FLANERÍ

FLANERÍ KÓP #1 - Útilistaverk í Kópavogi


Listen Later

Á þessu fyrsta Flaneríi hringsólum við undir og yfir götur, stíga og byggingar. Skoðum útilistaverk í nágrenni menningarhúsanna og veltum fyrir okkur geislum sólarinnar, hreyfingunni í kringum okkur og spyrjum hvort við eigum ekki eitthvað í þessu öllu saman.


Gengið er frá menningarhúsunum, að Sólarslóð Theresu Himmer, undir Borgarholtsbrautina og upp að Kópavogskirkju þar sem gluggar listakonunnar Gerðar Helgadóttur eru í forgunni.

Kort af göngunni má nálgast á flaneri.is

  • 00:00 Upphafsstaður - Menningarhúsin í Kópavogi
  • 01:15 Gengið að Hálsatorgi
  • 01:50 Sólarslóð - Theresa Himmer
  • 05:35 Gengið að Borgarholtsbraut - Jón Proppé
  • 09:18 Göng undir Borgarholtsbraut
  • 10:45 Upp að Kópavogskirkju
  • 15:25 Kópavogskirkja - Séra Sigurður Arnarson
  • 17:07 Gengið í kring um kirkjuna - Gerður Helgadóttir
  • 21:40 Gengið niður Borgarholtið
  • 24:48 Frjáls för um svæðið
  • 28:30 Kreditlisti
  • Flanerí KÓP er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.



    ...more
    View all episodesView all episodes
    Download on the App Store

    FLANERÍBy Flanerí