeppni um endurbyggingu Borgarbókasafnsins í Grófinni, við heimsækjum safnið og ræðum við Hildi Gunnlaugsdóttur arkitekt hjá JVST og Huldu Aðalsteinsdóttur innanhúsarkitekt.
    Athyglisvert að heimsækja Hús Íslenskunnar - byggingin er sporyskjulaga og því engin horn víða í húsinu. Vel er vandað til verka og skemmtilegir inni og útigarðar á hæðunum. Alls staðar gluggar bæði inni og úti.
    Hægt er að skoða verðlaunatillögu endurbyggingar Borgarbókasafnsins í Grófinni, og þar eru einnig hinar fjórar til sýnis til loka desember. Farið er yfir vinningstillögnuna með tveimur úr teyminu.
    50 min
  • 08122022 ? Flakk um endurnýtingu eldri bygginga
    Í þætti dagsins verður fjallað um tvær byggingar sem verið er að gera upp og breyta í íbúðir, um er að ræða Skipholt 1, þar sem Myndlistar- og handíðaskóli Íslands var lengi til húsa, en er fluttur annað fyrir allmörgum árum, upphaflega hugmyndin var að breyta því í hótel, af því varð ekki og nú er verið að innrétta íbúðir í húsið. Við byrjum hins vegar vestur í bæ, eða á Dunhaga 18 ? 20, en þar var byggð íbúðarblokk með verslunarhúsnæði á neðstu hæð og íbúðir á þeim efri. Húsið er enn þannig, en mikið breytt innandyra. Í skýrslu Borgarsögusafns frá 2019 má lesa heilmargt um búsetu á Grímsstaðarholti, sem kennt er við fyrsta bæinn Grímstaði um miðja 19 öld. Rætt er við Frey Frostason arkitekt hjá THG um Dunhagann og Aðalstein Snorrason arkitekt hjá Arkís um Skipholt 1.
    50 min
  • 01122022 ? Flakk um Hótel Reykjavík og Íslandshótel
    Ég var að reyna að telja í huganum hversu mörg ný hótel væru í Reykjavík og þá meina ég innan Elliðaáa, ég ruglaðist fljótlega, þau eru svo mörg. Nýlega var nýtt hótel opnað og svo sem ekki alveg tilbúið við horn Lækjargötu og Vonarstrætis. Hótelið heitir Hótel Reykjavík - Saga. Þarna er um að ræða nýbyggingar auk þess sem þrjú eldri hús eru gerð upp, og verða falleg á ný, tvö þeirra hafa fengið að drabbast niður. Björn Skaftason arkitekt hjá Aterlier hannaði hótelið, og auk þess er hann að hanna viðbyggingu við Grand hótel í Sigtúni auk íbúða á gamla Blómavalsreitnum, við heilsum uppá Björn í þættinum. Það eru ekki margar hótelkeðjur hér á landi ? en umrædd hótel eru bæði í eigu Íslandshótela og er þetta nýja í Lækjargötu átjánda hótelið í þeirra eigu. Þegar inn er komið, tekur á móti stór skjár, sem sýnir kampavínsglas sem fyllist hægt og rólega og breytist svo í myndir af gosinu á Suðurnesjum, einnig er hægt að vera með beinar útsendingar á skjánum. það er róleg stemming í lobbýinu, sem er ekki stórt, en tekur vel á móti manni og boðið uppá kaffi og konfekt á borði til hliðar.
    Við mælum okkur mót við Ólaf Torfason framkvæmdastjóra og Ólaf Sæmundsson byggingastjóra og ætlum að skoða okkur um
    50 min
  • 24112022 - Flakk um almenningssamgöngur
    Ísland er bílaland, flestir ferðast einir í sínum bíl og reka þau erindi sem hver og einn þarf sinna. Stundum er eins og enginn sé í vinnunni, því umferðin er þung alla daga. Við ætlum að huga að samgöngum í þætti dagsins. Það eru ýmsir möguleikar, t.d. að ganga, hjóla og taka strætó og nýlega bættust svokölluð hopphjól eða skútur í hópinn. Bílar eru semsagt ekki til umræðu í dag. Við heilsum uppá Sindra Frey Ásgeirsson formann samtaka um bíllausan lífsstíl, heimsækjum vegagerðina og ræðum við Bryndísi Friðriksdóttur svæðisstjóra höfuðborgarsvæðsins hjá Vegagerðinni og ábyrgðarmaður Borgarlínu og Arndísi Ólfafsdóttur Arnalds forstöðumann verkefnastofu Borgarlínu, báðar verkfræðingar auðvitað, en við byrjum uppá Höfða og hittum framkvæmdastjóra Strætó Jóhannes Svavar Rúnarsson.
    50 min
  • 10112022 ? Flakk um græna byggingu á Frakkastíg
    Æ oftar heyrum við af hringrásarhagkerfinu og alls kyns vottunum í byggingabransanum. Við skoðum litla lóð við Frakkastíg 1 í dag, þar sem stendur til að byggja vistvænt hús, en borgin auglýsti eftir hugmyndum um græna byggð á nokkrum lóðum í bænum. Það trjóna háhýsi við Skúlagötuna alla og í þætti dagsins heyrum við af nýrri byggingu sem sumir vilja meina að sé og stór fyrir þessa litlu lóð. Við ræðum við Arnhildi Pálmadóttur arkitekt hjá Sapp, Sigríði Ósk Bjarnadóttur verkfræðing hjá BM Vallá en byrjum með Björt Ólafsdóttur hjá Iðu, sem er framkvæmdaaðili.
    50 min
  • 03112022 ? Flakk um uppbyggingu Félagsbústaða við Sjómannaskólann
    Við ætlum á Rauðarárholtið í dag, það er á lóð Sjómannaskólans við Háteigsveg. Nýjar námsmannaíbúðir á vegum Byggingafélags námsmanna hafa risið bakvið gamla Kennaraskólann, þar við hliðina eru tvö til þrjú fjölbýlishús fyrir 60+. Norðan megin við Háteigsveg, eru fjögur þriggja hæða fjölbýlishús við Vatnsholtið, hér er um að ræða leiguíbúðir fyrir 60+. Við ætlum að fjalla um 8 íbúða hús, sem Félgasbústaðir eru að byggja fyrir fatlaða, arkitekt er Arnhildur Pálmadóttir hjá Sapp. Hér er um að ræða grænt húsnæði fyrir fatlaða, með starfsmannaíbúð, 8 íbúða hús við Háteigsveg 59. Segja má að það sem byggt hefur verið á svæðinu, séu íbúðir undir ákveðnum hatti, annað hvort aldurs eða námsmanna. Einnig er rætt við Sigrúnu Árnadóttur framkv.stj. Félagsbústaða og EYþór Friðriksson sviðsstjóra húsnæðismála.
    50 min
  • 27101022 - Flakk um uppbyggingu í Borgartúni
    Þar sem í dag eru lóðirnar Borgartún 29-36 var áður tún hjáleigunnar Fúlutjarnar eða Lækjarbakka. Þessi jarðarskiki var byggður úr jörðinni Rauðará en landamerki á milli Laugarness og Rauðarár lágu um Fúlatjarnarlæk, sem rann að mestu vestan við núverandi Kringlumýrarbraut. Lækurinn var afrennsli frá Kirkjumýri og Kringlumýri og dró nafn sitt af Fúlutjörn, sem var hálfgert sjávarlón sunnan við Kirkjusand og lyktaði af rotnandi gróðri. Fúlutjarnarlækur var settur í stokk árið 1957 og um 1960 hafði verið fyllt upp í Fúlutjörn og hvorugt er því sýnilegt lengur, segir í skýrslu Borgarsögusafns frá 2017. Ferðinni er heitið í Borgartún í dag. Rætt við Gunnar Sigurðsson arkitekt hjá Andakt. Nú stendur til að rífa þær byggingar sem tilheyrðu fyrirtæki Guðmundar Jónassonar og byggja 100 íbúða fjölbýli, um er að ræða horn Kringlumýrarbrautar og Borgartúns á bak við Cabin hótelið Borgartún 34 - 36. EInnig rætt við Pawel Bartoszek varaformann umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar um framtíðarsýn í Borgartúni.
    50 min
  • 20102022 ? Flakk um endurnýtingu bygginga
    Í þætti dagsins ætlum við að skoða byggingar á tveimur lóðum, sem eiga það sameignlegt að verið er að endurnýja, byggja ofan á eldri hús. Um er að ræða Hverfisgötu 98 ? 100 og Gamla Þórs Café í Brautarholti 20. Rætt er við Arnar Þór Jónsson arkitekt hjá Arkís um Brautarholtið og Helga Mar Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic um Hverfisgötuna, það getur verið ansi flókið að byggja ofan á eldri hús, bæði vegna reglugerða og burðarþols og fleira. Í báðum tilfellum var lagt upp með gistingu. Á Hverfisgötunni gistiheimili og í Brautarholti hótel, á báðum stöðum verða þetta íbúðir.
    50 min
  • 13102022 - Flakk um endanlegt skipulag og uppbyggingu á Heklureit
    Sá þéttingarreitur sem hefur hvað oftast verið nefndur hér á Flakkinu er vafalaust Heklureiturinn, en svo nefnist reitur við Laugaveg sem nær frá Nóatúni að gamla Sjónvarpshúsinu. Nú er loks búið að samþykkja deiliskipulagið og hönnuðir húsanna eru byrjaðir á verkinu, það eru þeir Freyr Frostason arkitekt hjá THG og Jóhann Einar Jónsson hjá Teikna. Við heilsum uppá þá á eftir.
    Einnig er rifjað upp viðtal við Ásdísi Helgu Ágústsdóttur arkitekt hjá Yriki, um deiliskipulagið.
    50 min

About Flakk

From the publisher's feed

Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.